Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202058
LESENDABÁS
Gyðjur, goðsagnir og hið góða samfélag kvennanna – fyrri hluti
Hugmyndir kvenfrelsaranna um
gyðjuveldið eða kvenyndissamfé-
lagið, þ.e. um söguskeið hinnar
miklu móður eða hinnar frjáls-
bornu konu, eru einkum sóttar til
þriggja karla; þýska fornfræðings-
ins, Friedrich Wilhelm Eduard
Gerhard (1795-1867), svissneska
lög- og fornfræðingsins Johann
Jakob Bachofen (1815-1887) og
þýska heimspekingsins, Friedrich
Engels (1820-1895). Friðrík
Vilhelm setti fyrstur manna fram
þá hugmynd, að fornar gyðjur
ættu allar ættir sínar að rekja til
einnar ævafornrar gyðjumóður.
Í hinu mikla verki sínu,
„Móðurréttinum“ (Das Mutterrecht),
gerði Johann sér í hugarlund, að
samfélög manna hefðu þróast úr
svokölluðu móðurveldi, þar sem
konur og gyðjur réðu ríkjum. Friðrik
útfærði hugmyndina og færði rök
fyrir því, að eignarhald karla á fram-
leiðslutækjunum hefði valdið synda-
fallinu. Þar með festi feðraveldið
rætur. Aukin heldur taldi Friðrik,
að bylting öreiganna myndi færa
konunni frelsun frá veldi feðranna.
En það var Marija Gimbutas
(Marija Biruté Alseikaité (1821-
1994)) hinn víðkunni og mikilhæfi
fornleifa- og mannfræðingur, fædd
í Vilnius í Lithaugalandi (Litháen),
sem gaf gyðjuhugmyndasmiðunum
byr undir báða vængi. María var fjöl-
hæfur vísindamaður, m.a.kunn fyrir
gyðjurannsóknir sínar, samanteknar
í bókinni „Gyðjumenningunni“ (The
Civilization of the Goddess), sem út
kom árið 1991. Fornleifar og niður-
stöður tungumálarannsókna túlkaði
hún á þann veg, að í Evrópu hefði
ríkt gyðju-, móður- og kvenmiðuð
(e.gynocentric, matristic) steina-
ldarmenning, sem einkenndist af
jafnræði, jöfnuði, kvenvirðingu og
friðsemd. Þessi menning var, sam-
kvæmt túlkunum hennar, upprætt
af herskáum föðurveldis- eða karl-
veldisþjóðflokkum (androcratic,
patrhiarchal) frá steppunum austan
Svartahafs eða hinni fornu Evrópu,
sem hún kallar svo.
Kenningar Maríu hafa aukið
andagift smiðum gyðju- og norna-
trúarbragða, þar sem dýrkaður
er frjósemismáttur samlyndis- og
jafnréttiskvenna í nánu sambandi
við hrynjandi náttúrunnar, firrt-
ar tortímandi og kúgandi körl-
um, sbr. bók Starhawk (Miriam
Simos), „Vafningsdansinn: upprisa
hinna fornu gyðjutrúarbragða“
(The Spiral Dance. A Rebirth of
the Ancient Religion of the Great
Goddess). (Starhawk þessi hefur
staðið að gerð heimildarmyndar um
Maríu, „Tímanna tákn“ (Signs Out
of time)).
Fyrstu hugleiðingar Maríu um
gyðjumenninguna komu út um það
leyti, sem önnur bylgja kvenfrelsunar
reið yfir (á sjöunda og áttunda áratugi
síðustu aldar). Kvenfrelsarar gripu
hugmyndir hennar á lofti, enda hent-
uðu þær vel spuna þeirra um kúgun
karla.
Norður-ameríski fornleifa-
fræðingurinn og umsjónarmaður
safns Maríu, Ernestine Elster, segir:
„Það voru kvenfrelsarar, sem í hug-
myndum Maríu fundu þá fræði-
mennsku, sem þeir vonuðu að styðja
mundu hugmyndir þeirra sjálfra um,
að Guð væri kona. Maríu var lyft
til hæstu hæða af hópi áhugasamra
kvenna og karla. Sjálf leit hún aldrei
um öxl.“
Vék kvenyndissamfélagið
fyrir feðraveldinu?
Kvenyndissamfélaginu var sem sé
rústað af morðóðum þjóðflokkum
að austan og enn var höggvið í sama
knérunn, þegar kristni var lögtekin í
Rómarveldinu. En, en! Hin forna trú
lifði í leynum. Því var það, að kirkjan
réðist til atlögu á fjórtándu öldinni til
þess að uppræta hina fornu trú endan-
lega, segja kvenfrelsararnir. Úr hópi
frumherja fyrstu bylgju kvenfrelsunar
hafði Matilda Joslyn Gage (1826-
1898) hreyft hugmyndum þess efnis,
að kirkjan hefði dulbúið útrýmingu
stoltra, sjálfráðra og státinna kvenna
sem nornaveiðar á miðöldum.
Kvenfrelsarar á borð við Marilyn
French (1929-2009), Barbara
Ehrenreich (f. 1941), Gloria Steinem
(f. 1934) og Deidre English (f. 1948),
tóku þessum hugmyndum opnum
örmum.
Ofangreindir kvenfrelsarar
annarrar bylgju telja það sögulega
staðreynd, að sjálfstæðar, keikar og
klárar konur, hafi verið ofsóttar í
gervi norna af evrópsku feðraveldi
. En, en! Gyðjuveldið er ævintýri.
Sömuleiðis kenningarnar um sér-
staka útrýmingu klárra kvenna á
miðöldum.
Norður-ameríski sagnfræðingur-
inn, Charlotte Allen (f. 1941) hefur
rýnt í tilurð ofangreindra kvenfrels-
unarkenninga og kvendýrkunartrúar-
bragða: „[F]ræðimenn eru almennt
einhuga um, að hvorki sé stafkrók
að finna né fornleifafundi um forn-
ar þjóðir, sem nokkurn tímann hafa
dýrkað eina frumgerðargyðju.“
Niðurstaða rannsókna á norna-
veiðum er þessi, segir Charlotte:
„Ákærðar nornir voru langt frá því
að vera sjálfstæðar konur með bein
í nefinu. Flestar þeirra voru fátækar
og óvinsælar. Þær voru dæmigert
ákærðar af almennum borgara (oft
og tíðum öðrum konum), hvorki
veraldlegum eða kirkjulegum yfir-
völdum. Satt best að segja þótti yfir-
völdum nornaréttarhöldin ógeðfelld
og sýknuðu rúmlega helming hinna
ákærðu.“
Er móðirin goðsögn?
Í bók sinni, „Goðsagnir um móð-
urgjörninginn. Hvernig menningin
endurskapar hina góðu móður“ (The
myths of motherhood: How culture
reinvents the good mother), spinnur
Shari L. Thurer, sálfræðingur og sál-
könnuður, prófessor við háskólann í
Boston, áþekkar hugmyndir áfram:
„[F]eðraveldið, altæk [alheims]
drottnun karla á konum, hefur verið
við lýði allar götur síðan [mæðra-
veldinu var tortímt].“ Konan varð
fórnarlamb: „[F]eðraveldisvaldar-
ánið átti sér stað, áður en ritmál kom
til sögunnar. Því hefur sérhvert rit
öðlast merkingu (refract through the
prism) í [mál]vitund karldrottnunar.
Því sem næst allur ritaður boðskapur
fyrr og síðar, hvort heldur gefinn í
skyn eða ógreinilegur (subliminal,
liminal), er þrunginn skynbragði
feðraveldisins. Allir [karlkyns]
heimssöguritarar eru vilhallir.
Heimssagan er skrifuð af sjónarhóli
sigurvegara kynjastríðsins. Og
þar eð feðraveldið er allsráðandi,
er tungan og ritmálið gagnsýrt af
því, svo að erfitt er að henda á því
reiður.“
Móðirin varð líka fórnarlamb:
„[Þ]egar framlag þeirra til æxlunar
rann upp fyrir körlum og þeir tók
tögl og haldir – og höfðu þannig
að mestu leyti hönd í bagga með
meginstraumi mannkynssögunnar
– var móðirin gerð ómennsk. Það
er, annað hvort var hún hafin upp til
skýjanna (þannig urðu mæður fangar
eigin táknupphafningar) eða gerðar
að skynlausum skepnum (degraded)
(sem litið var á sem undaneldishrys-
sur). ... Alveg síðan karldrottnunin
[brast á] hefur kynferði [konunnar]
verið klofið frá móðerni og líkams-
starfsemi. Blæðingar, barnsburður
[og] brjóstagjöf hefur þar með verið
talin ótilhlýðileg [eða klúr].“
Framhald í næsta tölublaði.
Arnar Sverrisson
Höfundur er ellilífeyrisþegi
og uppgjafarbóndi.
Ótilgreindar þýðingar eru hans.
Arnar Sverrisson.
MENNING&SAGA
FISKNYTJAR&NÁTTÚRA
Málið varðar Áhættumat erfða-
blöndunar sem fyrst var gefið
út af Hafrannsóknastofnun árið
2017 og endurskoðað árið 2020.
Um 1.000 eldislaxar voru fjar-
lægðir úr norskum laxveiðiám á
síðasta ári.
Tryggja fjárhagslega hagsmuni
Áhættumat erfðablöndunar virð-
ist ganga út á að tryggja fjárhags-
lega hagsmuni laxeldisfyrirtækja
í meirihlutaeigu erlendra aðila en
hefur mjög takmarkað ef nokkuð
með umhverfisvernd að gera. Skv.
endurskoðuðu áhættumati á að
auka framleiðsluheimildir til eldis
á frjóum eldislaxi. Fáir hafa lagt í
að stíga fram og gera athugasemdir
við Áhættumat erfðablöndunar.
Af skiljanlegum ástæðum stíga
forustumenn laxeldisfyrirtækja
ekki fram með gagnrýni enda eru
mjög miklir hagsmunir undir ef
Áhættumat erfðablöndunar verður
fellt úr gildi.
Áhættumat erfðablöndunar til
að stjórna framleiðsluheimildum
Laxeldisfyrirtæki fóru offari að
sækja um framleiðsluheimildir
fyrir laxeldi í sjókvíum. Áhættumati
erfðablöndunar var ætlað að hemja
uppbyggingu eldis á frjóum laxi og
var á árinu 2017 komið með tillögur
sem voru samþykktar á Alþingi árið
2019 þar sem var lagt til 71.000
tonna framleiðsluheimildir. Það
kemur síðan á óvart að strax árið
2020 leggur Hafrannsóknastofnun til
um 20% aukningu framleiðsluheim-
ilda með að leika sér með forsendur,
sem eru vafasamar eða beinlínis
rangar. Áður hefur verið fjallað
um þau vinnubrögð sem hafa verið
viðhöfð við undirbúning og gerð
laga um fiskeldi í Morgunblaðinu en
hér verður lögð áhersla á að fjalla um
þann skaða sem Áhættumat erfða-
blöndunar kann að valda á íslenskum
laxastofum.
Ekkert áhættumat
Fyrsta mikilvæga atriðið við áhættu-
matsvinnu er að reyna að koma í veg
fyrir, í þessu tilviki, erfðablöndun.
Fara strax í að ,,byrgja brunninn áður
en barnið fellur ofan í hann“ en ekki
fara þá leið sem Áhættumat erfða-
blöndunar felur í sér að fylgjast með
og ,,telja fjölda barna sem falla ofan
í brunninn“ án þess að grípa strax til
viðeigandi aðgerða. Ef markmiðið
er að koma strax í veg fyrir skaða er
rétta leiðin að setja ,,lok á brunninn“
með að hindra uppgöngu eldislaxa
eða fjarlægja úr veiðivatni fyrir
hrygningu. Sérstakt áhyggjuefni er
að Áhættumat erfðablöndunar hefur
minna verndargildi en felst í þeim
mótvægisaðgerðum sem best hafa
reynst t.d. í Noregi. Í Áhættumati
erfðablöndunar er verið að verja
stærri laxveiðiár og að fórna minni
veiðivötnum með laxi.
Getur haft jákvæð áhrif
Það hefur verið heimilt að vera með
eldi á frjóum norskum laxi í sjó-
kvíum á Íslandi á ákveðnum svæðum
í tæpa tvo áratugi. Sjálfsögðu má
taka umræðu um það hvort heimila
eigi laxeldi í sjókvíum við Ísland en
sú umfjöllun verður ekki tekin fyrir
hér. Þó að samkeppnishæfni laxeldis
í sjókvíum á Íslandi sé mjög erfið ef
markaðsverð á laxi lækkar þá getur
uppbygging á eldinu haft jákvæð
áhrif á viðkvæm samfélög ef vandað
er til verka. Sú uppbygging má þó
ekki vera á kostnað íslenskrar nátt-
úru, einfaldlega vegna þess að auð-
velt er að koma í veg fyrir neikvæð
áhrif eða halda í algjöru lágmarki.
Það þarf að bæta vinnubrögðin
Ef unnið verður áfram að upp-
byggingu sjókvíaeldis á laxi eins og
gert hefur verið á síðustu árum drifið
áfram af aðilum sem hafa fjárhags-
legan ávinning að leiðarljósi þá mun
það hafa neikvæð áhrif á umhverfið
og er það ekki eingöngu bundið við
erfðablöndun. Staðreyndin er sú að
Íslendingar standa öðrum löndum
að baki í umhverfismálum laxeldis
í sjókvíum. Umhverfisvernd eða
öflugum mótvægisaðgerðum getur
fylgt verulegur kostnaður sem
minnkar jafnframt fjárhagslegan
ávinning laxeldisfyrirtækja. Fram
að þessu virðist takmarkaður vilji
hafa verið til að taka á þessu verkefni
af atvinnugreininni og stjórnvöldum.
Ef menn fara ekki að gæta sín geta
málin þróast í þann farveg að allt
eldi á frjóum laxi í sjókvíum verði
bannað á Íslandi eins og dæmi eru
um erlendis.
Í næstu greinum verður fjallað
um vankanta Áhættumats erfða-
blöndunar og leiðir til að draga úr
hættu á erfðablöndun.
Valdimar Ingi Gunnarsson
Höfundur er sjávarútvegs-
fræðingur og hefur m.a. unnið
við ýmis mál tengd fiskeldi í
rúm þrjátíu ár.
Áhættumat erfðablöndunar – Hver passar upp á íslenska náttúru?
Valdimar Ingi Gunnarsson.
Sjókvíaeldi. Mynd / VIG
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?