Bændablaðið - 19.03.2020, Qupperneq 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202030
Drög að ræktunarmarkmiðum fyrir forystufé kynnt:
Tímabært nú þegar forystufé er
skilgreint sem sérstakt fjárkyn
– Drög að dómstiga væri hægt að prófa næsta haust
Á fagfundi sauðfjárræktarinnar
28. febrúar flutti Eyþór Einarsson,
sauðfjár ræktar ráðunautur hjá
Ráðgjafar miðstöð landbúnaðar-
ins, erindi um drög að ræktunar-
markmiðum fyrir forystufé.
Í drögunum eru sett fram
ýmis atriði sem liggja eiga til
grundvallar slíkum markmiðum;
skilgreining á forystufé, mikilvægi
erfðafjölbreytileika og æskilegir
eiginleikar. Þá er í drögunum stillt
fram leiðum að settum markmiðum
og dómstigi kynntur fyrir forystufé
og forystublendinga.
„Þessi drög verða tekin til
afgreiðslu hjá fagráði í sauðfjár-
rækt á næsta fundi,“ segir Eyþór.
„Sá fundur verður væntanlega í
byrjun apríl. Allar ábendingar og
athugasemdir varðandi markmiðin
og dómstigann eru vel þegnar og þá
mikilvægt að þær berist fyrir næstu
mánaðamót.“
Skilgreint sem sérstakt fjárkyn
„Drögin eins og þau líta út núna
hef ég unnið í samráði við ýmsa
sérfróða aðila; Daníel Hansen hjá
Forystufjársetrinu og Anna Englund í
Sandfellshaga, formaður í forystufjár-
félaginu, hafa hvatt til þessarar vinnu.
Verkið hófst með fundi norður í
Þistilfirði þar sem nokkrir ræktendur
forystufjár komu saman til skrafs og
ráðagerðar.
Segja má að það hafi verið rök-
rétt framhald eftir að forystuféð var
skilgreint sem sérstakt fjárkyn – og
allt varðandi forystufé var fjarlægt
úr ræktunarmarkmiðum um íslenska
sauðféð – að sett yrðu niður sér-
stök markmið fyrir forystuféð. En
í kjölfar fræðigreinar sem Jón Viðar
Jónmundsson og fleiri rituðu 2015 í
Náttúrufræðinginn, var teningunum
kastað varðandi það að skilgreina
forystufé sem sér fjárkyn.
Markmiðunum fylgja einnig drög
að dómstiga fyrir forystufé sem væri
þá hugmyndin að prófa á komandi
hausti. En hugmyndin er að hvetja til
sýningarhalds á forystufé sem von-
andi myndi bæði glæða áhugann á
ræktun þess og efla þannig varðveislu
á þessum einstaka fjárstofni,“ segir
Eyþór.
Forystuhæfileikar og skap
Í skilgreiningum á æskilegum
eiginleikum hvað forystuhæfileika
og skap varðar er tekið fram
að forystukindur skulu búa yfir
góðum forystuhæfileikum, þ.e.a.s.
að þær hafi hæfileika til að taka
forystu í fjárrekstri og leiða hópinn.
Forystukind skal þannig vera athugul,
róleg og kjörkuð.
Nokkur atriði eru tiltekin varðandi
útlitskröfur forystufjár. Einnig
æskilegir eiginleikar hvað frjósemi
og mjólkurlagni varðar.
Hvað stærð og sköpulag varð-
ar skulu forystukindur hafa fríðan
haus með stór, skýr augu og skarp-
legan svip. „Þær séu léttbyggðar
en sterklegar. Tiltölulega stórar en
þó fínlegar, háreistar og tignarlegar
kindur. Fætur háir og réttir. Sköpulag
forystukinda miðist við að þær eigi
auðvelt með að hreyfa sig og séu
hraustar og endingargóðar.“
Stefnt skuli að því að viðhalda
litafjölbreytileika í stofninum.
Forystufé getur verið af öllum litum
og litaafbrigðum.
Ullin skal vera fremur fínleg og
mjúk. Ullarmagn gott og hreinleiki
lita góður.
Forystufé getur bæði verið hyrnt
og kollótt. Varast skal hornalag sem
leitt getur til þess að horn vaxi í haus.
Forystuær skulu vera frjósamar
og mjólkurlagnar. Æskilegt er að
fullorðin forystuær sé að jafnaði tví-
lembd og mjólki auðveldlega tveim-
ur eðlilega þroskuðum lömbum.
Erfðafjölbreytileiki
og skýrsluhald
Í drögunum, í kaflanum um leiðir
að settu marki, kemur fram að
mikilvægt sé að skráning ætternis-
gagna sé viðhöfð fyrir allt forystufé
í landinu þannig að skyldleiki gripa
sé þekktur. „Í Fjárvis.is þarf að vera
hægt að halda sérstaklega utan um
forystufé og hlutfall forystufjárblóðs
eða hreinræktunarhlutfall hvers
grips. Skilgreindur sé grunnhópur
í Fjárvís.is með gripum sem taldir
eru hreinræktað forystufé (100% for-
ystublóð). Grunnskráin skal miðast
við gripi fædda árið 2008 eða fyrr
sem skilgreindir hafa verið sem
hreinræktað forystufé. Hægt verður
að bæta við gripum í grunnhópinn af
þar til bærum aðila ef þörf þykir á.
Kindur sem skilgreindar eru sem
forystukindur (hafa 66,7% eða meira
forystublóð) og kindur sem skil-
greindar eru sem forystublendingar
(hafa 33,3%-66,6% forystublóð)
skulu undanskildar afurðauppgjöri
með kindum sem ekki teljast til for-
ystufjár.
Til að stuðla að útrýmingu á
áhættuarfgerð m.t.t. riðumótsstöðu
er æskilegt að sem flestir gripir á
sölusvæðum séu arfgerðargreind-
ir,“ segir í hlutanum um erfðafjöl-
breytileika og skýrsluhald fyrir
forystufé.
Tiltekið er að skipulag ræktunar-
starfs fyrir forystufé skuli miða að
því að skyldleikarækt sé takmörk-
uð eins og kostur er. Þá er áhættu-
arfgerð með tilliti til riðumótstöðu
óæskileg. Stefnt skal að útrýmingu
þeirrar arfgerðar.
Forystuhæfileikar, skap og útlit
Í drögunum segir að efla þurfi
sýningarhald á forystufé og þróa
dómstiga sem tekur á forystuhæfni,
skapferli og útliti. „Þegar dómskalinn
hefur verið fullmótaður þarf að vera
hægt að skrá dóma í fjárvís.is. Þá er
æskilegt að bændur geti sjálfir metið
forystuhæfni gripa, t.d. með því að
geta skráð í fjárvís hvort viðkomandi
gripur sýni litla, einhverja eða mikla
forystufjáreiginleika.“
Varðandi afurðaeiginleika er í
drögunum stefnt að, við mat á frjó-
semi og mjólkurlagni forystufjár
og forystublendinga, að sá hópur
sé gerður upp sérstaklega í skýrslu-
haldinu. Þar kemur fram að ekki
verður unnið með skrokkgæðaeig-
inleika við ræktun forystufjár, enda
sé aukin holdasöfnun ekki markmið
við ræktun forystufjár.
Nánari upplýsingar um rækt-
unarmarkmiðin og dómstigann
fyrir forystufé má finna á vef
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnað-
arins, rml.is. /smh
Eiginleikar Vægi í heildareinkunn Stig
Sköpulag
Haus og hornalag 12,5% 5,0 til 10
Heildarsvipur 25,0% 10,0 til 20
Fætur 12,5% 5,0 til 10
Forystuhæfileikar og skap
Skap 25,0% 10,0 til 20
Forystuhæfileikar 25,0% 10,0 til 20
Drög að dómstiga fyrir forystufé og forystublendinga
Stig gefin í heilum og hálfum tölum. Fullnaðardómur stendur saman af
sköpulagsdómi og dómi fyrir forystuhæfileika og skap. Sé eingöngu um
sköpulagsdóm að ræða getur kindin hæst hlotið 40 stig en við fullnaðar-
dóm geta heildarstigin orðið 80. Þegar forystugripur er metinn skal skrá
niður mælingu á lengd vinstri framfótarleggjar og lífþunga. Eistu hrúta
skulu skoðuð og það staðfest að þau séu eðlileg að öðrum kosti er skráð
athugsemd. Hrútar með eistnagalla skulu ekki verðlaunaðir á sýningum.
Torfi 17-816 frá Gróustöðum í Gilsfirði kom nýr inn á sæðingastöð síðastliðið haust. Myndir / RML
Strumpur 14-815 frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
Eyþór Einarsson í ræðustóli á fagfundi sauðfjárræktarinnar. Mynd / smh