Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Síða 11
Áhorfandinn hverfur á vit myndarinnar.
kynningarefnis virtust menn ekki
hafa hugað að markhópnum. Þannig
var stundum rakið það helsta sem
einkenndi ákveðin tímabil í ævi
Errós. I eitt skipti var lýst tilurð
ákveðinnar myndraðar en síðan ein-
ungis fjallað um tiltekna mynd í
röðinni. Hins vegar var lítið um lýs-
ingar á einstökum listaverkum.
Ánœgja
með tilraunina
Þegar haft var samband við Eirík
Þorláksson, forstöðumann Listasafns
Reykjavíkur og ánægju lýst með
tilraunina sagðist hann einnig vera
ánægður með viðbrögðin. „Við
höfum fengið yfirlit yfir notkun (þ.e.
fjölda hringinga og mínútufjölda)
sem bendir til að þetta hafi náð
nokkrum vinsældum."
Eiríkur var því næst spurður hvað
hefði ráðið því hvernig kynningarnar
voru úr garði gerðar.
„Við upphaf verkefnisins var leitað
eftir ákveðnu jafnvægi rnilli al-
mennra upplýsinga (um tímabil, feril
o.s.frv.) og takmarkaðri lýsinga (þ.e.
um ákveðin málverk), en auðvitað
skarast þetta að vissu marki. Það var
einnig ákveðið að leita til ýmissa
aðila (listfræðinga, listamanna og
annarra) til að fá umsagnir og veita
TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS
þeim nokkurt frelsi í sinni umfjöllun.
Markmiðið er að þarna sé sem mest
efni fyrir almenna gesti safnsins,
ekki of fræðilegt en heldur ekki of
bókstaflegt. Jafnvægi þarna á milli
verður ætíð viðkvæmt og erfitt að sjá
fyrir sér að það verði nokkum tíma
þannig að öllum líki - en þá verður
ætíð hægt að halda áfram að leita
nýrra leiða.“
Nú lauk Erró-sýningunni um ára-
mótin. Mér lék því hugur á að for-
vitnast um framhald þessarar leið-
sagnar.
„Þetta GSM-leiðsagnakerfi verður
þróað áfram. Erró-sýningunni er að
vísu lokið en það verður sett upp ný
sýning og leiðsögninni breytt miðað
við hana. Síðan er ætlunin að þróa á
næstunni samsvarandi leiðsögn urn
sýningu á verkum Kjarvals á Kjarv-
alsstöðum, verk Ásntundar Sveins-
sonar í Ásmundarsafni og loks um
valdar stærri sýningar sem verða
haldnar innan safnsins í framtíðinni.
- Þetta er því leiðsagnarkerfi sem er
komið til að vera og mun vonandi
eflast og styrkjast í framtíðinni.
Nú standa yfir samningaviðræður
um hvort þetta geti áfram verið gest-
um að kostnaðarlausu (eða þá hvaða
kostnað verði um að ræða); við
gerum okkur í dag góðar vonir um að
þetta geti verið ókeypis áfram, a.m.k.
á næsta ári.“
Hvað má bæta
í kerfinu?
Greinilegt er að forráðamenn Lista-
safns Reykjavíkur hafa til þess metn-
að að gera þetta kerfi sem best úr
garði. I væntanlegri þróunarvinnu
mætti hafa eftirtalin atriði í huga:
Huga þarf nánar að markhópnum
sem höfða á til.
Breyta þarf kerfinu þannig að
menn geti hætt í miðri frásögn og
haldið síðan áfram á sama stað.
Lýsa þarf betur einstökum lista-
verkum sýningarinnar.
Listasafnið kanni hvort ekki sé
rétt að bjóða sérstök segulbands- eða
rafræn tæki sem menn geti hengt á
öxlina. Það er þreytandi að halda
GSM-símum upp að eyranu til
lengdar. Því er þeim bent á sem ætla
að nýta sér leiðsögnina að fá sér
heyrnartól við símann sinn áður en
farið er á Listasafn Reykjavíkur til
þess að njóta fræðslu unt listaverkin.
Listasafni Reykjavíkur er óskað til
hamingju með þessa tilraun. I megin-
atriðum telst hún hafa heppnast vel.
A.H.
ii