Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202046
LESENDABÁS
Þú átt að vernda og verja,
þótt virðist það ekki fært,
allt, sem er hug þínum heilagt
og hjarta þínu kært.
Þannig kvað þjóðskáld sveitanna,
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
og nú kemur mér þessi hugsun
skáldsins í hug þegar Magnús
Óskarsson kennari hefur kvatt
þetta líf og gefið skóla sínum,
Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri, stórbrotna gjöf að leiðar-
lokum.
Allir þeir sem sátu við fótskör
Magnúsar Óskarssonar, kennara og
fræðimanns á Hvanneyri, varð það
ljóst að þar fór einstakur maður. Ég
heyrði aldrei neinn nemanda hans
hnjóða í hann eða efast um vilja
hans að verða hverjum og einum
að liði. Magnús er guðfaðir þeirrar
ræktunarstefnu í jarðrækt sem ríkt
hefur hér á landi í sextíu ár.
Einn af frumkvöðlum í íslenskri
tilrauna- og ræktunarsögu
Magnús varð búfræðikandidat frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 1953
og tveimur árum síðar kom hann til
starfa eftir framhaldsnám og störf í
Danmörku og hóf kennslu við skól-
ann. Magnús hóf tilraunir í jarðrækt
og telst einn af frumkvöðlum í ís-
lenskri tilrauna- og ræktunarsögu á
sviði landbúnaðarins. Magnús var
prúðmenni, sem bjó yfir einstakri
auðmýkt og náði inn að hjartanu á
nemendum sínum. Ef nemendum
hans gekk illa á prófi eða í náms-
greininni þá skammaði hann ekki
nemendurna. Hann tók sökina á sig
og hóf að útskýra málið betur.
Hinn mikli sáðmaður
Ef horft er yfir allar framfarir land-
búnaðarins síðustu áratugi, með
grænum túnum og bleikum ökrum
og góða ræktunarbændur, kemur
nafn Magnúsar Óskarssonar upp
í hugann. Bændurnir og ráðu-
nautarnir voru hans, og sannar-
lega var hann bæði faðir og móðir
þeirra í fræðunum. Hann var hinn
mikli sáðmaður sem sá grösin
spretta í fótsporum nemenda sinna.
Nemendur hans bæði bændurnir og
ekki síður ráðunautarnir mótaðir af
þeim áhuga hans, hlaðnir þeirri vissu
og vilja að íslenska gróðurmoldin
myndi endurgjalda sáðmanninum
þekkingu sína.
Heilan vetur sat ég Magnúsi
til hægri handar í matstofu
Hvanneyrarskóla ásamt galsa-
fengnum hópi ungra manna.
Aldrei skipti hann skapi, heldur
tók af hóg-værð þátt í glensinu
en mælti eins og góður faðir vit-
urleg orð þegar ærslin ætluðu úr
böndunum. Líf Magnúsar var
helgað þeirri blessun að verða að
liði og gera skyldu sína gagnvart
landbúnaðinum og færa þjóðinni
þar með matvörur sem urðu til
í hreinni náttúru, og afurðir frá
búfé sem er heilbrigt. Nú er Ísland
eitt besta matvælaland heims með
mikla sérstöðu, þar átti Magnús
frumkvæði og skrifaði brot af
handritinu.
Nú hefur Magnús fært Land-
búnaðar háskólanum að gjöf allan
peningalegan afrakstur lífs síns.
Landbúnaðarháskólanum óska ég
til hamingju með gjöfina. Nú er
mikilvægt að gjöfin verði lífshug-
sjón Magnúsar að liði við að efla
ræktunarbúskap og þekkingaröflun
í landbúnaði. Lao Tse segir þetta í
Bókinni um veginn:
„Sá sem líkist Upphafinu, stend-
ur stöðugur. Hann er eins og jurt,
sem á sér djúpar rætur og sterkan
legg. Þetta veitir langa ævi og var-
anlegan orðstír.“
Blessuð sé gjöfin og hugurinn
sem henni fylgir og minningin um
þann einstaka mann, sem Magnús
Óskarsson hafði að geyma.
Guðni Ágústsson
fyrrverandi landbúnaðar ráðherra
Höfðingleg gjöf Magnúsar Óskarssonar
Magnús Óskarsson í apríl 2004 fyrir framan málverkið af sér sem Baltasar
Samper myndlistarmaður málaði. Mynd / Jóhannes Torfason Torfalæk II
Guðni Ágústsson.
Þeir skella skollaeyrum við
Við sem börðumst gegn þriðja
orkupakkanum munum sjaldan
gleyma því hjálparleysi sem
helltist yfir okkur þegar við
reyndum með öllum leiðum til að
fá stjórnvöld til að nema staðar
og íhuga afstöðu sína en allt kom
fyrir ekki, pakkinn fór í gegn. Það
eru atvik sem þessi sem kenna
okkur hversu lítið íslenska þjóðin
hefur um mál sín að segja og að
kosningum loknum er líkt og
ráðamenn skelli skollaeyrum við
okkur og hætti að hlusta.
Þetta fyrirkomulag hefur ekki
reynst okkur vel og það sýnir
okkur hversu mikilvægt embætti
forsetans er þegar ríkisstjórnin fer út
af sporinu. Það er þá sem það verður
í hans verkahring að bregðast við
og standa með þjóðinni en sitja
ekki aðgerðalaus hjá og skrifa
umyrðalaust undir hvað sem frá
stjórnvöldum kemur. Hann á að vera
öryggisventillinn okkar og það er
mun stærra og mikilvægara hlutverk
en að brosa framan í myndavélina
eða mæta í veislur með erlendum
þjóðhöfðingjum.
Ólafur Ragnar Grímsson
var fyrsti forsetinn til að nýta
málskotsréttinn og virkja þannig
beint lýðræði í landinu og verð ég
honum ævinlega þakklátur fyrir það.
Hugrekki Ólafs Ragnars gaf okkur
ónotað og nýtt vopn í baráttunni
gegn spillingunni sem varð m.a. til
þess að við höfnuðum svokölluðum
„Svavarssamningi“ og spöruðum
þjóðinni himinháar fjárhæðir. Tók
Ólafur Ragnar þarna fyrsta skrefið
í að virkja forsetaembættið til góðs
fyrir þjóðina en það er einmitt það
sem þarf ef við ætlum að eygja von
í baráttunni gegn spillingu.
Það er víða pottur brotinn þegar
kemur að stjórn landsins. Lengi
hefur ríkiskassinn verið lekur og
erfitt hefur reynst að henda reið-
ur á uppruna lekans eða hvar og
hjá hverjum fjármagnið endar. Það
eina sem víst er að það endar ekki
í vasa almennings. Eins höfum við
setið uppi með óteljandi óhagstæðar
lagasetningar og reglugerðir sem
koma í veg fyrir að stéttir landsins
geti starfað á heilbrigðan hátt og
þar er bændastéttin svo sannarlega
engin undantekning. Hún hefur mátt
kljást við kostnaðarsama milliliði
og regluverk sem hefur bókstaf-
lega staðið í vegi fyrir starfseminni.
Þessu þarf að breyta, það er engum
greiði gerður með hærra verði á
íslenskri framleiðslu en nauðsyn
krefur.
Okkur hlýtur öllum að vera
ljóst að beint lýðræði er margfalt
lýðræðislegra en lýðræði sem
byggist á því að velja fólk á
fjögurra ára fresti og vona síðan
að það standi við það sem það
lofar. Þess vegna er nauðsynlegt
að nota málskotsréttinn oftar og
spyrna þjóðaratkvæðagreiðslum
saman við skipulagðar kosningar
eða nota rafrænu skilríkin til
að leyfa þjóðinni að kjósa í
ágreiningsmálum. Við þurfum að
byrja að vinda ofan af keflinu sem
gefur kjörnum fulltrúum réttinn til
að hegða sér eins og þeim sýnist
í fjögur ár á milli þess sem þeir
lofa öllu fögru. Við þurfum að
færa þetta vald til þjóðarinnar því
valdið átti alltaf að vera hennar. Það
er skylda forsetans að leyfa þjóðinni
að eiga síðasta orðið í mikilvægum
málefnum sem hana varðar.
Guðmundur Franklín Jónsson
forsetaframbjóðandiGuðmundur Franklín Jónsson.
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar