Bændablaðið - 19.03.2020, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202042
Nýverið var haldinn hin árlega
Kvæg kongres í Herning í Dan
mörku en um er að ræða ársfund
dönsku nautgripa ræktar innar.
Líkt og áður var um að ræða
blandaða ráðstefnu þ.e. bæði
aðalfund þarlendra nautgripa
bænda en einnig fagþing með
fjölda fróðlegra erinda um málefni
greinarinnar.
Þessi tveggja daga fundur,
sem rúmlega 2.200 kúabændur,
ráðunautar og annað áhugafólk um
nautgriparækt sóttu, vekur alltaf
mikla athygli meðal fagfólks í
Evrópu enda er dönsk nautgripa-
rækt leiðandi í heimsálfunni og horfa
því margir til þess sem þar gerist.
Sterkari saman
Sem fyrr voru það skýrslur formanns
og framkvæmdastjóra Kvæg, bú-
greinafélags nautgripa-ræktarinnar
innan dönsku bænda samtakanna,
sem voru megin málefni aðal-
fundar samtakanna. Formaðurinn,
kúabóndinn Christian Lund, lagði
áherslu á það að fram undan væru
ýmsar áskoranir fyrir búgreinina í
heild s.s. varðandi umhverfismál,
loftslagsumræðuna og breytingar á
neyslumynstri sem búgreinin yrði að
takast á við í sameiningu.
„Heimurinn er stöðugt að breytast
og þróast og kúabúin okkar þurfa
að vera í stakk búin að takast á við
þessar breytingar og vera nógu
stöndug til þess,“ sagði formaðurinn
m.a. og vísaði með þeim orðum til
uppbyggingar kúabúa í heild sinni,
enda um langtímafjárfestingu að
ræða þegar kúabú er byggt upp og
oft er getan til að takast á við snöggar
breytingar takmörkuð.
Gekk betur 2019
Christian Lund lagði einnig áherslu
á að þrátt fyrir nokkuð ófyrirséða
framtíð þá væru dönsk kúabú vel í
stakk búin og bráðabirgðauppgjör á
rekstrarniðurstöðum síðasta árs sýna
að reksturinn gekk að jafnaði betur
árið 2019 en árið 2018 bæði hjá kúa-
búum í hefðbundinni mjólkurfram-
leiðslu og þeim fjöl mörgu sem eru
í lífrænt vottaðri framleiðslu.
Kúabúin í uppgjörinu sem voru
í hefðbundinni mjólkurframleiðslu
voru rekin að jafnaði með töluverð-
um afgangi, fyrir laun eigenda, eða
frá 3-20 milljónum íslenskra króna
og lífrænu búin voru að skila að
jafnaði frá 8-24 milljónum íslenskra
króna í hagnað fyrir laun eigenda.
Þau bú sem voru eingöngu í slátur-
kálfaeldi gengu einnig betur í fyrra
en árið 2018 og var meðalhagnað-
ur þeirra, fyrir greiðslu launa til
eigenda, 8 milljónir íslenskra króna.
Aflífun smákálfa
bönnuð eftir tvö ár
Sum mjólkurkúakyn í dag eru
svokölluð blönduð kyn, þ.e.
nautin sem fæðast geta verið alin
til kjötframleiðslu og dæmi um
þetta eru t.d. rauðu norrænu kynin
og Holstein kynið. Holstein kynið
hentaði hreint ekki til þess fyrir
nokkrum áratugum, en hefur tekið
miklum breytingum í seinni tíð
vegna mikilla kynbóta og ná naut
þess nú að vaxa hratt og vel. En
á sama tíma eru sum kúakyn þess
eðlis að nautin sem fæðast vaxa ekki
sérlega hratt né hafa góða fóðurnýt-
ingu. Af þeim sökum hafa bændur
stundum neyðst til að aflífa þessi
naut eða senda í sláturhús fljót-
lega eftir fæðingu. Fullyrða má að
enginn kúabóndi vill aflífa heilbrigð
dýr snemma í framleiðsluferlinu en
þetta framleiðslukerfi er þó algengt
í heiminum í dag, sérstaklega hjá
bændum sem búa með Jersey kýr.
Christian Lund sagði búgreinina
ekki lengur geta staðið á bak við
þetta framleiðsluferli og sagði erfitt
siðferðilega að verja svona fram-
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Á starfsstöð LbhÍ á Reykjum
í Ölfusi fer fram kennsla á
starfsmenntabrautum garð yrk
j unnar. Ein af námsbrautunum
er Skógur og náttúra. Námið
veitir undirstöðuþekkingu til
starfa sem snúa að ýmsum
land bótum eins og skógrækt
og landgræðslu.
Kenndar eru grunngreinarnar
náttúrufræði, jarðvegs- og
áburðarfræði, plöntuþekking,
plöntulífeðlisfræði, vistfræði
og umhverfisfræði. Fjallað er
ítarlega um skógrækt á Íslandi,
nýtingu skógarafurða, skjólbelti,
útivistarsvæði og friðlönd.
Verkleg kennsla í
skóginum á Reykjum
Þá tvo vetur sem bóknámið
fer fram taka nemendur þátt í
fjölmörgum verklegum æfingum
eins og gróðursetningu og grisjun.
Plöntunum sem gróðursettar eru
hafa nemendur fjölgað í verklegu
námi í skógarplöntuframleiðslu
við skólann. Skógurinn á Reykjum
er ein af helstu kennslustofum
brautarinnar og notaður sem
slík allt árið. Þannig kynnast
nemendur betur breytileika
árstíðanna. Skóginum þarf að
sinna á mismunandi hátt eftir
trjátegund, aldri og þéttleika
reitanna. Mestu hefur verið
plantað af greni, furu, ösp og
birki. Hæstu trén á Reykjum eru
þyrping sitkagrenitrjáa sem kallast
Systurnar þrjár og eru þær orðnar
rúmir 20 metrar á hæð. Í yngri
hlutum skógarins fer fram ýmis
umhirða eins og millibilsjöfnun
sem framkvæmd er með kjarrsög,
þar sem teinungur er sagaður
frá framtíðartrjám og of þéttar
gróðursetningar lagfærðar.
Trjámælingar eru gerðar þar sem
fjöldi og hæð trjáa er mældur til að
meta rúmmálsaukningu viðar og
eins til að ákvarða hvort komið sé
að grisjun. Grisjunin fer fram með
keðjusögum og læra nemendur að
fella tré á öruggan hátt og meta
mögulega nýtingu á viðnum sem
fellur til við grisjunina. Efnið er
síðan flutt úr skóginum og nýtt í
mismunandi viðarvinnslu, eins og
spírur, kurl, arinvið eða sagað með
flettisög í borð og planka.
Umhirða, viðhald
og áætlanagerð
Kennd er gerð skógræktar-
áætlana þar sem reitir
eru teiknaðir inn á
kortagrunna og ástand
skógarins er skráð. Farið
er í skipulag, uppsetningu
og umhirðu skjólbelta og
hvar þau nýtast best og
á hagkvæmastan hátt. Í
skógarvinnunni þarf að
taka tillit til gangandi
umferðar og hestaferða
sem eru mikið stundaðar í
skógræktinni á Reykjum.
Tengir það kennsluna við
uppbyggingu og viðhald
á útivistarsvæðum og
friðlöndum. Einnig er
farið í skoðunar- og
verkefnaferðir í skóglendi og á
ferðamannastaði í nágrenninu.
Markmiðið er að þjálfa og mennta
góða verkmenn og verkstjóra til
skógræktar- og landbótastarfa.
Skógtæknar eru
eftirsóttir í skógarumhirðu,
verkstjórn og ráðgjöf
Að loknu námi eru nemendur
garðyrkjufræðingar af braut
skógar og náttúru, eða skógtæknar.
Skógtæknar starfa við skóg- og
trjárækt og koma að ýmsu sem
tengist uppgræðslu, landbótum,
náttúruvernd, útivistar- og
ferðaþjónustusvæðum, grænum
svæðum í þéttbýli svo nokkuð
sé nefnt. Námið er einnig góður
undirbúningur fyrir háskólanám
í skógfræði og landgræðslu,
umhverfisfræði og líffræði.
Hægt er að sækja um nám á
haustönn 2020 á heimasíðu LbhÍ:
lbhi.is
Björgvin Örn Eggertsson,
námsbrautarstjóri Skógar
og náttúru, LbhÍ Reykjum
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Skógur og náttúra:
Námsbraut um ræktun skóga
og umönnun þeirra
Nemendur á braut skógar og náttúru sá trjáfræi í tilraunahúsinu á
Reykjum. Myndir / Björgvin Ö. Eggertsson
Christian Lund er kúabóndi og formaður KVÆG, sem er það svið innan dönsku bændasamtakanna sem snýr að
nautgriparækt.
Kvægkongres 2020:
Styrkur nautgriparæktarinnar
felst í samstöðunni
Ráðgjafa- og þróunarfyrirtækið SEGES hefur umsjón með og stendur fyrir
Kvægkongres á hverju ári.
Ida Storm, framkvæmdastjóri KVÆG, ræddi m.a. um mögulegar breytingar
á starfsumhverfi danskra kúabænda í framtíðinni.
Hallur Björgvinsson skoðar skjólbelti með nemendum.
Nytjaviður í hlíðum Reykjafjalls.