Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Page 15
starfsfólkið en Gunnar þreifar á blindra-
letursborðinu og þá veit hann í hvaða fyrir-
tæki er verið að hringja. Hann notar einnig
fótstig og þá svarar hann en um leið setur
hann höndina á takkaborðið. Gunnar segir að
Samskip séu góður vinnuveitandi og hafi
ávallt greitt götu hans. Sjónstöð Islands lætur
í té búnaðinn sem Gunnar notar í sínu starfi.
Gunnar hefur fikrað sig áfram í tölvu-
þjálfun. „Þegar símvirkjarnir voru að setja
upp símkerfið hér reyndi ég að fá allar
upplýsingar hjá þeim. Ef eitthvað bilar í
símkerfinu þá hringi ég í þá og kvarta þeir þá
oft yfir að ég spyrji of mikið“, segir Gunnar
og brosir. Gunnar hefur tekið að sér að kenna
öðru starfsfólki í húsinu á símkerfið og ef
einhver minniháttar bilun verður á kerfinu þá
fer Gunnar í málið. Hjá Samskipum er, eins
og á öðrum stórum vinnustöðum, innanhúss-
tölvupóstur og les talgervillinn allan póst
sem berst til Gunnars. „Ég hef líka notað for-
rit sem heitir Talpóstur og ætla ég að reyna að
fá meiri þjálfun í notkun þess forrits“, segir
Gunnar.
Málin ekki í góðum
farvegi
Gunnar hefur fengið tölvuþjálfun hjá Dóru
Pálsdóttur, áður kennara í Hringsjá, starfs-
þjálfun fatlaðra. Hann langar til að læra
meira og komast á fleiri tölvunámskeið.
Gunnar segist ekki vita hvert hann geti snúið
sér til að fá meiri þekkingu á það kerfi sem
hann notar. Blindraleturshugbúnaðurinn sem
hann notar er mjög flókinn og ef eitthvað
bilar þá tekur mjög langan tíma að laga það
því það eru mjög fáir hér á landi sem kunna
þar til verka. Hann segist oft þurfa að hringja
í marga aðila og stefna þeim saman á sama
tíma en það reynist oft erfitt. „Ef það þarf að
leita tæknilegra lausna þá þarf að elta menn
úr mörgum áttum til að leysa vandann. Það
sem einn þekkir þekkir ekki hinn. Það er
nauðsynlegt að einn og sami maðurinn hafi
heildarsýn á þessi mál. Tölvumálin hjá blind-
um eru ekki í nógu góðum farvegi“, segir
Gunnar. Hann segir þetta óviðunandi og þarf
þjónustan í kringum þetta kerfi að vera mun
betri en hún er núna. Gunnar segir einnig að
það hafi ekki verið nægilega mörg tölvu-
námskeið fyrir blinda þar sem kennt er á
þann búnað sem er í boði hér á landi.
Fatlaðir fái tœkifœri
til að nýta tœknina
Gunnar leggur mikla áherslu á að fatlaðir
nýti sér tæknina og fái þá leiðsögn sem þurfi.
Hann segir að oft fylgi þróun tækja fyrir
fatlaða ekki þeirri tækniþróun sem almenn er.
Windows '95 var orðið ágætlega þróað fyrir
búnaðinn sem Gunnar notar en Windows
2000 er ekki eins vel á veg komið og segir
Gunnar að það komi upp vandi sem tókst að
leysa áður, en lausnirnar á sams konar vanda
eru enn sem komið er vart fyrir hendi hér á
landi.
Gunnar er bjartsýnn á framtíðina og segist
viss um að einn daginn komist þessi mál í
gott horf. Tækninni fleygir fram og finnst
Gunnari heldur alvarlegra þegar öryrkjar fá
ekki þau tækifæri sem aðrir fá vegna þess að
það sé kreppt að þeim fjárhagslega.
K.Þ.
Gunnar segir nauðsynlegt að fatlaðir fái tölvuþjáifun.
TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS
15