Bændablaðið - 19.03.2020, Síða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 31
Þarftu að skreppa í bæinn?
Mjög falleg og notaleg þriggja herbergja fullbúin íbúð í hjarta
Hafnarfjarðar. Íbúðin sem er fullbúin húsgögnum er með svefnpláss fyrir
allt að sex manns.
Allar upplýsingar inn á booking.com/ Hafnarfjörður og nafn íbúðar Pond
apartment eða í s. 695-1095, Gyða - gyda@nyttheimili.is
• Öll almenn stálsmíði og viðgerðir.
• Svart stál, ryðfrítt stál og ál
• Vélaviðgerðir
• Hitaveitulagnir
• Bílasprautun, réttingar og ryðbætingar
• Allar stærðir ökutækja og vinnuvéla
Árni: 8921391 skard@vesturland.is
Valdi: 6917036 valdi.skardi@gmail.com
Hjálmur: 6917048 hjalmur.orn@gmail.com
facebook.com/buhagur
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
IAE
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
Vélabær ehf. bíla- og búvélaverkstæði Borgarbyggð
óskar eftir bifvéla- eða vélvirkja til starfa.
Menntun og reynsla af viðgerðum á bílum, dráttarvélum og
vélum tengdum landbúnaði er skilyrði. Reynsla af stjórnun kostur.
Meistararéttindi í faginu æskileg.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 660-3437 (Sigurður) 869-4275 (Lárus)
eða á netfang larpet@aknet.is
Vélabær ehf.
S. 435-1252 - velabaer@vesturland.is
Almennar bíla- og búvélaviðgerðir
Smur- og hjólabarðaþjónusta
MATVÆLI&NÝJUNGAR
Lífrænt vottaður jurtadrykkur úr íslensku byggi:
Fyrsti drykkur sinnar tegundar
í íslenskri framleiðslu
Karen Jónsdóttir, sem rekur
meðal annars Kaja Organic á
Akranesi, hefur sett vöruna
Byggmjólk á markað, sem er
lífrænt vottaður jurtadrykkur
unninn úr íslensku byggi frá
Vallanesi á Fljótsdalshéraði.
Drykkurinn er fyrsti sinn-
ar tegundar á Íslandi sem fer í
almenna sölu og segir Karen að
áður hafi verið gerðar tilraunir í
framleiðslu á svipuðum drykkjum
með erlendu hráefni. „Byggmjólkin
er fyrsta íslenska jurtamjólkin sem
fer á markað. Þegar ég segi íslensk
þá erum við að tala um íslenskt
bygg en sú jurtamjólk sem áður var
gerð tilraun með að framleiða hér
á Íslandi var úr erlendum höfrum,
blönduð íslensku vatni. Hér erum
við með íslenskt lífrænt bygg frá
Vallanesi og það sem er nokkuð
merkilegt við íslenska byggið er að
það þarf einungis 6,8 prósent bygg
til þess að ná þessu öfluga bragði, á
meðan framleiðendur í Evrópu eru
margir hverjir með allt að 12 til 17
prósent bygg í sínum drykkjum,“
segir Karen.
Næst á dagskrá er jurtajógurt
„Ég fékk styrk frá Öndvegisstyrk frá
Uppbyggingarsjóði Vesturlands fyrir
tveimur árum til að vinna að þessu
verkefni, sem ég hef gert samhliða
rekstrinum á mínu fyrirtæki, og því
get ég sagt að loksins náði ég að
klára og útkoman er þessi drykkur
sem hefur strax fengið góðar við-
tökur.
Byggmjólkin verður seld í tak-
mörkuðu upplagi til að byrja með því
næsta skref er að auka framleiðslu-
getuna með hentugri vélbúnaði.
Byggið er einstaklega hollt enda
inniheldur það mikið af beta-glúkön-
um sem geta lækkað kólesteról, haft
róandi áhrif og styrkt ofnæmiskerf-
ið. Þá myndar byggið eins konar
gel sem fóðrar og mýkir magann
og nærir slímhúð ristilsins,“ segir
Karen um ágæti drykkjarins.
Næstu skref eru svo, að sögn
hennar, byggmjólkurdrykkir og fleiri
afurðir – meðal annars jurtajógúrt.
Mjólk eða ekki mjólk …
Karen segir að hefð sé fyrir því að
nota orðið „mjólk“ um vökvann sem
kemur úr spenum, en það hafi þó
verið að breytast.
„Ég hef alltaf horft bara á mjólk
sem landbúnaðarafurð sem bændur
framleiða, en ekki bara afurð sem
er tengd spendýri. Í dag er ekki
bannað að nota mjólk sem við- eða
forskeyti í vöruheitum hér á landi.
En ef á að breyta því þá þurfum
við líka að huga að því að breyta
heitinu á húðmjólk, fiflamjólk og
fleiri vörutegundum – svo allir sitji
við sama borð.
Evrópusambandið hefur sett þetta
inn í sína reglugerð en mín skoðun
er sú að þar séu stærstu þjóðirnar,
Frakkar og Þjóðverjar, að vernda
sinn landbúnað á kostnað Ítalíu, sem
eru stærstu framleiðendur á jurta-
mjólk innan sambandsins og eiga
þann markað nánast einir,“ segir
Karen.
Frumkvöðlastarf
Hún játar því að þessi framleiðsla sé
frumkvöðlastarf og segir það vera í
tvennum skilningi.
„Í fyrsta skipti er framleiddur
jurtadrykkur með íslensku byggi sem
aðalhráefni og það hafa ekki heldur
verið framleiddir slíkir jurtadrykkir
hér á landi með langt geymsluþol.
Ég hef reyndar áður framleitt jurta-
drykki með langt geymsluþol, en
fyrir rúmu ári komu hafradrykkir á
markað frá mér með geymsluþol upp
á allt að ár. Glerílátið er lykillinn þar.
Í framhaldi af hafradrykkjunum,
sem eru úr ítalskri grunnmjólk
blandaðir við hin ýmsu krydd, hófst
ég handa við að gera grunnmjólk
og það tók ágætis tíma að átta sig á
þeirri framleiðsluaðferð. Og þegar
það var komið tók byggið við og þar
voru ansi margar suður gerðar þar til
að lausnin fannst, en eins og áður
sagði hefur jurtamjólk verð gerð úr
innfluttu „paste“; ýmist hafrar eða
möndlur notað sem grunnur.
Í grófum dráttum fer framleiðslan
á Byggmjólkinni þannig fram, að
fyrst er byggið malað, soðið upp
með hjálparefnum, kælt og blandað
með sólblómaolíu og salti. Síðan er
vökvinn fitusprengdur og settur á
flöskur. Varðandi næringarefnin þá
hef ég ekki látið mæla þau upp en
þau ættu að skila sér því ég einungis
grófsigta jurtamjólkina,“ segir Karen
um framleiðsluferlið.
Fínpússar framleiðsluferlið
„Ég er að fínpússa framleiðsluferlið
og reyna að stytta það sem mest svo
afkastagetan verði sem mest með
þeim búnaði sem ég hef í dag en hann
er ekki merkilegur. Ég er ekki alveg
viss hversu mikið ég get framleitt en
þar er flækjustigið svolítið hátt þar
sem ég er með krafta mína á mörgum
stöðum,“ segir Karen þegar hún er
spurð um framleiðslugetu og -magn.
Byggmjólkin frá Kaju verð-
ur í boði í verslunum Hagkaups í
Kringlunni, Smáralind, Garðabæ,
Skeifunni og svo Melabúðinni. /smh
Páll S. Brynjarsson og Ólafur Sveinsson frá Samtökum sveitarfélaga á
Vesturlandi sem reka Uppbyggingarsjóð Vesturlands, skála í byggmjólk
við Karen Jónsdóttur.
Byggmjólkin frá Kaju Organic.
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
50,0%
Bændablaðið Fréttablaðið Morgunblaðið Stundin DV Viðskiptablaðið Mannlíf
20
15
4
5,
0%
20
16
4
3,
8%
20
17
4
3,
1%
20
18
4
5,
6%
20
19
4
1,
9%
20
14
3
3,
9%
20
16
28
,6
%
20
17
27
,3
%
20
18
2
4,
6%
20
19
2
1,
9%
20
14
2
7,
8%
20
15
2
6,
0%
20
16
2
5,
3%
20
17
2
2,
0%
20
18
2
2,
1%
20
19
1
9,
0%
20
19
5
,8
%
20
15
7
,0
%
20
16
1
0,
8%
20
17
1
1,
2%
20
18
1
0,
8%
20
19
9
,1
%
20
14
5
,7
%
20
15
1
0,
0%
20
16
7
,3
%
20
17
1
1,
2%
20
18
5
,1
%
20
19
5
,2
%
20
19
2
,2
%
Meðallestur prentmiðla á landsbyggðinni
þróun lestrar síðastliðin sex ár, 2014-2019, samkvæmt könnunum Gallup
20
14
4
3,
3%
20
15
3
1,
0%
20
18
9
,1
%
20
14
1
1,
3%