Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202052
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Eigum á lager nýja kynslóð af MultiOne EZ-7
liðléttingum sem eru 100% rafknúnir með
góða endingu á rafhlöðunni.
Frábær fjölnotavél með 1600 kg lyftigetu
og möguleika á ýmsum aukahlutum.
Vélarnar afhendast með skóflu og taðgreip.
Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116
eða sendu línu á iab@klettur.is.
Ný kynslóð
100% rafmagn!
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Úrvalsnýting nautanna sem voru fædd 2012–2014
Oft hafa niðurstöður afkvæma-
rannsókna á nautum verið
dregnar saman með því að
sýna úrvalsnýtingu innan hvers
árgangs á myndrænan hátt.
Nokkuð er um liðið frá því þetta
var gert síðast en með þessu
má gera sér nokkra grein fyrir
hvaða áhrif má ætla að komi
fram í kúastofninum með notk-
un þeirra nauta sem valin eru til
framhaldsnotkunar.
Í byrjun er rétt að rifja upp hvað
er verið að mæla. Úrvalsnýting fyrir
ákveðinn eiginleika sýnir yfirburði
þeirra nauta, sem valin eru til fram-
haldsnotkunar, í samanburði við
það sem mögulega hefði mátt ná
fram ef aðeins hefði verið valið
fyrir þeim eiginleika og engum
öðrum. Þegar valið er fyrir mörg-
um eiginleikum á sama tíma er
illmögulegt að ná fram jákvæðu
vali fyrir þeim öllum á sama tíma.
Ástæða þess er ekki hvað síst að
margir þeirra eiginleika sem valið
er fyrir eru neikvætt tengdir inn-
byrðis og því verður sú útkoma
ákaflega ólíkleg.
Hér verður litið á úrvalsnýtingu
nauta fæddra árin 2012, 2013 og
2014 en afkvæmadómi þeirra er
lokið. Þessir árgangar voru allir til-
tölulega stórir á okkar mælikvarða
en í árgangi 2012 voru 26 naut, 25
naut í árgangi 2013 og 29 naut í
2014 árgangi. Til áframhaldandi
notkunar komu 7 naut úr árgöngun-
um 2012 og 2014 og 8 naut úr 2013
árgangnum. Á þessu má sjá að valið
hefur verið nokkuð strangt og kröf-
urnar miklar til þeirra nauta sem
komast til notkunar sem reynd naut.
Ef við horfum fyrst til nauta
fæddra 2012 þá kemur fram einhver
sú jákvæðasta mynd sem hægt er
hugsa sér varðandi úrvalsnýtingu
þar sem hún er jákvæð fyrir öllum
eiginleikum nema fituhlutfalli. Þar
stendur úrvalsnýtingin mjög nærri
0 sem þýðir að þessi naut munu
lítil sem engin áhrif hafa á þann
eiginleika, hvorki til hækkunar
eða lækkunar. Eðlilega kemur
hæst úrvalsnýtingin fram í heildar-
einkunn enda sú einkunn sem ræður
hvað mestu um val nautanna. Eina
frávikið frá 100% úrvalsnýtingu
gagnvart heildareinkunn er Eitill
12022 sem því miður gaf það afleita
júgurgerð þrátt fyrir háa heildar-
eikunn að hann kom ekki til álita
til framhaldsnotkunar. Annað sem
óneitanlega vekur athygli er hve
há úrvalsnýting þessa árgangs er
fyrir eiginleika eins og júgur, spena,
mjaltir, skap og endingu. Þess er því
að vænta að áhrif 2012 árgangsins
verði þau að bæta mjög þessa eig-
inleika í kúastofninum.
Úrvalsnýting nautanna frá 2013
og 2014 er saman á mynd. Þarna má
aftur sjá ákaflega jákvæða mynd
þó niðurstaðan sé ekki jafngóð
hinni stórgóðu niðurstöðu 2012
nautanna. Við samanburð þessara
tveggja árganga er einnig rétt að
hafa í huga að í 2014 árgangi eru
7 af 29 nautum valin til fram-
haldsnotkunar en 8 af 25 í 2013
árg. sem þýðir að úrvalsstyrk-
ur 2014 nautanna er mun hærri.
Niðurstaðan ber kannski keim af
því þar sem við sjáum gríðarháa
úrvalsnýtingu þess árgangs hvað
varðar heildareinkunn, afurðaþætti,
mjaltir og skap. Ef horft er til 2013
árgangsins er eftirtektarvert hversu
há úrvalsnýting fyrir frjósemi er í
hópi þessara nauta. Þar verður þó
að hafa í huga að mat fyrir frjósemi
byggir á bili milli burða og því er
mat nautanna á þessum tímapunkti
að verulegu leyti byggt á ætterni.
Eigi að síður gefur þetta vís-
bendingar um það sem vænta má.
Eini neikvæði þátturinn hjá þess-
um árgöngum tveimur er frumutala
og því er ekki hægt að reikna með
að þau muni bæta júgurhreysti í
stofninum. Hið gagnstæða á við
um flesta aðra eða nánast alla aðra
eiginleika. Þar er að vænta veru-
legra framfara með notkun þessara
nauta ef svo fer fram sem horfir.
Einkum er áhugavert og um leið
ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir háa
úrvalsnýtingu og þar með sterku
vali gagnvart mjólkurmagni í 2014
árg. er úrvalsnýting gagnvart efna-
hlutföllum ekki neikvæð svo neinu
nemi þó svo milli magns og efna
sé neikvæð fylgni. Fyrir nautin
fædd 2013 er þetta aðeins öðruvísi.
Þar er úrvalsnýting fyrir mjólkur-
magni ekki mjög há en um leið
jákvæð gagnavart efnaþáttunum.
Þá er þessi árgangur breytilegri en
hinir tveir þannig að úrvalsnýting
fyrir t.d. heildareinkunn verður
með aðeins öðru sniði en hinum
árgöngunum tveimur.
Niðurstaðan segir okkur fyrst
og fremst að þessi nautaárgangar
eru góðir til úrvals því þar komu
fram margir einstaklingar sem ná að
sameina mikla kosti í mörgum eig-
inleikum sem færa munu íslenska
kúastofninn feti framar.
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í nautgripa-
rækt
mundi@rml.is
Garðyrkjuritið:
Eitt hundraðasta tölublað
Garðyrkjufélag Íslands er eitt
af allra elstu félögum landsins,
stofnað árið 1885. Frá 1895 hefur
félagið gefið út Garðyrkjuritið
með hléum. Fyrir stuttu kom út
100. árgangur þessa merka rits.
Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri
ritsins, segir að í tilefni 100 ára
útgáfusögu Garðyrkjuritsins hafi
hún flett í gömlum árgöngum og
það hafi vissulega komið henni á
óvart hversu klassískt efnið í gömlu
blöðunum er. „Efni blaðsins að þessu
sinni er ekki síður fjölbreytt og fróð-
legt og það ætti að höfða til bæði
áhuga- og fagfólks í garðyrkju og
ræktun.“
Meðal efnis að þessu sinni er
ávarp Bjarkar ritstjóra og Ómars
Valdimarssonar, formanns félags-
ins. Meðal höfunda að þessu sinni
eru Tómas Atli Ponzi, sem segir
frá tilraunum með ný tómata-
afbrigði, Jóhann Pálsson, Ásta
Þorleifsdóttir og Vilhjálmur
Lúðvíksson fjalla um rósir auk
þess sem Hafsteinn Hafliðason
segir frá rósinni 'Harison´s
Yellow', Kálfafellsrófunni
og fjölskyldunni á Kálfafelli.
Kristján Friðbertsson, sem er
bráðskemmtilegur penni, rekur
ævintýri rifsþélunar og segir sögu
fingurbjargablóma. /VH
GARÐYRKJUFÉLAG ÍSLANDS
Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri Garðyrkjuritsins.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 20. maí