Bændablaðið - 19.03.2020, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 7
LÍF&STARF
Þau leiðu mistök urðu við gerð síðasta vísnaþáttar að eitt orð misritaðist í hinni snjöllu vísu Guðmundar
Sigurðssonar, sem hann orti í stórafmæli
Andrésar í Síðumúla. Við þetta eina
misritaða orð, þá missti vísan sinn snjalla
boðskap, og verður hún því endurbirt hér:
Þótt lífið bæti tug og tug
við tímann sem það gaf okkur,
hefjum glös og hugarflug,
á himnum rennur af okkur.
Þar sem sögusviðið er í Borgarfirði, þá skal
þar áfram róið á vísnamið. Þættinum barst bréf
frá Guðna Ágústssyni þar sem hann greinir
á gamansaman hátt frá aðventusamkomu
sem haldin var í Hriflusalnum á Bifröst. Sr.
Brynhildur Óladóttir embættaði sem venja
er til á slíku kvöldi. Hún fékk Guðna til að
flytja smá hugvekju, en einnig karlakórinn
Söngbræður til af flytja tónverk tengd
aðventunni. Verulega teygðist á þeim tíma
sem Guðna var ætlaður þetta kvöld, og mun
hann hafa farið ögn víðar um söguvöllinn
sem hans er háttur, og sagan hermir, að
oftar hafi hann nefnt Jónas frá Hriflu en
sjálfan Jesú Krist. Hófleg þátttaka var
meðal almennra sóknarbarna, en vel sótt af
Söngbræðrum. Meðal söngmanna syngur
hagyrðingur forkunnarsnjall, Jón Jens
Kristjánsson fyrrum bóndi á Ytri Hjarðardal
í Önundarfirði, en nú búsettur í Borgarnesi.
Jón Jens dró saman það helsta frá þessu
aðventukvöldi í því meistaraverki sem eftir
fer:
Hátíðarblær og helgur friður
hér var leiddur á jörðu niður
um það bil er fólk ók í hlað.
Komið að rækja kristna skyldu
komust þó fleiri að en vildu.
Húsfyllir varla heitir það.
Presturinn hafði þar veg og vanda
vitnaði um kærleik heilags anda
liðug í máli og laus við fálm.
Sætlegur höfgi seig á alla
er Söngbræður gengu upp á palla
og fluttu á táknmáli fyrsta sálm.
Á gullaldaríslensku Guðni ræddi
með gamanorðum hann lýðinn fræddi
flutti sitt mál af mestu list.
Dró þar að vísu sama seiminn
og sagði þá hafa frelsað heiminn
Hriflu-Jónas og Jesú Krist.
Veit ég að stundin vakið hefur
velþóknun hjá þeim sem lífið gefur
fráleitt þó væri fjölmennt þar.
Hjá Honum sem forsjón hefur milda
hausatalan mun ekki gilda
heldur sá andi sem yfir var.
Að heimili okkar Petru er jafnan haldin á
Góu kvöldsamvera hvar á borðum er saltað
hrossakjöt komið frá Kolbeini og Sollu í
Bólstaðarhlíð. Nokkrar tafir urðu á samveru
þessari vegna einlægrar ótíðar, og súrnaði
geð sumra gesta nokkuð af þeim sökum.
Pétur læknir Pétursson lét húsráðendur
vel vita af þeim ræfildómi okkar:
Ómur skála í eyrum klingir,
æði löng er þessi bið,
en eflaust bráðum Árni hringir
afboðunarsímtalið.
Einhver örlítill misskilningur var á ferð,
og afboðin ekki náð eyrum læknisins, og
mætti hann að Húsum með lið sitt. Við
höfðum farið af bæ og læst húsum, enda
búið formlega að afboða veisluna:
Gerast hljóð vor gamanmál,
gleði enginn spyr um.
Kveikir harm og krenkir sál
að koma að læstum dyrum.
Við þriðju tilraun tókst loksins að ná öllum
gestum til kvöldverðar, enda veðurútlit
bærilegt. Pétur var þó ekki bjartsýnn:
Þokar blíða þessa dags
þunga úr huga mínum,
en skyldi Árni leita lags
og læsa húsum sínum?
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
246MÆLT AF
MUNNI FRAM
Búfræðinemar frá Hvanneyri í fjárhúsum að Hríshóli í Eyjafirði. Búfræðinemarnir fréttu af Guðna í Eyjafirðinum og stefndu honum að Hríshóli.
Þar ávarpaði hann unga fólkið og brýndi það til dáða og sagði það hafa verk að vinna. Mynd / Guðjón Ragnar Jónasson.
Búfræðinemar frá Hvanneyri á ferð um Norðurland:
Komu við á þrettán bæjum
Fyrstu helgina í mars voru búfræðinemar
frá Hvanneyri á ferð um Norðurland.
Hópurinn lagði upp frá Hvanneyri og hafði
fyrstu viðdvöl í Hrútafirði en að lokum voru
eyfirskir bændur sóttir heim. Nemarnir
gerðu sem sagt víðreist, komu við á þrettán
bæjum og geri aðrir betur á einni helgi.
Meðal annars var komið við í fjárhúsum
að Hríshóli þaðan sem myndin hér að ofan
er tekin. Bændurnir á bænum tóku vel á móti
hópnum og ekki skemmdi að veðrið var gott
og Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta. Þessa
helgi flutti Guðni Ágústsson ræðu á Kaffi
kú í Eyjafjarðarsveit auk þess sem Guðjón
Ragnar Jónasson, annar höfundur bókarinnar
Kindasögur, las upp.
Búfræðinemarnir fréttu af Guðna í
Eyjafirðinum og stefndu honum að Hríshóli.
Þar ávarpaði hann unga fólkið og brýndi
það til dáða og sagði það hafa verk að
vinna. Verkefnin væru ærin þegar kæmi
að því að tryggja framtíð íslenskra sveita.
Guðni sagði líka sögur frá námsárum sínum
á Hvanneyri og ræddi við nemendurna.
Að endingu gaf bókaforlagið Sæmundur á
Selfossi búfræðinemunum Kindasögurnar sem
kveðjugjöf. /GRJ
Það snjóar drjúgt
fyrir vestan
Mikið vetrarríki hefur verið norðanlands í
vetur og ekki hefur það verið síðra á Vest
fjörðum.
Snjóað hefur nær látlaust með stuttum
hléum frá því í óveðrinu fyrir jólin á norðan-
verðum Vestfjörðum og er jafnvel hörðustu
Vestfirð ingum farið að þykja nóg um. Mikil
snjóalög eru á svæðinu og víða snjóflóða-
hætta eftir síðasta áhlaupið nú í vikubyrjun.
Þurfti þá að rýma hús á Ísafirði, Flateyri og á
Patreksfirði vegna snjóflóðahættunnar.
Þessar myndir tók Haukur Már Harðarson
á Suðureyri í gær af snjónum á eyrinni, en víða
eru hús að verða komin í kaf. Bændur í Botni í
Súgandafirði hafa jafnvel enn betur fengið að
finna fyrir snjónum og eru öll hús þar meira
og minna á kafi. /HKr.