Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Síða 41

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Síða 41
Að hafa eitthvað að segja egar ég var tíu ára var mér tilkynnt að birta ætti eftir mig frásögn í Jólasveininum, en í því merka blaði sem kom út fyrir hver jól í Bamaskóla Akureyrar, var að finna nokkrar úrvalsritgerðir eftir nemendur skólans. Stoltur afhenti ég kennara mínum ritgerðina, sem hét að mig minnir FERÐALAGIÐ í SVEITINA og gat varla hamið eftirvæntinguna þær vikur sem bíða þurfti þar til hún birtist. Loks rann útgáfudagurinn upp og með skjálfandi fingrum opnaði ég brakandi nýtt blaðið í leit að mínu fyrsta ritverki á prenti. En það var sama hvað ég fletti oft í gegnum síðumar sextán - ritgerðina mína var hvergi að finna. Sært stoltið varð allri heilbrigðri réttlætis- kennd sterkari. Eg kaus því að láta sem ekkert væri og krafði kennara minn aldrei skýringa. Eg þóttist nefnilega vita hvar skórinn kreppti: Það hlaut að vera einhver villa í ritgerðinni, svo alvarleg að ekki þætti forsvaranlegt að birta hana í jafn virtu riti og Jóla- sveininum. Líklega hafði ég beygt KÝR vitlaust eða haft eitt enn í SÆUNNI. Það hvarflaði semsagt ekki að mér að ritgerðin, sem lýsti viðburðasnauðri flugferð milli Akureyrar og Egilsstaða, hefði einfaldlega verið leiðinleg. Inni- haldslaus. Eg vissi sjálfsagt sem var að það skiptir meira máli á Islandi hvort það sem maður segir sé “rétt” eða hljómi vel, en það hvort maður hafi yfirleitt eitthvað að segja. Mér tókst um sinn að koma í veg fyrir að svona upp- ákomur endurtækju sig með því að gefa út prívat málgögn þar sem mín skrif fengu ávallt inni. Það leyndi sér ekki að þessi ungi maður gekk með rithöfundinn í maganum þó augljóst væri að vegur hans yrði enn um sinn tak- Mynd: Mbl. Þorvaldur Þorsteinsson markaður við eigin útgáfu. Sérstaklega ef miðað var við mælskumennina í MA og síðar HI sem aldrei þreyttust á að vitna í höfuðskáldin máli sínu til stuðn- ings og minna mig á, með sinni leiftrandi orðsnilld, að sá dagur væri langt undan að mín skrif yrðu birt í Jólasveinum bókmennta- heimsins. Það endaði með því að ég meðtók skilaboðin, lagði rit- höfundadrauma á hilluna, hætti í íslenskunámi í Háskólanum og færði mig yfir í Nýlistadeild MHI. Og fór að skrifa. Ekki sem “penn- inn” sem mig langaði að vera heldur sem sá skissublýantur sem ég var. Og til að gera langa sögu stutta, þá var það í gervi mynd- listarskussans sem engar reglur kann og ekkert hefur lesið sér til gagns, sem ég laumaði mér ein- hvern veginn bakdyramegin inn í rithöfundadrauminn aftur. Og svei mér þá ef hann er ekki farinn að rætast örlítið. Bara í allt annarri mynd en mig hafði dreymt um. Sem betur fer. Þorvaldur Þorsteinsson 2001. Þessi grein birtist á vef Borgar- bókasafnsins, www. borgarboka- safn.is Hlerað í hornum Sá feimni úr sveitinni var kominn í borgina og vildi nú fá vin sinn með sér á dansleik. Verst væri, sagði hann, hve hann væri feiminn og ætti erfitt með að tala við dömurnar í dansinum. Vinurinn sagði það engan vanda, það væri bara að slá þeim gullhamra nógu duglega. Nú fara þeir á ballið og sá feimni býður upp stúlku og þau dansa um stund en svo sér vinurinn að daman rýkur burt frá dansherranum í rokna fússi. “Hvað sagðirðu eiginlega?” “Jú, ég var bara að slá henni gullhamra, því ég sagðist dást að því hvað hún svitnaði lítið í dansi af svona feitri manneskju að vera”. *** Náungi með risvandamál kom til læknis og kvartaði sáran. Læknirinn lét hann hafa viagra og með það fór maðurinn. Mörgum vikum seinna hitti læknirinn manninn á götu og hældi hann lyfinu á hvert reipi. “Og er konan þín ekki ánægð?”, spurði læknirinn. “Konan mín. Það veit ég ekkert um, ég hef ekki komið heim síðan við sáumst á stofunni”. Bónda sem kom í kaupstað varð það á að stíga á faldinn á kjól hefðarfrúar sem hún dró á eftir sér. Frúin lítur við og segir: “Hefurðu ekki augu í hausnum, nautið þitt?” Bóndinn: “í sveitinni höfum við ekki kýr með svona löngum hala, svo ég varaði mig ekki héma”. *** Móðirin: “Þú eyðileggur heilsu þína Soffía með því að reyra lífstykkið þitt svona fast að þér”. “Það getur vel verið móðir mín, en því taka menn ekki eftir á götunni”. *** Sögur herma að á vegaskilti á vest- firskri heiði standi: Ef þetta skilti sést ekki er vegurinn lokaður vegna snjóa. *** Læknirinn segir við sjúklinginn: “Eg sé ekki betur en þú þurfir að fá þér gleraugu”. “En ég er með gleraugu”. “Jæja, þá þarf ég líklega að fá mér gleraugu”. TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS 41

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.