Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 51
sig. Útreikningar félagsins sýna
að um 43% losunar verður til við
meltingu, um 10% frá mykjunni,
um 35% við fóðurframleiðsluna,
um 7% vegna orkunotkunar og
um 5% losunarinnar kemur annars
staðar frá. Á móti kemur að nærri
10% binding verður að jafnaði á
kúabúum sem leggja inn hjá fé-
laginu vegna kolefnisbindingar í
skógrækt. Arla áætlar að árið 2030
verði heildarlosun kúabúanna sem
leggja inn hjá félaginu komin í að
jafnaði 0,81 kg CO2/kg orkuleið-
réttrar mjólkur en í dag er meðal-
losunin 1,13 kg
Geta dregið verulega
úr metanlosun
Danir hafa lagt mikla áherslu á
rannsóknir á sótspori landbúnaðar
undanfarin ár og ný rannsókn, sem
greint var frá í einu erindanna,
sýndi að hægt er að draga verulega
úr metanlosun vegna meltingar
kúa en þar sem losun á metan
við meltingu er lang stærsti
skýringarþáttur sótspors kúabúa
þá hafa margar rannsóknir verið
gerðar á því hvernig megi draga
úr þessari losun s.s. með því að
blanda þangi eða nítrati við fóðrið,
gefa kúnum hvítlauk og óregano,
fitubæta fóðrið með fitu úr repju
og margt fleira mætti nefna.
Geta minnkað losun um 40%
Gerðar hafa verið ótal tilraunir og
nú liggja fyrir fyrstu niðurstöður
sem virðast lofa allgóðu. Þannig
hefur vísindamönnum tekist að
draga úr metanlosun kúnna um
40% án þess að það hafi bitnað
á áti eða mjólkurframleiðslu. Það
sem bændum er nú ráðlagt að gera
er að fitubæta fóðrið þar sem fitan
bindur vetni þegar hún mettast og
þar með hverfur hluti af hráefn-
inu sem annars myndar metan. Þá
má blanda nítrati út í fóðrið sem
gerir svipað og fitan, þ.e. bindur
vetni. Að síðustu hafa tilraunir
með efni sem heitir 3-NOP, sem
er sérstaklega framleitt til að
draga úr metanlosun kúa, gefið
einkar góða raun en efnið byggir
á nítroxýprópanóli. Þetta efni
kemur í veg fyrir myndun met-
ans í vömb kúnna og þó ekki sé
gefið nema um 2 grömm af efn-
inu á dag þá sýna tilraunir Dana
að metanlosun kúnna verður um
30% minni en ella! Aðal vanda-
málið við að blanda þessu efni
í fóður kúnna er að ná að dreifa
svona litlu magni jafnt í fóðrið
hjá kúnum. Þegar allt að framan
er skoðað mæla danskir ráðunautar
með því að fara blöndunarleið þ.e.
bæði bæta við fitu, blanda nítrati í
fóðrið og einnig 3-NOP.
Nýta landið vel
Tvö erindi fjölluðu um uppskeru-
mál og samhengi við sótsporið og
þar kom fram að þó svo að bæði
ræktun á fóðurmaís eða fóður-
rófum væri betra, umhverfislega
séð, en ræktun á grasi fyrir mjólk-
urkýr þá væri munurinn það lítill
að uppskerumagnið af hverjum
hektara væri í raun þýðingarmeira.
Með öðrum orðum að til þess að
draga úr umhverfisáhrifum rækt-
arlandsins væri mikilvægast að fá
væna og nýtanlega uppskeru
.
7. Neytenda og heilsumál
Það er nýlunda á þessu fagþingi
að vera með málstofu sem nær til
neytendamála en skýringin á því
felst m.a. í nýju merkingarkerfi
mjólkurvara í Danmörku s.k.
hjartamerk-ingu en þetta er
opinbert merkingakerfi sem
bændur geta fengið á bú sín ef þeir
ganga lengra varðandi aðbúnað
og dýravelferð en hefðbundin
lágmörk laga og reglugerða gera
ráð fyrir. Í þessari málstofu voru
flutt sjö erindi en flest þeirra
voru mjög sérhæfð fyrir danskar
aðstæður, sérstaklega erindi er
varða heilbrigðismál. Það sem
sneri að neytendamálum var hið
nýja merkingarkerfi sem nær til
þriggja hjarta og fá þá kúabúin,
eftir úttekt, 1-3 hjörtu eftir því
hvernig þau standa sig en áður
hefur verið fjallað um þetta kerfi
í Bændablaðinu.
Ganga lengra
Í dag eru í þessu kerfi innan við
1000 dönsk kúabú og flest þeirra
eru í nautakjötsframleiðslu eða
blandaðri framleiðslu en ekki
nema rúmlega 20 kúabú í mjólk-
urframleiðslu hafa hlotið hjarta-
vottun. Skýringin felst m.a. í
kröfum kerfisins en nefna má að til
að fá úthlutað þremur hjörtum þarf
kálfurinn að ganga undir kúnni í
amk. 12 vikur svo dæmi sé tekið.
Kerfið í heild sinni er alls ekki
hafið yfir gagnrýni en er skref í þá
átt að geta umbunað þeim bændum
sem eru tilbúnir að ganga lengra en
hefðbundið er, án þess þó að breyta
búskap sínum t.d. í lífrænt vottaða
framleiðslu. Áhugasömum um
þetta kerfi má benda á heimasíðuna
www.bedredyrevelfærd.dk.
Sjúkrastíur eru ekki burðarstíur
Annað áhugavert erindi í mál-
stofunni fjallaði um mikilvægi þess
að vera með sjúkrastíu á kúabúum
og reynslu Dana af slíkri aðstöðu.
Áður fyrr voru burðarstíur notaðar
líka sem sjúkrastíur en það er liðin
tíð og í dag eru þetta aðskild svæði
enda má alls ekki setja saman kýr
komnar að burði og veikar kýr.
Reynsla danskra kúabænda af
sjúkrastíum er almennt góð enda
eru sjúkir gripir þá ekki innan um
heilbrigða gripi og líkur t.d. á smiti
á milli gripa er í lágmarki. Þá er
auðveldara að veita þeim eftirlit og
aðstoð ef til er sjúkrastía á búinu.
Danir mæla með því að sjúkrastíur
séu í raun útbúnar líkt og ráðlagt
er að útbúa burðarstíu. Munurinn
sé bara sá að stíuna má ekki nota
fyrir burði!
8. Rekstur
Líkt og á við um aðrar málstofur
sem hér hefur verið fjallað um þá
voru í þessari mál-stofu, sem inni-
hélt 9 erindi, mest áhersla lögð á
sérhæfðar danskar aðstæður s.s.
hvernig þarlendir bændur eiga
að bregðast við breytingum á
lagaumhverfi, snúa sér varðandi
lífeyrismál nú eða hvernig sé
gott að fjárfesta ef reksturinn er
að skila nægum afgangi og fleira
mætti nefna. Tvö erindi af þessum
níu sneru hins vegar beint að því
hvernig rekstrarumhverfi kúabúa
í dag er að verða meira eða minna
stafrænt og hvernig sé hægt að
bregðast við því með jákvæðum
hætti.
Allt á einum stað
Í dag eru það ekki einungis
skýrsluhaldsupplýsingar sem
eru stafrænar heldur alls konar
aðrar upplýsingar eins og
innvigtun mjólkur eða kjöts,
fóðurupplýsingar, kvittanir frá
birgjum og margt fleira mætti
nefna. Þá eru í dag til margskonar
snjallsímaforrit, eða öpp, sem
margir nýta sér í dag til að
auðvelda búskapinn en oft vinna
þessi ólíku forrit illa eða ekki
saman og það er bagalegt. Nú
geta hins vegar danskir bændur
meira eða minna fengið allar
þessar upplýsignar beint inn á
einn stað svo viðkomandi þarf
ekki að skrá sig inn á mismunandi
stöðum. Það sparar ekki bara tíma
heldur gerir einnig öll gögn miklu
aðgengilegri og nýtanlegri við að
stýra búrekstrinum.
Stafrænt skrifborð
Það er danska ráðgjafarfyrirtækið
SEGES sem hefur þróað þennan
vettvang fyrir bændur landsins og
byggir kerfið á gömlum grunni þar
sem bóndinn skráir sig bara inn
á einum stað og þá opnast sjálf-
krafa fyrir aðgengi að allskonar
gagnagrunnum og kerfum, jafnt
frá afurðastöðvum, fyrirtækjum,
dýralæknum eða jafnvel bönkum.
Segja má að kerfið sé einskonar
stafrænt skrifborð bóndans og þarf
hann því ekki að nota nema einn
stað fyrir allt það sem bóndinn
vill gera. Fyrir vikið, vegna þessa
sameiginlega vettvangs, er hægt
að láta hugbúnað ná í hin og þessi
gögn og draga saman í skýrslur og
yfirlit til þess að auðvelda búskap-
inn til muna.
9–10. Erlendir starfsmenn
og dönsk kúakyn
Síðustu tvær málstofurnar sneru
báðar að sérhæfðum dönskum
aðstæðum. Sú níunda um
það hvernig danskir bændur
geta auðveldað erlendum
starfsmönnum að takast á við störf
sín og sú tíunda fjallaði sérstaklega
að ræktun danskra kúa þ.e. Jersey,
Rauðar danskar og Holstein.
Vegna sérstöðu þessara málstofa
verður ekki vikið sérstaklega að
þeim í þessari umfjöllun.
Umfjöllun um þetta áhuga-
verða danska fagþing lýkur hér
með en þess má geta að hægt er
að skoða og hlaða niður öllum
erindum af fagþinginu með því að
fara inn á upplýsingasíðu danska
landbúnaðarins www.landbrugs-
info.dk. Þar þarf svo að velja
„Kvæg“ (þ.e. nautgriparækt) og
þar undir „Kvægkongressen“ og
þá opnast heimasíða fagþings-
ins þar sem hægt er að skoða
öll erindin með því að smella á
„Præsentationer fra kongressen
2020“.
Það þarf ótrúlega lítið magn af efninu 3-NOP, ekki nema 2 grömm á dag, til
þess að snarminnka metanlosun kúa.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
S: 540 4900
yamaha.is
Utanborðsmótorarnir frá Yamaha eru þekktir fyrir einstök gæði og endingu.
Þeir koma í mörgum útfærslum, tvígengis, fjórgengis og rafmagns, allt frá 2,5
upp í 350 hestöfl. Allir eru þeir hlaðnir bestu fáanlegu Yamaha tækni.
Stærri, kröftugir fjórgengis
utanborðsmótorar fyrir
stýri og mæla.
F40FET Verð: 950.000 kr.
Léttir en öflugir
fjórgengis utanborðs-
mótorar með handfangi.
F25GWH Verð: 659.000 kr.
Minni, léttir og meðfærilegir
tvígengis, fjórgengis og
rafmagns utanborðsmótorar.
F2,5 Verð: 269.000 kr.
Yamaha á örugglega rétta mótorinn fyrir þig!
Kraftur og öryggi fleytir þér alla leið
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300