Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 15
Hótel Keflavík er opið og að taka á móti gestum
þessa dagana þrátt fyrir COVID-19. Nokkuð
hefur verið af erlendum gestum á hótelinu síðustu
vikur sem m.a. hafa dvalið þar langdvölum.
„Eftir 34 ár sem hótelstjóri og eig-
andi Hótel Keflavík þá er óhætt að
segja að síðustu vikur og mánuðir
hafa verið bæði þeir skrýtnustu
og erfiðustu frá upphafi. Ég ákvað
strax að hafa hótelið áfram opið,
kann bara ekkert annað, þó það sé
kannski ekki að skila sér beint tekju-
lega til skamms tíma enda kostnaður
oft sá sami þó gestir séu færri. Hitt
er að okkur finnst við bera skyldu
til að þjóna gestum sem hafa staðið
með með okkur til tuga ára og vera
með opið. Við náum þessu aftur til
baka á næstu 34 árum,“ segir hann
og brosir.
Flestir starfsmenn
á hlutabótum
„Flestir starfsmenn hótelsins og KEF
veitingastaðarins eru komnir á hluta-
bótaleiðina,“ segir Steinþór, „en við
hjónin höfum staðið vaktina allan
sólarhringinn á móti. Það er bara
eins og við Hildur gerðum ásamt for-
eldrum mínum í upphafi og fannst
það eðlilegt. Það er því miður alltof
algengt að fólk vill vera með þegar
vel gengur en hverfur þegar á móti
blæs. Við höfum notið velgengni í
yfir 30 ár og tökum nú því sem að
höndum ber.“
KEF veitingastaður hefur líka verið
opinn þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
„Það er ekki síst til að sýna tryggum
viðskiptavinum þakklæti fyrir ótrú-
lega jákvæðni gagnvart veitinga-
staðnum. Þegar aðrir loka bítum við
á jaxlinn og höfum opið. Við vonum
að um leið og samkomubanni lýkur
getum við tekið vel á móti öllum
bæjarbúum sem vilja hafa góðan veit-
ingastað opinn í sínu nærumhverfi.“
Nú er verið að klára framkvæmdir
í móttöku hótelsins sem hafa tafist
í því ástandi sem nú er. Steinþór
segir að eftir nokkrar vikur muni
þar opna m.a. Diamond Bar, „sem
verður án efa einn glæsilegasti bar
landsins ásamt glerhúsum sem munu
geta opnast alveg á fallegum sólar-
dögum.“
Steinþór segist þakklátur fyrir að
áherslur eigenda hótelsins síðustu
tvö árin voru að fjárfesta í gæðum
í stað þess að fjölga herbergjum og
gera eitthvað sem ekki hefur sést á
hótelum á Íslandi. „Það er gaman
að gera þannig hluti í Keflavík. Þá
verður það stór dagur þegar síðustu
herbergin á Hótel Keflavík hafa verið
endurnýjuð og við losnað við gólf-
teppin. Teppalaus herbergi, sem og
krafa um baðkör á herbergjum, er
einfaldlega grunnkrafa nú á tímum
og þangað eru við að fara. Þetta
verður verður erfiður tími en fram-
kvæmdum er að ljúka og þegar
erlendir gestir koma aftur verðum
við tilbúin með glæsileg fjögurra
og fimm stjörnu hótel eins og þau
gerast best í heiminum. Það ásamt
veitingastaðnum KEF og Diamond
Bar mun vera öflug lyftistöng fyrir
bæjarfélagið okkar,“ segir Steinþór.
Jórdanir gistu á hótelinu
vikum saman
Það eru ekki bara þotur Icelandair
sem hafa staðið verkefnalausar á
Keflavíkurflugvelli vikum saman.
Airbus A330-200 frá Jordan Avi-
ation í Jórdaníu stóð verkefnalaus á
Keflavíkurflugvelli í næstum mánuð.
Áhöfnin, fjórtán manns, gisti á Hótel
Keflavík á meðan vélin stóð á stæði
á austurhlaði Keflavíkurflugvallar.
„Jú, það er rétt að áhöfnin gisti hjá
okkur í nokkrar vikur,“ segir Stein-
þór. Áhafnir einkaflugvéla sem hafa
viðkomu á Keflavíkurflugvelli hafa
einnig gist á hótelinu síðustu vikur,
sem og vinnuhópar, þannig að það
er líf á hótelinu alla daga.
Tökum nú því sem að höndum ber
– segir Steinþór Jónsson á Hótel Keflavík en það er eina hótelið sem hefur verið opið að undanförnu.
Airbus A330-200 þota Jordan
Aviation á Keflavíkurflugvelli.
VF-mynd: Sigurður B. Magnússon
Áhöfnin frá Jordan
Aviation ásamt Steinþóri
hótelstjóra við Hótel
Keflavík á laugardaginn
þegar áhöfnin yfirgaf
hótelið eftir næstum
mánaðargistingu.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 15