Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 38
Þórunn Traustadóttir og Dóra Pálsdóttir.
LESBLINDA
eins og t.d. íslensku og félagsfræði fá nem- ,
endur að vinna ritgerðirnar í tímum hjá henni.
Þar tvinnast þetta allt saman, tölvunotkun og
textameðferðin.
Að slá texta
inn á tölvu
Þegar Dóra var í náminu sagði einn kennara
hennar frá ungum manni sem átti við lestrar-
og skriftarörðugleika að stríða en honum hafði
farið mikið fram eftir að hafa reynt ákveðna
námsaðferð. Henni lék forvitni á að vita hver
þessi aðferð var og vildi fá nánari upplýsingar.
„ Ég varð mjög forvitin og vildi fá að vita af
hverju honum hafði farið svona mikið fram og
hvaða aðferð hafi verið notuð“, segir Dóra.
Aðferðin felst í því að velja texta sem nem-
andinn hefur áhuga á, það má vera íþróttafrétt
skemmtileg bók eða hvað sem er, og síðan
slær hann inn textanum í ritvinnslu. Það er þó
mikilvægt að nemandinn læri fingrasetningu
fyrst. Árið 1985 gerði Marit Helgheim, kenn- *
ari við Sérkennaraháskólann í Osló, rannsókn
á 16 nemendum í framhaldsskóla sem höfðu
lestrar- og skriftarörðugleika. Þeir tóku staf-
setningarpróf við upphaf og lok rannsóknar-
innar. Verkefnið stóð í fimm mánuði og áttu
nemendumir að vinna verkefni heima og var
skilyrði að þau gerðu verkefnin samviskusam-
lega. Þeir áttu einnig að vinna öll sín
heimaverkefni úr skólanum á tölvuna eins og
Æfingin skapar
meistarann
og tölvurnar hjálpa
- segja þær Dóra Pálsdóttir og
Þórunn Traustadóttir kennarar
Dóra Pálsdóttir hefur verið kennari
hjá Hringsjá, starfsþjálfun fatlaða
s.1.14 ár en áður kenndi hún í
Heyrnleysingjaskólanum. Eftir 17
ára kennslu þar fór hún til Noregs í fram-
haldsnám við Sérkennaraháskólann í Osló.
Námið heitir Tölvur í sérkennslu og að því
loknu gerðist hún tölvukennari hjá Hringsjá.
Dóra hefur kennt tölvulæsi og þjálfað
nemendur í að verða fullfærir tölvunotendur.
Nemendur fá að kynnast öllum helstu forrit-
um sem eru notuð í dag. Hún leggur einnig
mikla áherslu á að nemendur læri rétta fingra-
setningu. Ef skrifa þarf ritgerð í öðrum fögum
38