Bændablaðið - 07.05.2020, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202048
MENNING &SAGA
Áveitur í Vestur-Landeyjum fyrri hluta 20. aldar
Snemma á 20. öld voru áveitur í
tísku. Er Flóaáveitan þar fræg-
ust, en á árunum 1918–1927 voru
grafnir miklir áveituskurðir og
vatni úr Hvítá veitt á Flóann.
Höfðu bændur tekið eftir því að
gras spratt betur þar sem jökul-
ár flæddu af og til yfir bakkana
https://is.wikipedia.org/wiki/
Fl%C3%B3a%C3%A1veitan
Vestur-Landeyingar, og þá ekki
síst Álfhólabændur, létu sitt ekki
eftir liggja. Er sú saga minna þekkt
og skal nú bætt úr því. Byggt er á
hljóðrituðum viðtölum sem höf-
undur tók 1995 við Ágúst Jónsson
í Sigluvík (1910–1999). Ágúst var
alinn upp í Álfhólum og bjó þar
uns hann hóf búskap í Sigluvík
1935. Höfundur tók ljósmyndir af
leifum stíflumannvirkja, aðallega
stóru stíflunnar í Fljótsvegi suður
af Álfhólum, sjá hér aftar.
Fljótsvegsveitan í Álfhólum
Fljótsvegur er lítil á með upptök ná-
lægt Þverá skammt austan við bæinn
Hemlu við Þjóðveg 1, og rennur
niður V-Landeyjar og í Lónið milli
Skipagerðis og Álfhólahjáleigu
og þar út í sjó. Nafnið bendir til
að þetta hafi einhvern tíma verið
einn af ótal farvegum Markarfljóts
þegar hluti af því rann af og til vestur
með Fljótshlíð í Þverá. Efri hluta
Fljótsvegarins hefur nú verið breytt
í skurði en neðan til verður hann
enn talsvert vatnsfall í vatnavöxtum.
Það hefur líklega verið árið
1918 að hlaðin var mikil stífla í
Fljótsveginn við Álfhóla og gerð
áveita. Vatni var veitt austur um
Álfhóla-Eyju og þó aðallega vestur
í lækinn Görn um handgrafinn
skurð framan við Búðatóft, tóft
eftir sjóbúðir Fljótshlíðinga og
Hvolhreppinga frá því að sjóróðrar
voru stundaðir frá Landeyjasandi.
(Þessar tættur eru komnar syðst
undir tún Álfhólahjáleigu). Áveitan
var til þess að auka grasvöxt, einnig
sléttaðist landið er ís lagðist yfir og
pressaði niður þúfurnar þegar vatnið
seig undan honum. Einnig var hlaðið
í Görnina til að halda vatninu og
veita því á stórt fremur sendið svæði
í Álfhóla-Nesi. Svo var gerður
annar skurður til að veita vatninu af
landinu þegar kom að slætti. Hluti af
áveituvatninu hefur verið jökulvatn
úr Þverá, því hún rann á þessum tíma
stundum í Fljótsveginn fyrir austan
Hemlu.
Stíflan í Fljótsveginum gaf sig og
var endurhlaðin. Ásgeir L. Jónsson
kom að endurgerð stíflunnar, eins
og lesa má í dagbók hans frá 12.
júlí 1922. Þar er riss að stíflunni og
málsetning, sjá myndir í lok þessa
skjals.
Seinni áveituhleðslan fer úr
Fljótsveginum árið 1928. Sú tíma-
setning er örugg því Bjarni Jónsson
á Álfhólum, sem smíðað hafði botn-
loku í stífluna, deyr úr lungnabólgu
á Þorláksmessu það ár. Hann hafði
verið að smíða utan um stúlku í Ey
nokkrum vikum áður og orðið kalt.
Kistan utan um Bjarna var smíðuð
úr timbri úr stokki hleðslunnar sem
hann hafði smíðað.
Vatni veitt úr Þverá
Á árunum í kringum 1920 var
jökulvatni veitt úr Þverá, u.þ.b. 2
km fyrir neðan brú á þjóðvegi 1. Því
var veitt í rásir austur undir bæina
Strönd og Strandarhjáleigu og þaðan
niður alla mýri, m.a. í lækinn sem
rann niður milli Álfhóla og Sleifar.
Hlaðnar voru margar hleðslur þvert
yfir lækinn til að halda vatninu og
sjást þær víða enn.
Handgrafnir voru tveir skurðir
úr Þverá. Helgi Bjarnason á Forsæti
(1889–1959) gróf fyrri skurðinn í
akkorði (10 aurar á fermetra). Síðar
gróf Valdimar Jónsson á Álfhólum
(1891–1985) annan skurð úr ánni á
heppilegri stað, með því að plægja
með hestum 6–8 plógför og taka
svo upp plógstrengina. Hleypt var
á vatni úr Þverá um miðjan maí og
lokað skömmu fyrir slátt.
Í miklum flóðum þegar ís var
að ryðja sig af Þverá mynduðust
klakastíflur. Fór vatnið þá yfir bakk-
ana niður fyrir Uxahrygg og komu
miklir ísdrekar niður alla mýri. Með
slíkum ísstíflum urðu Djúpós og
Valalækur til og veittu miklu vatni
bæði yfir Safamýri í Þykkvabæ
og ytri hluta Vestur-Landeyja
svo margir bæir fóru í eyði. Slík
klakastífluflóð héldu áfram eftir
að jökulvatnið var hætt að flæða
í ánni eftir að gerðar voru stíflur
frá Þórólfsfelli um Stóra-Dímon að
gömlu Markarfljótsbrúnni þegar hún
var byggð 1934.
Þegar kom fram undir miðja
20. öld sneru menn við blaðinu. Í
stað þess að veita vatni á votlendið
skyldi það þurrkað. Þá komu
skurðgröfur til sögunnar og í stað
handgrafinna áveituskurða komu
vélgrafnir framræsluskurðir, og í
stað áburðarefna úr áveituvatni kom
tilbúinn áburður til sögunnar.
Þorvaldur Örn Árnason,
byggt á frásögn Ágústs
Jónssonar 1995.
Fljótsvegsstíflan. Mynd / ÞÖÁ 2018
Garðuroghandgrafinnskurðursemmunhafaveittáveituvatniaflandinuí
NesinuíÁlfhólum. Mynd / ÞÖÁ 2018
SkurðursemfluttiáveituvatniðausturyfirÁlfhóla-Eyju.Annarskurðurfluttiöllumeiravatntilvesturs. Mynd / ÞÖÁ 2018
Samiskurðuroggarður,sunnar. Mynd / ÞÖÁ 2018TeikningogmálsíðariFljótsvegsstíflunnar.Mynd / Úr dagbók Ásgeirs L. Jónssonar
EldriÞverár-Álfhólaáveita.
EldriÞverár-Álfhólaáveita.Séðtil
suðurs.Myndirteknaríágúst1995.
20. maí
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?