Bændablaðið - 19.03.2020, Page 5
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 5
Fyrir tæpri viku síðan var sett
á fót viðbragðsteymi Bænda
samtakanna vegna kórónu veiru
faraldursins. Teymið hefur fundað
daglega í þessari viku og unnið
að ýmsum málum sem tengjast
landbúnaði, matvælaframleiðslu
og búrekstri. Afleysingaþjónusta
er í startholunum og samtökin eru
í góðu samstarfi við stjórnvöld
um úrlausn nokkurra mála. Sem
dæmi er rætt um viðbrögð við
afurðatjóni og vinnutapi, áhrif
sóttkvíar á starfsemi bænda og
matvælafyrirtækja, flutninga,
fóður, lyfja og áburðarbirgðir
og breyttar aðstæður á
vinnumarkaði. Í síðustu viku
hvöttu Bændasamtökin til þess að
bændur takmörkuðu heimsóknir
á sín bú vegna smithættu.
Afleysingaþjónusta
Búnaðarsamböndin og Bænda
samtökin hafa tekið höndum saman
um að koma á fót afleysingaþjón
ustu fyrir bændur ef veikindi vegna
veirunnar hamla búrekstri. Á þriðju
dag fór auglýsing í loftið þar sem
óskað var eftir fólki til að sinna af
leysingastörfum. Fókusinn er settur
á einyrkja og minni bú en ekki stærri
bú eða sérhæfðari störf. Þjónustan
verður kynnt nánar þegar fjöldi af
leysingafólks liggur fyrir. Þau sem
geta lagt sitt af mörkum geta sent
tölvupóst í netfangið afleysing@
bondi.is. Guðbjörg Jónsdóttir, verk
efnastjóri hjá BÍ, heldur utan um
afleysingaþjónustuna.
Afurðatjón og mögulegt vinnutap
Viðbragðsteymið byrjaði strax að
undirbúa skráningu á mögulegu
afurðatjóni og vinnutapi sem
hlýst af COVID19. BÍ eru í
samskiptum við sjávarútvegs og
landbúnaðarráðuneytið og vonir
standa til þess að hægt verði að skrá
miðlægt upplýsingar sem varða tjón.
Ekkert er í hendi um mögulegar bætur
en fyrst og fremst er lögð áhersla á
skráningar á þessu stigi.
Starfsemi afurðastöðva og
annarra matvælafyrirtækja
Margir hafa velt því fyrir sér
hvað gerist þegar og ef starfsfólk
afurðastöðva eða annarra
matvælafyrirtækja veikist og hvort
starfsemin lamist ef upp kemur
víðtækt smit. Almennt virðast
viðbragðsáætlanir fyrirtækja vel
unnar og skýrar. Fjölmörg fyrirtæki
hafa hólfað starfsemi sína niður
og æ fleiri starfsmenn, sem það
geta, vinna heiman frá sér. Víða
er heimsóknabann í fyrirtæki
eða umferð utanaðkomandi aðila
lágmörkuð.
Vinnumarkaðsmál
Fyrirkomulag á vinnustöðum er víða
með öðru sniði vegna veirunnar.
Álitamál eru uppi um nokkur
atriði sem varða kjaramál og önnur
réttindi starfsfólks. BÍ hafa sett sig
í samband við Vinnumálastofnun
og helstu stéttarfélög til þess að
tryggja hnökralausa starfsemi.
Jafnframt er fylgst með frumvarpi
félagsmálaráðherra um greiðslu
hlutaatvinnuleysisbóta vegna lægra
starfshlutfalls og frumvarpi um
framlög ríkisins vegna launagreiðslna
fyrirtækja til starfsmanna sem eru
í sóttkví. BÍ leggja áherslu á að
aðgerðir stjórnvalda í þessum efnum
gagnist bændum eins og öðrum.
Fóðurbirgðir, áburður,
sáðvara, lyf o.fl.
Stjórnvöld, Matvælastofnun í
samvinnu við BÍ hafa kortlagt
fóðurbirgðir í landinu og önnur aðföng
sem koma með flugi og skipleiðis.
Haft var samband við skipafélög
sem fullyrða að engar breytingar
séu áætlaðar á skipaferðum.
Upplýsingar frá fóðurfyrirtækjum,
áburðarinnflytjendum og yfirvöldum
benda til að það þurfi ekki að hafa
áhyggjur á þessu stigi af skorti
á aðföngum, s.s. á kjarnfóðri,
dýralyfjum eða áburði.
Ferðaþjónustan verður fyrir höggi
Í sumum greinum landbúnaðarins
finna bændur strax harkalega
fyrir áhrifum COVID19.
Þetta á sérstaklega við um
ferðaþjónustubændur. Afbókanir
á gistingu eru töluverðar og velta
á veitingastöðum hefur minnkað.
Það er dýrmætt að ferðamenn flytji
bókanir sínar í stað þess að draga
þær til baka. Áhersla verður lögð
á að hvetja almenning til ferðalaga
innanlands á komandi sumri.
Viðburðir bænda – aðalfundir
og skemmtanir
Á bondi.is er yfirlit um aðalfundi
félaga sem áætlaðir eru á næstu
vikum. Allmargir hafa frestað
fundum og í ljósi samkomubanns
er búið að fella niður viðburði
eins og árshátíð Landssamtaka
sauðfjárbænda og Landssambands
kúabænda. Viðbragðsteymi BÍ
hvetur bændur og aðra til að nota
fjarfundabúnað eins og kostur er.
Hugum að andlegri
og líkamlegri heilsu
Teymið hefur rætt mikilvægi
þess að bændur og allt starfsfólk
í landbúnaði hugi að andlegri
og líkamlegri heilsu. Regluleg
hreyfing er nauðsynleg og hætt
er við að kvíði geri vart við sig
hjá mörgum, ekki síst börnum. Í
þessu samhengi er gott að minna
á hjálparsíma Rauða krossins,
1717, og benda á fagfólk eins og
sálfræðinga og lækna.
Vefsíða um COVID-19
á bondi.is
Miðlun upplýsinga er mikilvæg en
Bændasamtökin mæla með því að
bændur fylgist náið með upplýs
ingum um COVID19 á vefjum
almannavarna og landlæknis.
Allar almennar leiðbeiningar er
að finna á vefnum covid.is. Á
vef Bændasamtakanna, bondi.is,
eru margs konar upplýsingar sem
beinast að bændum og öðrum mat
vælaframleiðendum.
Snorri Sigurðsson, sem búsettur
er í Kína, var í hlaðvarpsviðtali
Bændablaðsins á dögunum þar
sem hann fór yfir reynsluna af
baráttunni við COVID19 þar í
landi. Viðtalið er aðgengilegt á bbl.
is en þar brýnir Snorri bændur að
sýna mikla smitgát.
Reglulegir fundir
um stöðu mála
Viðbragðsteymið fundar daglega
en hlutirnir breytast dag frá
degi. Höfuðáhersla er lögð á að
gæta hagsmuna félagsmanna í
þessu óvenjulega ástandi. BÍ er í
beinum samskiptum við ráðuneyti
landbúnaðarmála í tengslum við
kórónuveirufárið.
Það er viðbúið að eftirspurn
eftir framleiðsluvörum bænda
breytist og það er mikilvægt að
finna leiðir til að milda áhrifin af
breyttum veruleika eins og hægt
er. Efnahagsleg áhrif af COVID
19 eru enn sem komið er óljós en
nauðsynlegt er að velta upp öllum
mögulegum og ómögulegum
sviðsmyndum.
Ábendingar eða óskir um að
teymið ræði ákveðin mál eða
setji á dagskrá má gjarnan senda
í netfangið bondi@bondi.is.
Almennum spurningum er varðar
kórónuveiruna og landbúnað er
svarað í gegnum sama netfang.
Viðbragðsteymi
Bændasamtaka Íslands:
Gunnar Þorgeirsson, BÍ
Jón Magnús Jónsson, FK
Katrín María Andrésdóttir, SG
Margrét Gísladóttir, LK
Sigurður Eyþórsson, BÍ
Sölvi Arnarsson, FFB
Tjörvi Bjarnason, BÍ
/TB
Í ljósi aukinnar áherslu á fjarfundi hefur Umhverfisstofnun
útbúið 12 góð ráð fyrir fjarfundi að sænskri fyrirmynd.
Þrátt fyrir að áhugi á þessu fundarformi sé að einhverju leyti sprottinn af áhyggjum
um smithættu hafa fjarfundir einnig marga aðra góða kosti, m.a. að auka skilvirkni
með því að lágmarka ferðatíma á milli funda ásamt því að minnka koltvíoxíðslosun
af völdum ferða.
Umhverfisstofnun hvetur alla til að styðjast við ráðin tólf um fjarfundi ásamt
því að dreifa þeim að vild og stuðla þannig að vönduðum, afkastamiklum og
umhverfisvænum fjarfundum. Heimild: Umhverfisstofnun.
Landbúnaður og COVID-19:
Mörg mál í deiglunni hjá
Bændasamtökunum
Viðbragðsteymi BÍ fundar daglega með fjarfundarbúnaði. Margrét Gísladóttir,
framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, vinnur m.a. að því að koma
upp skráningu á mögulegu afurðatjóni vegna COVID-19. Mynd / TB
12
GÓÐ RÁÐ FYRIR
FJARFUNDI
1 . BJÓÐIÐ UPP Á
PRUFUFUND FYRIR ÞÁ SEM
ERU AÐ FJARFUNDA Í
FYRSTA SKIPTI
2. SKRÁIÐ YKKUR INN Á
FUNDINN 10-15 MÍNÚTUM
ÁÐUR EN HANN HEFST.
NÝTIÐ TÍMANN TIL AÐ STILLA
MYNDAVÉL, HLJÓÐ O.S.FRV.
3. SETJIÐ SKÝR HLUTVERK.
VELJIÐ FUNDARSTJÓRA OG
RITARA.
4. FORÐIST AÐ TAKA
FJARFUNDI Í FUNDARSÖLUM.
TIL AÐ HÁMARKA GÆÐI
FUNDARINS SITJIÐ HVER VIÐ
SÍNA TÖLVU
5. TRYGGIÐ GOTT
NETSAMBAND . STUNDUM ER
ÁREIÐANLEGRI TENGING Í
GEGNUM NETSNÚRU EN WIFI
6. NOTIÐ VÖNDUÐ
HEYRNARTÓL SEM ÞIÐ
HAFIÐ NOTAÐ ÁÐUR
7. NOTIÐ MYNDAVÉL FYRIR
PERSÓNULEGRI SAMSKIPTI .
STILLIÐ HANA Í AUGNHÆÐ.
8. HAFIÐ LJÓSGJAFA
FYRIR FRAMAN YKKUR OG
FORÐIST BAKLÝSINGU
9. NOTIÐ SPJALLÞRÁÐ
FYRIR SPURNINGAR,
STUTTAR ATHUGASEMDIR,
NETSLÓÐIR O.S.FRV.
10. DEILIÐ SKJÁNUM YKKAR
ÞEGAR ÞIÐ ERUÐ MEÐ
KYNNINGAR, SÝNIÐ SKJÖL Í
VINNSLU O.S.FRV.
11. RÉTTIÐ UPP HÖND
ÞEGAR ÞIÐ VILJIÐ FÁ ORÐIÐ
(EF ÞIÐ NOTIÐ MYNDAVÉL)
12. SLÖKKVIÐ Á HLJÓÐNEMA
ÞEGAR AÐRIR FUNDARGESTIR
TALA TIL ÞESS AÐ LÁGMARKA
TRUFLUN
REMM - REFRES IA D IG ITALA/MÖTEN I MYNDIGHETER REMM.SE
12
S
UC
CE
SS
F
AC
TO
RS
IN
V
IR
TU
AL
M
EE
TI
NG
S”
B
Y
RE
MM
.S
E
IS
L
IC
EN
SE
D
UN
DE
R
CC
B
Y-
ND
4
.0
|
DR
AF
T
19
10
15
Starfsfólk Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins er alvant að
vinna í fjarvinnu og nota netið
til fundahalda. Vegna kórónu
veirunnar er búið að skipta
fyrirtækinu upp og takmarka
samgang starfsfólks.
Til að missa ekki niður kaffi
stofustemninguna í samkomu
banni var brugðið á það ráð að
færa tíukaffið hjá starfsmönnum
RML yfir á samskiptaforritið
Teams. Þar hittast starfsmenn
í netheimum, spjalla saman og
skiptast á bröndurum og góðum
sögum eins og gert er á öllum
góðum kaffistofum.
„Í morgun var slegið upp keppni
um flottasta kaffibollann og upp
kom hugmynd um að hafa nátt
fatakeppni í næsta kaffitíma. Jóna
Þórunn á Suðurlandi er talin sig
urstrangleg í kaffibollakeppninni
með Ford dráttarvélakaffiboll
anum,“ sagði í stuttri frétt á vef
RML sem undirstrikar mikilvægi
kaffi tímans sem lyftir andanum
og léttir lund.
Ráðunautar með ráð undir rifi hverju:
Tíukaffið er komið á netið!
Búnaðarsamböndin og Bændasamtökin hafa tekið höndum saman um að
koma á fót afleysingaþjónustu fyrir bændur ef veikindi vegna veirunnar
hamla búrekstri. Myndin er tekin á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum. Mynd / TB