Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Síða 44

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Síða 44
BANKASTRÆTI Auglýsing um fasteignagjöld í Reykjavík árið 2002 Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 2002 verða sendir út næstu daga, ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjalda, og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda með boðgreiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í sparisjóðum, bönkum eða á pósthúsum. Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald og sorphirðugjald. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun árið 2002, að teknu tilliti til tekju- og eignaviðmiðunar. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega eftir framlagningu skattskrár Reykjavíkur. Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi hjá þeim er eiga rétt á þeim samkvæmt þeim reglum er borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, ásamt 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. einnig lög nr. 137/1995. Verður viðkomandi tilkynnt um breytingar ef þær verða. Á fundi borgarráðs þann 11. desember s.l. var samþykkt að tekjumörk vegna lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2002 hækki um 19% á milli ára og verði sem hér segir: (Miðað er við tekjur liðins árs). 100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að kr. 1.155.000- Hjón með tekjur allt að kr. 1.615.000- 80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.155.000- til kr. 1.330.000- Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.615.000- til kr. 1.860.000- 50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.330.000- til kr. 1.530.000- Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.860.000- til kr. 2.140.000- Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir sem ekki fengu lækkun á sl. ári sent framtalsnefnd umsókn um lækkun, ásamt afriti af skattframtali 2002. Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla þriðjudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur, frá 5. febrúar til 30. apríl n.k. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í síma 552-8050, alla þriðjudaga kl. 10.00 til 12.00. Hreinsunardeild, Umhverfis- og heilbrigðisstofu, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 567-9600, og í bréfasíma 567-9605. Orkuveita Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34, veitir þær upplýsingar sem snerta álagningu og breytingar á vatnsgjaldi í síma 585-6000, og bréfasíma 567-2119. Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563-2062, og bréfasíma 563-2033. Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 15.000- fyrir árið 2002 eru: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 15.000-, og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna í maí, er 1. maí. Reykjavík, 15. janúar 2002 Borgarstjórinn í Reykjavík. Reykjavikurboi^

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.