Bændablaðið - 19.03.2020, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 43
gang jafnvel þó svo að hið danska
Siðferðis- og dýravelferðarráð hafi
samþykkt þetta framleiðsluferli.
Vegna þessa hefur búgreinin nú
tekið ákvörðun um að banna þessa
aðferð frá og með árinu 2022 en
það verður þó framvegis heimilt
að aflífa kálfa í neyð s.s. vegna
alvarlegra sjúkdóma eða af öðrum
slíkum ástæðum. Athygli vekur að
það eru ekki yfirvöld sem hafa tekið
þessa ákvörðun heldur búgreinin
sjálf.
Hvatti til samvinnu
Formaðurinn hafði fleiri hug-
myndir sem hann henti fram á árs-
fundinum og voru margar þeirra
fyrst og fremst í tengslum við
danska löggjöf eða varðandi vanda-
mál sem eiga ekki beint erindi við
íslenskar aðstæður. Eitt sagði hann
þó sem er allrar athygli vert en það
var að hann lagði til að kúabændur
ættu að horfa meira til samvinnu
í tengslum við gróffóðuröflunina.
Þetta hefur greinarhöfundur bent á
nokkrum sinnum áður í tengslum
við umfjöllun um góðan árangur
kúa-bænda í Ísrael og er afar jákvætt
að sjá danska kúabændur byrja að
feta þessa sömu leið núna. Christian
Lund sagði m.a.
„Þegar við erum að hugsa um
framleiðslu á gróffóðri ættum við
etv. að horfa til samvinnu og hugsa
út fyrir okkar eigin bújörð,“ sagði
hann og gat þess að sumir væru
einfaldlega afar góðir í jarðrækt og
aðrir í fjósverkum og hér væri upp-
lagt að horfa til víðtækrar samvinnu.
Eftir 20 ár?
Christian sagði að þegar hann hóf
búskap fyrir 20 árum þá hefði hann
ekki getað ímyndað sér stöðu bú-
greinarinnar eins og hún er í dag og
að sama skapi sagði hann að hann
hefði ekki hugmynd um hvernig
staðan yrði árið 2040. Eitt væri þó
víst, að staða búgreinarinnar þá
verður ekki eins og hún er í dag.
„Við þurfum öll að finna okkar
leið inn í framtíðina en ég er þess
fullviss að sú leið verður betri ef
við förum saman frekar en í sitt
hvoru lagi. Saman sköpum við það
umhverfi sem við búum í og gerum
okkur sjálfum og þeim sem taka
við búum okkar mögulegt að halda
áfram í búskap í framtíðinni,“ sagði
Christian að lokum.
„Mjólkur“prótein í tönkum?
Framkvæmdastjóri samtakanna, Ida
Storm, kom inn á í erindi sínu að
miklar og örar breytingar eigi sér
stað nú og breytt neyslumynstur og
veðurfar gæti gert það að verkum
að kúabú framtíðarinnar gætu þurft
að breyta rekstri sínum á komandi
áratugum.
„Sumir setja spurningamerki við
framtíð okkar búgreinar og hvort
hún muni hafa tilgang í framtíðinni
eða hvort kýr muni yfirhöfuð hafa
eitthvað hlutverk eftir um áratug
eða svo. Sumir telja að við eigum
frekar að rækta gras eða þörunga
sem svo megi nota áfram til að
framleiða „mjólkur“ prótein með
erfðabreyttum örverum í gerjun-
artönkum“, sagði Ida og bætti við
að það megi vel vera að hlutverk
búgreinarinnar muni breytast í
framtíðinni en hvað svo sem gerist,
þá trúi hún því að danskir kúabænd-
ur muni skipa mikilvægt hlutverk
um ókomna tíð í matvælafram-
leiðslunni.
„Fólki í heiminum fjölgar stöð-
ugt og hlutfall þeirra efnameiri
hækkar jafnt og þétt. Allt þetta fólk
þarf bragðgóðan og næringarríkan
mat og þá koma bæði mjólk og kjöt
sem náttúrulegur hluti af fjölbreyttu
fæði“.
Hluti virðiskeðjunnar
Ida lagði þó áherslu á það að
kúabændur landsins ættu ekki að
velkjast í vafa um það að í fram-
tíðinni yrði hörð samkeppni um
hylli neytenda og að ef vörur bú-
greinarinnar eigi að enda í inn-
kaupakörfum neytenda framtíðar-
innar þá þurfi búgreinin að sanna að
vörurnar væru með sérstöðu. Hluti
af því væri að bændur tækju meiri
ábyrgð á þeim matvælum sem þeir
framleiða og skynji sig sem hluta
af virðiskeðjunni, en ekki einungis
fyrsta þrep framleiðslunnar eins og
svo margir gera.
Hjartamerking
Í því samhengi ræddi Ida nýtt op-
inbert merkingakerfi á landbún-
aðarvörur en Danir kalla kerfið
„Hjartakerfið“. Þetta er sérstakt
merkingakerfi sem var komið upp
af danska ríkinu, samtökum þar-
lendra verslana og ýmissa dýravel-
ferðarsamtaka og eru matvörurnar
merktar með einu hjarta, tveimur
eða þremur eftir því dýravelferðar-
mati í hverju tilfelli fyrir sig. Því
fleiri hjörtu sem varan er merkt
með, því betri er dýravelferðin talin
vera og snýst þetta m.a. um að gefa
kálfi og kú meiri tíma saman svo
lítið dæmi sé tekið.
Ida minnti á að almennar kröfur í
danskri nautgriparækt væru þannig
í dag að þó svo að kúabúið hefði
ekki fengið framangreinda hjarta-
vottun, þá væri dýravelferðin góð.
Það væri þó þannig að markaður
væri fyrir sérmerkingar og fengu
þeir bændur sem leggja á sig
auka vinnu við að uppfylla kröfur
„Hjartakerfisins“ greitt aukalega
fyrir afurðirnar.
Vilja bæta mjólkurgæðin
Ida kom einnig inn á að of mörg
kúabú landsins fari á mis við
gæðaálagsgreiðslur á mjólkina. Of
margir lentu í einhverskonar áföllum
annað hvort vegna frumutölu eða
líftölu sem kostaði búin mikla
peninga. Sýna útreikningar að
meðal 50% bestu búanna megi þó
að jafnaði bæta hag þeirra allra
um 2.000 ÍKR á árskúna, með
því að bæta mjólkurgæðin. Það
væru þó mörg bú sem gætu bætt
hag sinn mun betur og meðal þess
hluta búa sem tapaði mestu vegna
mjólkurgæða þá sýndu útreikningar
að 25% búa landsins gætu bætt hag
sinn um 6 þúsund ÍKR á árskúna ef
mjólkurgæðin væru betri og síðasti
fjórðungur búa landsins gætu bætt
hag sinn um 20 þúsund á árskúna ef
þau taka á mjólkurgæðamálunum!
SEGES hafi því ákveðið að koma
á fót nýju ráðgjafartilboði sem snúi
að því að bæta mjólkurgæðin enn
frekar. Í þessu kerfi munu bændur
geta farið í áskrift að ráðgjöf og með
ábyrgð, þ.e. tryggingu fyrir því að
ná árangri.
Básafjósin eiga rúm sex ár eftir
Danski matvælaráðherrann, Mogens
Jensen, hélt ræðu á ársfundinum og
kom víða við. Hann gat þess m.a. að
í dag væri búið að banna básafjós til
mjólkurframleiðslu en í raun ekki
til kjötframleiðslu. Þetta sagði hann
einfaldlega mistök sem þyrfti að
leiðrétta, það væri fráleitt að leyfa að
binda holdakýr en ekki mjólkurkýr
að sjö árum liðnum, en í Danmörku
verður ekki lengur heimilt að
framleiða mjólk í básafjósum eftir
áramótin 2026-2027.
Mogens boðaði það að hann
myndi setja á bann við bindingu
allra nautgripa frá sama tíma og
sagði um leið að hann væri með öllu
mótfallinn því að lengja í tímanum,
þ.e. seinka gildistöku laganna en
búgreinin hefur reynt að fá frestun
á gildistökunni til ársins 2032.
Vill hækka styrkina!
Danski ráðherrann kom einnig með
ánægjulegar fréttir inn á aðalfundinn
en hann sagði dönsku ríkisstjórnina
hafa vilja til að efla stuðning sinn
við dönsku nautgriparæktina enn
frekar. Þannig hafi hann lagt til við
danska þingið að auka stuðning
við nautakjötsframleiðslu um 1,3
milljarða íslenskra króna frá og
með árinu 2021 og að þeirri upphæð
verði allri varið til gripagreiðslu á
sláturgripi.
Tilgangurinn með þessari
aðgerð væri að efla innlenda
framleiðslu á nautakjöti enn frekar
og styrkja samkeppnisstöðu danskra
kúabænda gagnvart kúabændum í
öðrum löndum Evrópu en margir
danskir bændur hafa selt smákálfa
til uppeldis erlendis, þar sem
bændur í öðrum löndum Evrópu
hafa getað greitt mun hærra verð
fyrir smákálfa en danskir bændur
í nautaeldi. Með þessum sértæku
aðgerðum telur danski ráðherrann
að samkeppnisstaðan styrkist og
dönsk nautakjötsframleiðsla muni
eflast enn frekar. Þá sé þetta skref
einnig jákvætt fyrir markaðinn
enda séu dýravelferðarkröfurnar í
Danmörku strangari en í nágranna-
löndunum og þar með muni hlufall
kjöts af gripum, sem hefur verið
hlúið betur að, hækka.
Byggt á ýmsum dönskum
greinasöfnum
Kvægkongres er stærsta árlega nautgriparæktarráðstefnan í norðurhluta Evrópu og er alltaf afar fjölmenn. Í ár sóttu hana heim um 2.300 gestir.
Segja má að þema ráðstefnunnar í ár hafi verið „Við erum sterkari saman“ og var þar vísað í stöðu búgreinarinnar
á landsvísu og í heimssögulegu samhengi enda er dönsk nautgriparækt í að stórum hluta útflutningsgrein.
Bænda
2. apríl
Fjölmenni var á hinu árlega Kvæg kongres í Herning í Dan mörku en um var
að ræða ársfund dönsku nautgripa ræktar innar.