Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 22
Fólk er smeykt við þessa veiru, hún
er svo óþekk og breytist dag frá degi,
alltaf er verið að komast að einhverju
nýju og fólk er hrætt. Ekki bætir á
ástandið að vera tekjulaus. Þetta er
búið að hafa gífurleg áhrif á Spán og
á bæinn minn líka. Þetta er mikill
ferðamannabær og hér er verið að
tala um að sumarið sé ónýtt. Búið
að aflýsa öllum bæjarskemmtunum,
tónleikum, leikhúsum, sundlaugar
opna eflaust ekki og ströndin verður
ekki sú sama og önnur sumur.“
Mamman átti erfiðast
með þetta
– Hvernig hefur tilveran verið
hjá þér undanfarnar vikur,
hefur margt breyst?
„Við höfum reynt að halda rútín-
unni svona nokkurn veginn, þótt
það sé farið aðeins seinna að sofa
og vaknað seinna, fyrir utan yngstu
skvísuna. Skólinn er búinn að vera í
aðalhlutverki myndi ég segja. Hann
var ekki tæknilega tilbúinn fyrir
þetta ástand og mikið vesen með
að fá heimavinnu og fara í tíma á
netinu og þess háttar. Hér eru 28
nemendur í bekk og ég er með tvær
í skóla þannig að þetta tók á taug-
arnar og gerir aðeins enn. Sú yngsta
(þriggja ára) fékk meira að segja smá
heimavinnu frá leikskólanum.
Seinnipartinn reynum við bara að
vera að gera það sem okkur finnst
skemmtilegt, púslum, frjáls tími
í tölvu, sjónvarp eða leik. Miðju-
stelpan er mjög listræn og á held
ég erfiðast með þetta þar sem hún
þarf að fá útrás fyrir þessu eðli sínu
og ekki allt til staðar á heimlinu og
allar búðir lokaðar, en við reddum
þessum. Ég held að mamman hafi
átt erfiðast með þetta og ég er nú
samt sú heimakærasta á heimilinu
en ég viðurkenni að þegar liðnar
voru svona þrjár, fjórar vikur án þess
að fara út þá fór þetta að taka á. Það
sem hefur þó breyst til hins betra er
Mannauðar götur og torg
Spænskt mannlíf er ekki svipur hjá
sjón eins og þessar myndir sýna.
22 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.