Bændablaðið - 19.03.2020, Page 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 19
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
ÓMISSANDI Í SAUÐBURÐINN
LAMBBOOST OG FLORYBOOST eru fæðubótarefni sem verka styrkjandi og
efla ónæmiskerfi unglamba. 100% náttúrulegar vörur sem löngu hafa sannað sig.
Auðvelt í notkun, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar hjá dýralæknum og umboðsaðila www.dyraheilsa.is
Lambboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Heilbrigð þarmaflóra – Mjólkursýrugerlar
Eflir ónæmiskerfið – Broddur
Örvandi – Jurtakraftur (kóla, gúarana)
Eykur líkamlegan styrk – Flókin samsetning vítamína og járns
Eykur orku – Nauðsynlegar fitusýrur, glúkósi, þríglyseríðar
LAMBBOOST
FLORYBOOST
Floryboost stuðlar að jafnvægi þarmaflórunnar og
saltbúskap líkamans þegar meltingartruflanir gera vart við sig.
Verndar þarmana – Viðarkol og leir sem draga í sig eiturefni
Kemur jafnvægi á saltbúskap líkamans – Natríumklóríð,
magnesíumklóríð, kalíumklóríð og fosföt
Eykur orku – Dextrósi
Styrkir erta slímhúð – Nauðsynlegar olíur unnar m.a. úr rósmaríni,
cajeput, timótei og thymol
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla
FRÉTTIR
Mikill snjómokstur í Dalvíkurbyggð:
Fjárveiting ársins að klárast
Snjómokstur á yfirstandandi vetri
var til umræðu á fundi Byggðaráðs
Dalvíkurbyggðar í liðinni viku en
veturinn hefur verið mjög snjó-
þungur, miklir umhleypingar sem
oft og tíðum kalla á daglegan snjó-
mokstur bæði í þéttbýli og dreif-
býli.
Fyrir lá samantekt á kostnaði
við snjómokstur í Dalvíkurbyggð
fyrir árin 2015 til 2020 þar sem
fram kemur að í desember 2019
og janúar og febrúar 2020 er varið
meiri fjármunum til snjómoksturs en
í nokkrum öðrum mánuðum á þessu
5 ára tímabili.
Fjárveiting fyrir árið að klárast
Þannig er meðaltal kostnaðar vegna
snjómoksturs árin 2015–2018 um 25
milljónir króna á ári. Árið 2019 varði
Dalvíkurbyggð tæpum 40 milljónum
króna í snjómokstur í heild, stærsti
einstaki mánuðurinn var desember
með 15 milljónir króna. Janúar
2020 kostaði 11,5 milljónir króna
og áætlað er að febrúar hafi kostað
um 14 milljónir króna í snjómokstri.
Í fjárhagsáætlun 2020 var gert ráð
fyrir 25,8 milljónum í snjómokstur
og er það fjármagn að klárast um
þessar mundir.
Fram kom á fundinum að
einungis væri um það að ræða að
draga mjög verulega úr þjónustu
eða samþykkja viðauka. Með
fundarboði fylgdi beiðni um við-
auka upp á 20 milljónir króna í
aukinn snjómokstur og að honum
verði mætt með lækkun á handbæru
fé. Byggðaráð samþykkti viðauk-
ann með tveimur atkvæðum. Og
var málinu vísað til afgreiðslu í
sveitarstjórn.
Fjármagn dugir ekki til
snjómoksturs í erfiðu árferði
Þá lýsti byggðaráð yfir áhyggjum
sínum af því að það fjármagn sem
er úthlutað til Vegagerðarinnar til
snjómoksturs dugar engan veginn
til í árferði eins og verið hefur í
vetur. Því er nauðsynlegt að til komi
aukafjárveitingar til Vegagerðarinnar
til snjómoksturs í Eyjafirði á móti
þeim aukafjárveitingum sem
sveitarfélögin eru að leggja til.
Sveitarstjóra er falið að senda
slíka beiðni til samgöngu- og
sveitarstjórnaráðuneytis. Þá var
sveitarstjóra falið að sækja um
viðbótarframlög úr Jöfnunarsjóði
vegna snjómoksturs veturinn 2019–
2020. /MÞÞ
Árið 2019 varði Dalvíkurbyggð tæpum 40 milljónum króna í snjómokstur í
heild. Áætlað er að kostnaður vegna janúar og febrúar 2020 nemi rúmlega
25 milljónum króna, eða álíka og árlegur kostnaður áranna 2015–2018.