Bændablaðið - 19.03.2020, Side 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 9
Langanesbyggð hefur í sam
vinnu við Vopnafjarðarhrepp
og verk fræði stofuna Eflu ehf.
og fleiri ákveðið að sækja
um styrk til að láta rannsaka
möguleika á kostum og
göllum fimm vindmyllugarða
í Langanesbyggð og einum í
Vopna firði.
Þessar umsóknir eru liður í
mögulegri uppbyggingu atvinnu
tækifæra í Finnafirði í framtíðinni.
Eins og kunnugt er eru rannsóknir
og viðræður um uppbyggingu
hafnar og atvinnuþróunarsvæðis
verið í gangi um nokkurra ára
skeið.
Markmiðið með þessum
umsókn um er í stuttu máli að
kom ast að því hvort og þá hve
mikil orkuframleiðsla gæti átt
sér stað á svæðinu. Þegar og ef
jákvæðar niðurstöður fást úr slíkri
rannsókn verður farið á stað með
ítarlega kynningu á þeim hug
myndum sem fýsilegar verða
taldar þá meðal landeigenda,
íbúa og öðrum hagsmuna og
fagaðilum. Við þessara athuganir
verður tekið tillit til náttúrufars
s.s. fugla og dýralífs, áhrifa sem
þessar framkvæmdir hefðu á flug
o.s.frv. Ekki síst verður horft til
viðhorfa almennings og afstöðu
hlutaðeigandi eigenda þeirra jarða
sem málið varðar.
Hugmynd um að nýta
orkuna til að framleiða
grænt ammoníak
Ef af verður, eru hugmyndir um að
nýta orku sem frá vindmyllunum
fæst til að framleiða grænt
ammón íak. Í greinargerð með
umsókn unum segir meðal annars
að í ýmsum markaðslegum
greiningum fyrir Finnafjörð
hafi komið fram að mikilvægt
sé að flutningaskip geti tekið
grænt ammóníak sem eldsneyti
á hafnarsvæðinu. Ammóníak er
sá vetnisberi sem er með þéttustu
sameind vetnis (NH3) og telur
Alþjóðasiglingamálastofnunin
(IMO) að grænt ammóníak komi
sterkt inn sem eldsneyti fyrir skip
eftir 2030. Framleiðendur stórra
skipavéla munu hefja sölu véla
sem nýta ammóníak sem eldsneyti
innan 1–2 ára.
Líka framleitt vetni og súrefni
með rafgreiningu á vatni
Til framleiðslu græns ammóníaks
þarf vetni sem kæmi úr rafgrein
ingarferli á vatni. Við slíka grein
ingu verður til mikið af súrefni af
háum gæðum, sem færi í fiskeldi
á landi. Það er ein meginástæðan
fyrir því að þörf verður fyrir
raforku frá endurnýjanlegum
orkugjöfum í Finnafirði.
Vindorkan kemur hér sterk inn
og má jafnvel ætla að töluverður
hluti raforkunnar sem notuð
verður í rafgreiningu vatns í
Finnafirði, muni ekki berast
eftir sameiginlegu flutningskerfi
raforku á Íslandi, heldur geti verið
um sjálfstætt kerfi að ræða. Það er
m.a. vegna þess að rafgreinar geta
framleitt vetni, án þess að vera
með fulla vinnslugetu.
Skoða svæði fyrir um 200
vindmyllur
Þannig má horfa til þess mögu
leika að frá Finnafirði verði
íslensk raforka í framtíðinni flutt
út í formi efnaorku eða nýtt á
íslenskan togaraflota. Þessi áform
eru í takt við áform Þróunarfélags
Finnafjarðar að þróa svæðið sem
miðstöð fyrirtækja sem sinna
nýrri og vaxandi starfsemi sem
byggir á hringrásarhagkerfislegri
hugsun og sjálfbærni. Þau svæði
sem sótt er um að skoðuð verði og
er áætlað eða mögulegt umfang
hvers um sig eru á Bakkaheiði,
Langanesströnd, Viðvíkur heiði,
Brekknaheiði og Sauðaneshálsi.
Samtals eru þau svæði sem horft
er til 212 ferkíló metrar að stærð
og áætlanir gera ráð fyrir að alls
verði á svæðinu 200 vindmyllur,
flestar, eða 70, á Brekknaheiði
og fæstar á Sauða neshálsi, eða
30 talsins. /MÞÞ
Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
KRAFTBLANDA
Inniheldur Effekt Midi Island steinefnablöndu
KRAFTBLANDA-30
• 30% fiskimjöl
• Óerfðabreytt hráefni
• Lífrænt selen
KRAFTBLANDA-15
• 15% fiskimjöl
• Óerfðabreytt hráefni
• Lífrænt selen
Hugmyndin gengur út að að reisa allt að 200 vindorkustöðvar.
Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur:
Sækja um styrk til að kanna gerð nokkurra vindmyllugarða
– Hugmyndir um að nýta orku frá vindmyllunum til að framleiða grænt ammóníak