Bændablaðið - 19.03.2020, Side 2

Bændablaðið - 19.03.2020, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 20202 Engar vísbendingar eru um að SARS-CoV-2 veiran sem veldur COVID-19 sjúkdómnum ber- ist með matvælum samkvæmt áliti Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Þrátt fyrir það hafa íslenskir matvælaframleiðendur gert ráðstafanir til að takmarka aðgengi og draga þannig úr smit- hættu. Talsmenn Matfugls og Mjólkur­ samsölunnar segjast vera búnir að takmarka aðgengi að fyrirtækjun­ um og fara eftir tilmælum land­ læknis. Ekkert bendir til smits með matvælum Samkvæmt því sem segir á heimasíðu Mast hefur EFSA bent á að reynsla fyrri faraldra af völdum skyldra kórónaveira, s.s. SARS­CoV og MERS­CoV faraldrarnir, sýni að smit átti sér ekki stað með matvælum. Sem stendur bendir ekkert til þess að annað eigi við um þann faraldur sem nú geisar. Stjórnvöld og vísindamenn um heim allan fylgjast náið með þróuninni og hefur ekki verið tilkynnt um smit með matvælum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út ráðleggingar um meðhöndlun matvæla í varúðarskyni þar sem hvatt er til handþvottar, að hita kjöt í gegn og að forðast krossmengun milli eldaðra og hrárra matvæla. Nánari upplýsingar er að finna á vef WHO. Allir fundir rafrænir „Gæðaráð Mjólkursamsölunnar er í reglulegu sambandi við Embætti landlæknis og við höfum breytt starfseminni til að aðlaga okkur að þessum nýju aðstæðum,“ segir Sunna Marteinsdóttir, samskiptastjóri Mjólkursamsölunnar. „Við höfum aflýst öllum ónauðsyn legum heimsóknum og ein ungis starfsfólk hefur aðgang að hús unum nema nauðsyn krefji. Auk þess eiga allir fundir starfsfólks við utanaðkomandi að fara fram á netinu. Uppsetn ingu og viðhaldi véla hefur einnig verið frestað í óákveðinn tíma. Það má því segja að einungis sé um allra nauðsynlegustu starfsemi að ræða.“ Sunna segir að ef í ljós komi að smit greinist hjá starfsmanni MS verði unnið með það í samstarfi við landlækni. „Við reynum að takmarka samskipti fólks milli deilda innanhúss eins og hægt er og flestir innanhúss­ fundir eru rafrænir. Starfsmönnum er skammtaður matur tilbúinn á disk og því fólk ekki að hittast að óþörfu ef hægt er.“ Förum að fyrirmælum landlæknis Sveinn Jónsson, framkvæmda stjóri Matfugls ehf., segir að fyrirtækið sé búið að loka fyrir allar heimsóknir og að enginn hafi aðgang að fyrirtækinu nema starfsmenn. „Við erum búin að loka fyrir allar heimsóknir í okkar fyrirtæki, hvort sem það eru sölumenn eða aðrir sem vilja kynna sér starfsemina. Svo er það Embætti landlæknis að ákveða hvað verður gert ef það kemur í ljós að einhver starfsmaður innan fyrir­ tækisins smitist og mæti til vinnu án þess að vita af því. Við báðum starfs­ fólk um að veita okkur upplýsingar um hvort það hafi verið á ferðalagi á svæðum sem eru skilgreind hættu­ svæði eða sé á leiðinni á slík svæði. Því var vel tekið og ekkert sem bendir til að um slík ferðalög hafi verið að ræða eða séu á döfinni. Við erum því að reyna að girða fyrir smit eftir bestu getu. Mér skilst að veiran smitist ekki með matvælum en við munum að sjálfsögðu fara eftir fyrirmælum landlæknis ef staðan breytist og ég er sannfærður um að embættið hafi góða yfirsýn og muni bregðast rétt við.“ /VH FRÉTTIR TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér HAFÐU SAMBAND 511 5008 Landsmót hestamanna 2020 verður haldið á Rangárbökkum við Hellu 6. til 12. júlí: Undirbúningur gengur vel og miðasalan komin á skrið Eiríkur Sigurðarson, fram- kvæmda stjóri Landsmóts hesta- manna, segir áfram unnið á fullu að undirbúningi lands mótsins í sumar, þrátt fyrir að kórónaveir- an og COVID-19 sjúkdómsfar- aldurinn hafi stungið sér niður á Íslandi. Mótið verður að öllu óbreyttu haldið á veglegu mótssvæði á Gaddstaðaflötum á Rangárbökkum við Hellu 6. til 12. júlí á komandi sumri. „Við keyrum fulla ferð áfram, það er engin spurning. Meðan það koma ekki einhver tilmæli um að viðburðurinn verði ekki haldinn, þá höldum við bara áfram. Auðvitað erum við þó meðvitaðir um við­ búnað gegn útbreiðslu COVID­ 19, annað væri ábyrgðarleysi. Undirbúningur gengur vel og miðasalan er komin vel á skrið,“ segir Eiríkur. Engar afbókanir frá erlendum gestum Eiríkur var starfandi sem markaðs­ og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra, en fékk ársleyfi frá störfum til að stjórna framkvæmd Landsmóts hestamanna 2020. Venjan er að á slík mót komi líka fjöldi útlendinga sem þarf að liðsinna. – Má ekki búast við að það verði færri erlendir gestir á mótinu vegna COVID-19 faraldursins? „Það er eiginlega ómögulegt að segja. Það hefur enginn afboðað komu sína enn og ég hef ekki fengið neinar fréttir af afbókunum í gistingu. Ég er því bara bjartsýnn á framhaldið. Þá býst ég við vegna stöðunnar sem uppi er að Íslendingar ferðist meira innanlands í sumar en ella. Þá er Landsmót hestamanna algjör­ lega „geggjaður viðburður“ til að fara á með fjölskylduna. Þar fyrir utan verður flughátíðin Allt sem flýgur“ haldin á sama tíma á Hellu á vegum Flugmálafélagsins. Það er því óhætt að segja að Hella verði miðdepill alheimsins í júlí. Þá held ég að hátíðirnar tvær muni styðja vel hvor aðra og engin spurning að hér á Hellu verður mikið fjör.“ Búist við 8–10 þúsund manns – Hvað eruð þið að reikna með mörg um á Landsmót hestamanna? „Ég geri ráð fyrir um átta þúsund manns, en reynslan sýnir að talan geti hæglega farið í tíu þúsund. Metið var sett á mótinu 2008 þegar hingað komu um eða yfir 14.000 manns. Við getum svo sem alveg tekið á móti þeim fjölda inn á svæðið í sumar. Hér eru næg bílastæði og allar akstursleiðir greiðfærar. Þá má geta þess að áhorfenda­ brekkurnar á mótssvæðinu eru afskap lega vel gerðar til að mik­ ill fjöldi gesta geti fylgst þar með mótinu. Í góðu veðri er þetta falleg­ asti staður á landinu,“ segir Eiríkur. Mikið og gott gistiframboð á svæðinu – Eruð þið vel sett með gistirými á svæðinu til að taka við öllum þessum fjölda? „Gistiframboðið er mjög gott. Það er samt auðvitað að verða þéttbókað gistirými í kringum landsmótið. Á Hellu erum við með Stracta hótel, Hótel Hellu og Árhús. Svo erum við með í kringum okkur, Land hótel uppi í Landsveit, Leirubakka og Hótel Rangá. Síðan er Hótel Hvolsvöllur auk margra minni gistieininga á svæðinu. Þá er ekki nema hálftíma akstur í hótel og aðra gistiþjónustu á Selfossi. Fyrir utan gistirýmið sem til staðar er, munum við byggja upp stórt tjaldstæði á mótssvæðinu. Alla jafna er hægt að taka þar á móti 250 hjólhýsum, en við verðum með aðstöðu fyrir töluvert fleiri vegna mótsins. Þess vegna aukum við salernisaðstöðu og alla þjónustu sem til þarf og allt aðgengi að svæðinu er mjög gott.“ Fjöldi kynbótasýninga á Hellu í sumar Eiríkur segir að nú sé verið að skipuleggja uppsetningu á mótssvæðinu sjálfu. Hvaða fram­ kvæmd um þurfi að vera lokið á tilteknum tíma. Þá sé ekki bara verið að horfa til landsmótsins sjálfs, því svæðið sé afskaplega vinsælt fyrir kynbótasýningar og keppni þess utan. „Fyrir utan landsmót erum við þarna með fyrstu þrjár vikurnar í júní í kynbótasýningum. Síðan erum við með úrtökumót þar sem nokkur félög taka sig saman. Þá erum við með eina viku í kynbótasýningar fyrir utan landsmót í júlí og eina viku í ágúst, auk allavega tveggja móta í hverjum mánuði. Það verður því í nógu að snúast og uppsetning á svæðinu þarf auðvitað að vera skipulögð í kringum alla þessa viðburði,“ segir Eiríkur. Fyrirtæki sýna vörur sínar í 900 fermetra tjaldi Á landsmótum hefur verið venjan að fjöldi fyrirtækja sýni þar vörur af ýmsu tagi. Eiríkur segir að gert sé ráð fyrir uppsetningu á 900 fermetra markaðstjaldi á svæðinu. „Það er einmitt komið töluvert af fyrirspurnum um bókanir í því tjaldi. Gaman er að finna að það sé engan bilbug að finna á fólki þrátt fyrir ástandið í þjóðfélaginu. Menn vilja halda ótrauðir áfram. Þar verða því fjölbreyttar vörur á boðstólum.“ Kvöldskemmtanir þrjá daga í röð Gleðin spilar líka veglegan sess á landsmótum hestamanna og böllin eru landsfræg. „Það verða hér kvöldskemmtanir á fimmtudeginum, föstudeginum og á laugardeginum. Það er að verða búið að staðfesta alla samninga við skemmtikrafta sem munu koma fram á mótinu,“ segir Eiríkur Sigurðarson. /HKr. – Meira um landsmótið á síðu 10 Frá setningu síðasta Landsmóts hestamanna sem haldið var á Rangárbökkum á Hellu 2014. Mynd / HKr. Eiríkur Sigurðarson. SARS-CoV-2 og matvælaframleiðsla: Takmarkað aðgengi og farið að tilmælum landlæknis Sveinn Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls ehf. Sunna Marteinsdóttir, samskiptastjóri Mjólkursamsölunnar.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.