Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202056
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Hægeldaðir lambaskankar með rauðvínssósu
Hér er sígild leið til að útbúa
lambaskanka, sem er mjög auð-
velt. Allt er hægsoðið í rauðvíni
með bragðgóðu grænmeti þar
til allt er mjúkt og bragðgott,
rauðvínið, grænmetið og lambið,
safinn umbreytist í bragðmikla
sósu. Bakið í ofni, eða jafnvel látið
malla á eldavél í potti með loki.
Lambaskankar
Hráefni
› 4 lambaskankar
› 1 tsk. salt og pipar
› 2–3 msk. ólífuolía
› 1 bolli laukur, gróft saxaður
› 3 hvítlauksrif, söxuð fínt
› 1 bolli gulrót, stórir teningur
› 1 bolli sellerí, stórir teningur
› 2 bollar / 700 ml rauðvín
› 800 g tómatar í dós
› 2 msk. tómatmauk
› 2 bollar / 500 ml kjúklingasoð (eða
vatn og kraftur)
› 5 kvistir timjan (helst bundnir saman),
eða 2 tsk. þurrkað timjan
› 2 stk. þurrkuð lárviðarlauf (eða 4
fersk)
› Kartöflumús
Aðferð
Hitið ofninn í 180 gráður. Þerrið
lambaskankana með eldhúsbréfi og
stráið salti og pipar yfir. Hitið 2 msk.
af ólífuolíu í stórum potti yfir miklum
hita. Steikið lambaskankana í 2 lotum
þar til þeir eru brúnaðir úti um allt, um
það bil 5 mínútur. Setjið lambakjötið
yfir á disk og hellið af umfram fitu
(ef einhver er) úr pottinum. Lækkið
hitann niður í miðlungs stillingu.
Hitið 1 msk. af ólífuolíu í viðbót í
sama pottinum, ef meira þarf. Bætið
lauknum og hvítlauknum við, eldið í
2 mínútur. Bætið gulrót og sellerí við.
Eldið í 5 mínútur þar til laukurinn er
hálfgagnsær og sætur.
Bætið við rauðvíni, kjúklinga
soði, maukuðum tómötum í dós,
tómatpúrru, timjan og lárviðarlauf
um. Hrærið vel og blandið saman.
Setjið lambaskankana í pottinn og
passið að skankarnir séu að mestu
leyti í kafi eða til hálfs.
Hækkið hitann að miðlungs still
ingu, látið malla. Lokið og flytjið
síðan yfir í ofn í 2 klukkustundir.
Takið úr ofninum og lokið af og setj
ið síðan aftur í ofninn í 30 mínútur
í viðbót (svo þetta séu tvær og hálf
klukkustund samtals). Gangið úr
skugga um að lambakjötið sé mjúkt
viðkomu – ef ekki skuluð þið hylja
það og halda áfram að elda það í
ofni. Best er að það sé þannig að
það sé mjúkt viðkomu en helst samt
fast við beinið.
Færið lambakjötið yfir á disk og
haldið heitu. Takið lárviðarlauf og
timjan úr.
Sigtið sósuna í pott og þrýstið á
eftir með ausu til að fá kraftinn úr
grænmetinu. Hellið sósunni aftur í
pottinn. Látið malla yfir miðlungs
hita og sjóðið aðeins niður eða
þykkið eftir smekk. Smakkið síðan
til með salti og pipar. Berið fram
lambaskanka á kartöflu mús eða
blómkálsmauki með nóg af sósu!
Kjúklingakryddblöndur
Hér eru svo tvær auðveldar og hollar
kjúklingakryddblöndur sem hjálpa þér
að rokka upp grillveisluna! Þessar
marineringar eru hollar og afar bragð
miklar.
Karrý kjúklingakrydd
› 1 tsk. avókadó- eða ólífuolía
› 1/2 bolli kókosmjólk
› 2 tsk. karríduft
› 1/2 msk. Garam Masala
› 1/2 tsk. túrmerikduft
› 1 rif hvítlaukur hakkaður fínt
› 1/2 tsk. engiferduft
› 1 tsk. salt
Chimichurri kjúklingakrydd
› 2 msk. avókadó- eða ólífuolía
› 1/2 bolli ferskur kóriander
› 1/2 jalapeno chili
› 1/4 bolli rauðlaukur
› 1 hvítlauksrif
› 1 tsk. salt
› lime-safi
Karríkjúklingur – aðferð
Blandið saman öllum innihaldsefnum
í skál og hellið síðan yfir kjúklinginn
í rennilásapoka. Innsiglið og geymið
í ísskáp eða frysti.
Chimichurri kjúklingur – aðferð
Setjið öll innihaldsefnin í matvinnslu
vél og „púlsið“ nokkrum sinnum til að
sameina, hellið síðan yfir kjúklinginn
í renniláspoka og geymið í ísskáp eða
frysti.
Grillið í gegn og framreiðið með kaldri
sósu og salati að eigin vali.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Á Selalæk hafði búið sama
fjölskyldan síðan 1946 þang-
að til við kaupum af þeim
Bjarna Jónssyni og Kristínu
Bragadóttur og tökum við
búinu þann 11. febrúar 2020.
Býli: Selalækur 2.
Staðsett í sveit: Selalækur er
staðsettur á Rangárvöllum.
Ábúendur: Þorgeir Þórðarson
og Sólveig Mekkin Eggertsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Þorgeir og Sólveig Mekkin ásamt
4 börnum; Antonía Líf, 14 ára,
Glódís Líf, 10 ára, Indíana Líf
og Þór Karel sem eru bæði 7 ára
og 2 hundar og slatti af köttum.
Stærð jarðar? 218 ha og þar af
90 ha ræktaðir.
Gerð bús? Mjólkurkýr og sauðfé.
Fjöldi búfjár og tegundir? 62
mjókurkýr, 57 kvígur, 55 naut,
40 kindur og 2 hrútar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Byrjum daginn á því að mjólka
kýrnar eftir mjaltir eru svo er það
nokkuð breytilegt eftir dögum og
árstíma.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er nú ekkert sem
er skemmtilegra en annað, þetta
er svo fjölbreytt en heyskapurinn
kemur samt upp í hugann þegar
meður fer svona yfir störfin.
Leiðinlegast þegar gripur veik
ist eða drepst og þegar það bilar
eitthvað í mjaltakerfinu.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Það verður tíminn svo
lítið að leiða í ljós. Róbót er á
innkaupalistanum og svo stefnum
við bara á að lifa og njóta.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í framleiðslu íslenskra
búvara? Mjólkurframleiðsla og
svo höldum við að grænmetis
rækt á Íslandi eigi gott tækifæri
núna.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ab mjólk, egg og rabar
barasulta.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Grillað folaldakjöt
og með því.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar yngsta dóttirin
(7 ára) á bænum spurði pabba
sinn í mjöltum hvort að það kæmi
nýr pungur á kúna þegar þessi
pungur væri búinn, benti á júgrað
á kúnni, mjög hugsi á svip.
Selalækur