Bændablaðið - 19.03.2020, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202016
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Við lifum á skrýtnum og áhuga
verðum tíma þar sem yfir heim
inn gengur veira sem gæti með
sama áframhaldi leitt til margs
konar hörmunga og það á
mörgum sviðum.
Eitt af því sem við getum gert
til að stytta okkur stundir núna,
þegar búið er að setja á samkomu-
bann og fólk jafnvel komið í sótt-
kví, er að rækta blóm og matjurtir
sem gleðja augað og róa magann.
Í grunninn skiptir ekki máli
hvort sá á sumarblómum, krydd-
eða matjurtum, aðferðin er sú
sama.
Í daglegu tali er það sem við
köllum sumarblóm fljótvaxnar,
yfirleitt einærar plöntur sem vaxa
upp af fræi, blómstra um sumarið
og deyja að hausti.
Krydd- og matjurtir eru
ræktaðar til átu og í flestum
tilfellum einærar plöntur hér á
landi.
Þegar sáð er í gamla bakka
eða potta verður að þvo ílátin
með heitu sápuvatni og hreinsa
vel svo engin óhreinindi verði
eftir og til að koma í veg fyrir rót-
arhálsrotnun hjá ungplöntunum.
Þegar búið er að setja sáðmold-
ina í ræktunarílátið skal þjappa
henni lauslega og vökva þannig
að hún verði rök en ekki blaut
í gegn. Fræinu er síðan sáldrað
yfir moldina og þess gætt að það
liggi ekki of þétt. Að því loknu
er þunnu moldarlagi, tvöfaldri
stærð fræjanna, stráð yfir. Séu
fræin mjög smá er nóg að þjappa
þeim lauslega niður í moldina.
Æskilegt hitastig við spírun
hjá flestum tegundum er um 18
til 20 °C en gott er að lækka hit-
ann um nokkrar gráður eftir að
plönturnar koma upp. Annars
vaxa þær of hratt og verða
renglulegar. Þar sem lítillar birtu
gætir er nauðsynlegt að notast
við raflýsingu til að koma í veg
fyrir svokallaðar myrkraspír-
ur. Yfirleitt nægir þó að láta
ræktunarílátið á bjartan stað
því ekkert kemur í stað góðrar
dagsbirtu.
Spírunartími fræja er mis-
munandi og því nauðsynlegt að
hafa hann í huga þegar sáning
er undirbúin.
Fyrstu blöðin koma yfir-
leitt upp úr moldinni nokkrum
dögum eftir sáningu og eftir því
sem plönturnar stækka verða
þær fyrirferðarmeiri Fljótlega
eftir að venjuleg laufblöð taka
við af kímblöðum, en svo nefn-
ast fyrstu blöðin sem koma upp
úr moldinni, er nauðsynlegt að
dreifplanta eða prikkla plöntun-
um út í stærri potta eða auka
bilið á milli þeirra í sáðbakk-
anum.
Þegar hér er komið sögu eru
ungplönturnar í miklum vexti og
gott að vökva þær með áburðar-
blöndu að minnsta kosti einu
sinni í viku.
Áður en plönturnar eru settar
út í garð er nauðsynlegt að venja
þær við hitastigið utandyra til
að koma í veg fyrir sjokk þegar
þeim er plantað út. Þetta er gert
með því að flytja plönturnar í
vermireit eða með því að láta
þær standa úti hluta dags, en
verja fyrir næturfrosti og lengja
útivistartímann eftir því sem
hlýnar í veðri.
Útplöntun ræðst af tíðarfari
en yfirleitt má setja harðgerðustu
tegundirnar í beð í lok maí og
þær allra viðkvæmustu kringum
miðjan júní. Ungplönturnar þola
ekki frost og því getur reynst
nauðsynlegt að skýla þeim þar
til hætta á næturfrosti er liðin
hjá. /VH
STEKKUR
Sala á óunnum fiski frá Íslandi á
sér langa sögu en hefur hvað eftir
annað vakið upp harðar deilur,
nú síðast í haust bæði á Alþingi og
í fjölmiðlum. Samkvæmt nýjum
tölum Fiskistofu nam útflutning
ur á óunnum fiski tæpum 45 þús
und tonnum á síðasta ári sem er
heldur minna en á árinu á undan.
Þorskur, ýsa og karfi eru uppi
staðan í þessum útflutningi.
Siglingar íslenskra fiskiskipa
með botnfisk og flatfisk á erlendan
markað tíðkuðust frá því snemma
á 20. öldinni og náðu hámarki árin
1988 og 1989 þegar siglt var með 46
þúsund tonn af botnfiski á erlendar
hafnir hvort árið. Nokkrum árum
áður hófst útflutningur á ísfiski með
nýju sniði þegar farið var að flytja
óunninn fisk utan í gámum með
flutningaskipum. Árið 1982 nam
gámaútflutningurinn 2.000 tonnum
en jókst í 73.000 tonn árið 1986 og
í 92.000 tonn árið 1990. Á árunum
1986-1990 voru flutt út milli 50 og
60 þúsund tonn af óunnum þorski
ýmist með gámum eða fiskiskipum
og heildarútflutningurinn komst upp
í 150.000 tonn á ári. Eftir það minnk-
aði ísfiskútflutningurinn nokkuð
hratt og var komin niður fyrir 60.000
tonn árið 1997.
Íslenskir fiskmarkaðir voru þá
komnir til sögunnar og hefur það
vafalaust haft sín áhrif. Útgerðir
sem ekki voru tengdar fiskvinnslu
þurftu ekki lengur að leita út fyrir
landsteinana til þess að freista gæf-
unnar á fiskuppboðum, þótt aðrir
teldu hag sínum betur borgið með
því að halda tryggð við erlendu upp-
boðsmarkaðina.
Lítils háttar samdráttur milli ára
Nú liggja fyrir hjá Fiskistofu upp-
lýsingar um útflutning á óunnum
afla á árinu 2019. Alls nam hann
44.727 tonnum samanborið við
47.212 tonn árið 2018. Erfitt er
um samanburð við árin þar á undan
að sögn Fiskistofu. Ástæðan er sú
að óunninn fiskur fer eftir tveimur
leiðum úr landi, annars vegar beint
af fiskiskipi í gáma og hins vegar
frá fiskvinnslum í gáma. Nýjustu
tölur Fiskistofu sameina hvort
tveggja, en eldri tölur ná einungis
yfir þann afla sem fór beint af fiski-
skipi í gáma.
Ýsa og þorskur til Bretlands
En hvernig skiptist þessi útflutn-
ingur eftir tegundum og mark-
aðslöndum? Eins og sést á með-
fylgjandi töflum nam útflutningur
á óunnum þorski 8.000 tonnum á
árinu 2019 sem er rúmlega 2.600
tonna samdráttur frá fyrra ári. Hins
vegar jókst ýsuútflutningurinn á
sama tíma um nálægt 2.000 tonn
og nam 9.000 tonnum. Þessi aukn-
ing í ýsu vakti öðru fremur umræð-
urnar síðastliðið haust. Bretlandi
er langstærsti kaupandi óunninnar
ýsu frá Íslandi og nam hlutur Breta
95% af heildinni. Hins vegar dreif-
ist þorskurinn aðallega á þrjú lönd,
Bretland sem er með tæpan helming
og síðan Þýskaland og Holland.
Karfi til Þýskalands
og Frakklands
Karfi er sú tegund sem mest er flutt
út af sem óunninn fiskur eða um
14.000 tonn og fer hann fyrst og
fremst til tveggja landa. Þýskaland
tekur upp undir tvo þriðju af
heildinni og Frakkland stærstan
hluta af því sem eftir er. Þýskaland
tekur líka megnið af ufsanum og
Pólland næsta á eftir. Í umræðunni
síðastliðið haust var því haldið fram
að Pólverjar væru farnir að sækja
í auknum mæli í óunninn fisk á
Íslandi til þess að vinna þar ytra,
en tölur Fiskistofu gefa til kynna
að kaup þeirra hafi þvert á móti
minnkað úr 3.000 tonnum í 2.000
tonn milli áranna 2018 og 2019.
Hversu hátt hlutfall?
En hversu stór hluti er þessi útflutn-
ingur af heildarveiðinni? Umreiknað
í slægðan afla til samræmis við út-
flutningstölurnar má ætla að óunn-
inn afli úr landi hafi verið í kringum
10% af heildarbotnfisk- og flatfisk-
aflanum á árinu 2019. Hlutfallið er
hins vegar mjög mismunandi eftir
tegundum. Þannig nam þorskurinn
3,5% af heildarþorskaflanum á síð-
asta ári, af ýsu voru flutt út 18%
af heildarýsuveiðinni, af ufsanum
10% og af karfanum 26%. Hlutfall
útflutnings í gámum af sumum flat-
fisktegundum er mun hærra eða 40%
í skarkola og 55% í þykkvalúru en
magnið er líka mun minna.
Rökin gegn gámafiskinum
Fiskvinnslufyrirtæki sem ekki reka
útgerð og eru því háð framboði hrá-
efnis á fiskmörkuðum og í beinum
viðskiptum við óskylda aðila hafa
ávallt barist hart fyrir því að hömlur
væru settar á útflutning á óunnum
fiski. Samtök þeirra, sem nú heita
Samtök fiskframleiðenda og útflytj-
enda (SFÚ), vilja að sá fiskur sem
nú fer beint í gáma til útflutnings
verði boðinn upp á íslenskum fisk-
mörkuðum svo allir geti boðið í
hann. Þá fullyrða þau að aukning
sé einnig í útflutningi á óunnum
fiski sem keyptur sé á fiskmarkaði
og síðan fluttur út í gámum.
Arnar Atlason formaður SFÚ
hefur bent á að það séu hags munir
þjóðarinnar í heild að verðmæta-
sköpun úr sameiginlegri auðlind
hennar verði sem mest innanlands.
Hann hefur haldið því fram að
ætla megi að fluttur sé út óunninn
fiskur að verðmæti 10 milljarðar
króna á ári. Verðmætaaukning við
vinnslu hér heima gæti að hans
mati numið 20-40% eða sem svar-
aði 2-4 milljörðum króna. Um það
bil einn starfsmaður væri á bak við
hver 100 tonn og færu 50.000 tonn
óunnin úr landi töpuðust 500 störf
í fiskvinnslu að ótöldum afleiddum
störfum.
SFS á móti hömlum á útflutning
Jens Garðar Helgason formaður
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
(SFS) kveðst setja spurningamerki
við þennan útreikning. Útflutningur
óunninn fiskur fer eftir tveimur
leiðum úr landi, annars vegar
beint af fiskiskipi í gáma og hins
vegar frá fiskvinnslum í gáma.
á óunnum fiski hafi mjög lengi
verið einn af þeim valkostum
sem sjávarútvegsfyrirtæki hafi
haft til að ráðstafa afla á sem
hagkvæmastan hátt hverju sinni.
Þessi takmarkaði útflutningur hafi
verið sveiflukenndur eftir gengi
krónunnar og aðstæðum á mörk-
uðum. Sem dæmi nefnir hann að
þegar Rússlandsmarkaður lokaðist
á einu augabragði fyrir nokkrum
árum hafi þrengst mjög um markað
fyrir frystar karfaafurðir og karfinn
leitað í auknum mæli óunninn úr
landi. Sumar fisktegundir séu það
lágt verðlagðar fullunnar að ekki
borgi sig að vinna þær hérlendis.
„Ég veit að íslenskir útgerðar-
menn og fiskverkendur reyna af
fremsta megn að hámarka þau
verðmæti sem þeir fá fyrir afurðir
sínar. Þær miklu fjárfestingar sem
stofnað hefur verið til upp á síðkastið
í nýjum og öflugum frystihúsum eru
ekki vísbendingar um að verið sé að
stuðla að því að fiskvinnslan flytjist
úr landinu, þvert á móti,“ sagði Jens
Garðar Helgason.
Hömlur í fortíðinni
Í gegnum tíðina hafa stjórnvöld
öðru hverju gripið til ýmissa ráða
til þess að hamla gegn útflutningi
óunnins fisks, svo sem með því að
skammta það magn sem flytja mátti
út, með því að setja kvótaálag á
þennan afla og með því að skylda
útgerðir til að tilkynna hann fyr-
irfram svo innlendir aðilar hefðu
tækifæri til að gera tilboð í hann.
Núna eru engar slíkar hömlur í gildi
og það mátti skilja á Kristjáni Þór
Júlíussyni sjávarútvegsráðherra fyrr
í vetur að engar breytingar á því
væru í bígerð.
NYTJAR HAFSINS
Vírus, sáning
og gróðurvon
Útflutningur á óunnum fiski var í kringum 10% af heildarbotnfiskaflanum á árinu 2019. Hlutfallið er hins vegar mjög
mismunandi eftir tegundum. Þannig nam þorskurinn 3,5% af heildar
þorskaflanum, ýsan rúmlega 18% af ýsuveiðinni, ufsinn 10% og
karfinn 26%, eða fjórðungi af heildarkarfaaflanum.
Slægður fiskur
Fisktegund Alls 2019 Bretland Danmörk Frakkland Pólland Þýskaland Holland Aðrir
Þorskur 8.003 3.671 346 271 426 1.359 1.924 5
Ýsa 8.997 8.587 0 96 49 235 30 0
Ufsi 5.476 94 331 900 1.353 2.438 321 38
Karfi 14.031 184 232 4.550 1 8.727 272 57
Steinbítur 2.013 249 8 1.067 67 244 372 7
Skarkoli 2.970 984 22 99 1 36 1.824 3
Þykkvalúra/Sólkoli 861 566 20 1 6 20 248 1
Grálúða 825 3 25 619 2 43 129 5
Aðrar tegundir 1.550 248 127 2 179 495 36
Samtals 44.727 14.586 984 8.203 1.908 13.281 5.615 153
Fisktegund Alls 2018 Bretland Danmörk Frakkland Pólland Þýskaland Holland Aðrir
Þorskur 10.654 4.294 329 122 1.453 1.490 2.381 586
Ýsa 7.029 6.202 11 34 93 209 9 472
Ufsi 4.801 94 92 204 1.363 2.688 93 267
Karfi 14.410 259 144 4.554 15 8.510 255 673
Steinbítur 2.187 144 0 812 0 97 113 1.021
Grálúða 938 3 167 626 40 37 63 2
Skarkoli 4.193 873 33 349 0 48 1.733 1.156
Þykkvalúra/Sólkoli 1.046 648 8 23 0 16 215 136
Aðrar tegundir 1.954 437 15 424 60 77 427 520
Samtals 47.212 12.954 797 7.147 3.024 13.172 5.289 4.834
6.1 Útflutningur á óunnum fiski eftir sölulöndum 2019 og 2018
Alls nam útflutningur á óunnum afla úr landi á árinu 2019 44.727 tonnum samanborið við 47.212 tonn árið 2018.
Óunninn fiskur fer eftir tveimur leiðum úr landi, annars vegar beint af fiskiskipi í gáma og hins vegar frá fiskvinnslum
í gáma. Mynd / HKr.