Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 52
B A R Á T T U K V E Ð J U R
TIL VERKAFÓLKS 1. MAÍ 2020
Sendum Suðurnesjamönnum og fólkinu okkar
í framlínunni okkar bestu kveðjur!
– Líturðu björtum augum til sumarsins?
Já, er bjartsýnn á að við fáum frábært
sumar með hverjum blíðviðrisdeginum
á fætur öðrum.
– Hver eru þín áhugamál og hefur
ástandið haft áhrif á þau?
Líkamsrækt, íþróttir, matur, heilsa, heims-
friður og fleira. Ástandið hefur í raun bara
fært áhugamálin inn fyrir dyr heimilsins
þar sem við höfum komið okkur upp
heimarækt í skúrnum og notum við
aðstöðuna mjög mikið og stundum oft á
dag.
– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og
hver er ástæðan?
Kleifar á Ólafsfriði þar sem ættaróðalið,
Ytri-Á, er heimsótt á hverju sumri, gott að
komast þangað í kyrrðina og sveitasæluna.
– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?
Stefnan er að njóta samveru með fjöl-
skyldu og vinum – og auðvitað þjálfa sem
mest til þess að bæta upp tapið sökum
ástandsins.
– Hver voru plönin áður en veiran setti
strik í reikninginn?
Planið var að fara erlendis yfir páskana
en það breyttist heldur betur. Það bíður
betri tíma.
– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér
undanfarnar vikur, hefur margt breyst?
Við fjölskyldan erum mest megnis heima
fyrir og einu skiptin sem farið er út er til
þess að hreyfa sig eða fara í búðina en það
mætti segja að maður sé að gefa sér tíma í
hluti sem hafa setið á hakanum ansi lengi
t.d. að laga gamla tölvu, ná myndefni af
gamalli upptökuvél inn á tölvutækt form
svo eitthvað sé nefnt.
– Finnst þér fólk almennt virða reglur
tengdar samkomubanni?
Já, myndi segja það. En er kannski ekki
nógu mikið á ferðinni til þessa að leggja
dóm á það hvort eð er.
– Hvaða lærdóm getum við dregið af
heimsfaraldrinum?
Þetta er búið að hægja á öllu og maður
horfir á sjálfsögðu hlutina öðrum augum.
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að
eiga í samskiptum við fólk?
Ég nýti FaceTime mikið, hringi daglega í
foreldra mína.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal
í dag, hver fengi það símtal og hvers
vegna?
Ég myndi taka hópFaceTime við ömmur
mínar sem ég sakna sárt.
– Ertu liðtækur í eldhúsinu?
Já, það er alveg óhætt að fullyrða það. Eitt
af mínum skemmtilegustu áhugamálum er
matur. Finnst gaman að prófa mig áfram.
– Hvað finnst þér skemmtilegast að
elda?
Það er erfitt að velja eitthvað eitt, finnst
gaman t.d. að baka, gera heimgert pasta
frá grunni, heimagerðar pizzur, súpur svo
eitthvað sé nefnt.
– Hver er uppáhaldsmaturinn þinn
Núna er í miklu uppáhaldi nautalund í
pipar-truflu-mareneringu með kartöflum
og Bearnaise.
– Hvað geturðu ekki hugsað þér að
borða?
Hákarl, lét samt til leiðast að taka einn
bita fyrir mörgum árum á pabbadegi í
leikskólanum hjá Einari syni mínum en
ég gat ekki skorast undan því að taka bita
af hákarli, en ég kúgaðist og endaði á að
kyngja bitanum og fannst ég hafa gleypt
eitthvað geislavirkt því ég fann nákvæm-
lega fyrir því þegar bitinn fór í gegnum
vélindað og niður í maga.
– Hvaða morgunmatur verður oftast
fyrir valinu?
Geri langoftast sama súkkulaðibanana-
hristing sem saman stendur af: 1 dl eggja-
hvítur, 1 banani, 1 msk hnetusmjör, 1 og
hálf msk kakóduft, 2 dl möndlumjólk, allt
í blandara og njóta.
– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?
Skellti í snúða með súkkulaðiglassúr –
algjör snilld! Þeir smökkuðust betur en
úr bakaríinu. Næst í funkithcen verður
prófað að gera stórar saltkringlur (pret-
zels)
– Ef þú fengir 2000 krónur, hvað myndir
þú kaupa í matinn?
Er að svara þessu á miðvikudegi, ætli það
verði ekki fimm appelsín í gleri og tíu
lakkrísrör í Kosti hjá Gunna, þessi tvenna
getur ekki klikkað.
Netspj@ll
Fáum frábært sumar
!
Gunnar Einarsson, ei
nkaþjálfari í Sporthú
sinu,
myndi nota 2000 kró
nur á miðvikudegi til
að kaupa
fimm appelsín í gleri
og tíu lakkrísrör í Ko
sti hjá
Gunna, tvenna sem g
etur ekki klikkað, seg
ir hann.
52 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.