Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 51

Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 51
ingjuhornið til. Enn þann daginn í dag eru Suðurnesjamenn duglegir að lesa pistlana mína og núna um páskana byrjaði ég á því að dreifa bókunum mínum á Suðurnesjum, til þeirra sem höfðu pantað eintak í forsölu.“ Námskeið og fyrirlestrar framundan „Það er gaman að segja frá því að langflestar ljósmyndir í bókinni eru teknar af Ellert Grétarssyni, einstak- lega fallegar ljósmyndir eins og hans er von og vísa. Bókin hefur strax fengið mjög góðar viðtökur. Fram- undan hjá mér er að koma bókinni til lesenda vítt og breitt um landið. Hún verður fyrst um sinn seld á vefnum hamingjuhornid.is en svo langar mig líka að fylgja bókinni eftir með námskeiðum, fyrirlestrum og fleiru skemmtilegu,“ segir Anna Lóa. Anna Lóa og útvarp K100 „Ég hef verið að dreifa hamingju- kornum með vinum mínum á K100 í þættinum Ísland vaknar. Tilgangur- inn er alltaf sá sami – að við lítum inn á við og séum ekki að bíða eftir því að einhverjir aðrir eða eitthvað annað færir okkur hamingjuna á silfurfati. Ég finn mig vel í að láta gott af mér leiða og neita því ekki að þegar vel tekst til og maður finnur að maður getur haft jákvæð áhrif á aðra er vinnan meira gefandi. Svo verður maður líka að muna að fólk „blómstrar“ á mismunandi hátt og árangur hjá einum er ekki það sama og hjá öðrum. Áhrifin sem maður hefur á aðra koma mishratt og mis- vel í ljós og því á takmarkið ávallt að vera, að vanda sig sem fagmaður án væntinga um einhvern ákveðinn árangur og trúa því að það skili mestu,“ segir Anna Lóa og bætir við í lokin: „Mig langar að þakka fyrir móttökurnar kæru Suðurnesjamenn og aðrir landsmenn. Ég er jákvæð að eðlisfari en óraði ekki fyrir þeim viðbrögðum sem bókin mín hefur fengið.“ Störf í boði hjá Reykjanesbæ Njarðvíkurskóli– Starfsfólk skóla Garðyrkjudeild – Sumarstörf Velferðarsvið – Sérfræðingur Stapaskóli - Starfsfólk skóla Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum. Viðburðir í Reykjanesbæ Hljómahöllin Miðvikudaginn 29. apríl kl. 20:00 kemur tónlistarmaðurinn Auður fram ásamt hljómsveit í gegnum streymi á Facebook-síðu Hljómahallar, RÚV2, Rás 2 og ruv.is og Facebook-síðu Víkurfrétta. Bókasafn Laugardaginn 2. maí kl. 11:30 verður Halla Karen í beinu streymi með notalega sögustund. Lesið og sungið úr bókinni Áfram Latabær eftir Magnús Scheving. Skoðið fleiri spennandi viðburði á heimasíðu Reyjanesbæjar. Hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2020 Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningar- verðlauna fyrir verkefni í skólastarfi sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Verðlaunin eru veitt til einstaka kennara, kennarahópa og starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem standa að baki verkefnunum. Hvatningarverðlaunin verða afhent í Bíósal Duus Safnahúsa mánudaginn 8. júní kl. 17:00. Allir sem vilja geta sent inn ábendingar um áhugaverð verkefni sem hafa nýst skólasamfélaginu og hafa verið unnin á yfir- standandi skólaári. Skila þarf inn tilnefningum fyrir 15. maí nk. Gróa Björk Hjörleifsdóttir og Guðrún Lísa Einarsdóttir hlutu hvatningar- verðlaun fræðsluráðs 2019 fyrir verkefnið Jóga og slökun í Heiðarskóla. Markmið verkefnisins var að nemendur læri á tilfinningar sínar og geti nýtt sér aðferðir til þess að takast á við áskoranir daglegs lífs. Eyðublað fyrir tilnefningar má finna hér VF-myndir Marta Eiríksdóttir marta@vf.is Við berum mikla ábyrgð á hamingju okkar Bókin mín, Það sem ég hef lært, er byggð að hluta á því sem ég hef skrifað í Hamingjuhornið þannig að fólk getur flett upp á þeim málefnum sem eiga við hverju sinni, hvort sem það eru hversdagslegar áskoranir eða stærri verkefni ... Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.