Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Qupperneq 31

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Qupperneq 31
stofnunar í Vestur-Svíþjóð (Försakringskass- an). Hann sagði frá hvemig ástandið þar í landi væri og hvað gert hefur verið til bóta. Innlegg Sven-Olof í umræðuna um samstarf stofnana var mjög áhugavert. Öll endurhæfing þar í landi er starfsmiðuð og skoðað er hverju þarf að sinna til að endurhæfingin geti orðið sem ár- angursríkust. Hann kynnti SASSAM - lfkanið eða mats- tækið en það er eins konar eyðublað sem allir fagaðilar fá í hendumar. Með því er hægt að safna grunnupplýsingum um einstakling sem þarf að leita til margra sérfræðinga. I stað þess að grafast þurfi fyrir um sögu og ástand ein- staklingsins er þetta blað haft til hliðsjónar þar sem búið er að fylla í alla reiti helstu upp- lýsingar. Þetta flýtir ferlinu og einstaklingurinn kemst fyrr í endurhæfingu sem er bráð- nauðsynlegt. Sven-Olof sagði að líkanið væri verkfæri til að fá heildarsýn á ástand einstak- lingsins og gengi út frá því að koma fólki út á vinnumarkaðinn aftur. Sven-Olof sagði að hér á landi þyrfti að gera áætlun um uppbyggingu endurhæfingar þar sem verksvið hvers og eins yrði skilgreint. Hann sagði að það væri nauðsynlegt að auðvelda endurhæfingarferlið með: skipulagðri athugun með heildarsýn að taka mið af þörfum einstaklingsins að tryggja samfellu í ferlinu að hafa ábyrgð á endurhæfingu einstaklingsins skýra að sá/þeir sem bera ábyrgð á endurhæfingu ein- staklingsins hafi fagþekkingu, umboð og úr- ræði til að veita einstaklingnum nægilegan stuðning að samhæfa skipulag og fjármagn vegna stuðningsaðila Sven-Olof benti á í lokin að einstaklingurinn sjálfur væri mikilvægasti aðilinn í endur- hæfingarferlinu. Gunnar Kr. Guðmundsson þakkaði Sven-Olof fyrir erindið og sagði það vera mjög áhugavert. Hrafnhildur Tómasdóttir, félagsráðgjafi, hélt erindi um endurmenntun atvinnulausra. Hún sagði nauðsynlegt að viðhalda starfshæfni og að fólk geti lagað sig að breytilegum aðstæðum en það tryggi stöðu þess á vinnumarkaði. Hún sagði, eins og áður hefur komið fram, að 30 % öryrkja hefðu aðeins grunnskólapróf, væru því á lægstu laununum og það væri minna um endurmenntun á meðal þessa hóps. Einstaklingar í þessari stöðu hafa oft lítið sjálfstraust og þurfa mikla hvatningu. Hrafn- hildur vakti athygli á að það stæðu manneskjur á bak við tölurnar þegar talað er um „jafn- vægisatvinnuleysi“ og hvaða áhrif sú umræða hefur. Hún benti einnig á að örorka hafi sömu áhrif og atvinnuleysi. Við búum í vinnumiðuðu landi og fólk tengir sjálfsmynd sína við starf sitt og spurningin væri alltaf „hvað gerirðu“? í Mikilvægt að endurhæfing sé starfsmiðuð. Frá nýja tækjasalnum á Reykjalundi. stað „hvernig hefur þú það“? MFA-skólinn reynir að styrkja einstakling- ana, veitir þeim ráðgjöf og eins og Hrafnhildur orðaði það „þar lærir fólk að læra“. Þeir sem hafa verið atvinnulausir langtímum saman fá aðstoð eftir þörfum í MFA-skólanum. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumála- stofnunar, talaði um starfshæfni þeirra sem hafa verið lengi atvinnulausir. Hann hefur orðið var við í starfi sínu að fólk sem hefur verið lengi atvinnulaust missi oft félagslega færni sína. Þá væri það algengt viðhorf hjá at- vinnuveitendum að einstaklingur sem hefur verið atvinnulaus lengi væri ekki góður starfs- kraftur. Hann hélt því fram að færri þyrftu á endurhæfingu að halda þegar atvinnuleysi væri lítið og þá vildi gildi endurhæfingarinnar gleymast. Hann sagði að langtímaatvinnuleysi væri að mestu bundið við höfuðborgarsvæðið og þar væri þörfin fyrir starfsendurhæfingu brýnust. TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.