Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 69
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi
JÓHANN LÍNDAL JÓHANNSSON
fyrrv. rafveitustjóri
Vallarbraut 6, Njarðvík
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 23. apríl. sl.
Útför auglýst síðar.
Elsa Dóra Gestsdóttir
Agnes Jóhannsdóttir Bessi Þorsteinsson
Hreinn Líndal Jóhannsson Anna Dóra Lúthersdóttir
Jóhann Gestur Jóhannsson Svava Tyrfingsdóttir
María Líndal Jóhannsdóttir
Elías Líndal Jóhannsson Guðlaug Helga Sigurðsdóttir
Lína Dalrós Jóhannsdóttir Gunnlaugur Þór Ævarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
sonur, bróðir, mágur og afi,
ÓSKAR HAFSTEINN FRIÐRIKSSON
Birkiteigi 7, Keflavík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn 20. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 6. maí kl. 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt af Facebókarsíðu Þórunnar Kolbrúnar
Árnadóttur.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Parkinsonsamtökin.
Þórunn Kolbrún Árnadóttir,
Árni Grétar Óskarsson Unnur Helga Snorradóttir
Karólína Björg Óskarsdóttir Sigurður Guðjónsson
Friðrik Guðni Óskarsson Aldís Sif Bjarnadóttir
Þórey Jóhanna Óskarsdóttir Haukur Óli Snorrason
Katrín Ósk Óskarsdóttir
Friðrik Grétar Óskarsson Karólína Guðnadóttir
Guðný Svava Friðriksdóttir Valur Snjólfur Ingimundarson
Kristinn Geir Friðriksson Björg Hilmarsdóttir
og barnabörn.
Bróðir okkar og mágur,
STEFÁN JENNÝJARSON HALLDÓRSSON
Framnesvegi 5c, Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu sunnudaginn 29. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jón Rúnar Halldórsson Signý Elíasdóttir
Jóhanna Halldórsdóttir Sigtryggur Hafsteinsson
Hvað sögðu þau um fyrirlesturinn?
Ingibjörg Jónsdóttir, leikskólastjóri:
Bíðum spennt eftir að nota Töfraborg,
útisvæðið okkar!
„Útivist barna er okkur svo mikið hjartans
mál hér í Gefnarborg. Þetta námskeið núna
með foreldrum var hugsað sem framhald af
námskeiði sem Pálína, ásamt samstarfsfélaga
sínum, henni Önnu Lind Björnsdóttur, héldu
fyrir starfsfólk Gefnarborgar í september
síðastliðnum. En saman erum við, börnin,
starfsfólkið og foreldrarnir, að byggja upp og
efla Töfraborg sem er útisvæði leikskólans,
þar sem áhersla er lögð á að viðhalda stórum
hluta lóðarinnar sem ósnortinni náttúru.
Vegna stækkunar leikskólans fyrir ári síðan
hafa börnin í Gefnarborg ekki getað notað
nema lítinn hluta af leikskólalóð sinni í allan
vetur, sem þó stóð til að yrði tilbúin við upphaf nýs skólaárs í september
síðastliðnum en bæjaryfirvöld ætluðu að sjá um það. Þykir okkur þetta
mjög leitt því börnin hafa ekki geta nýtt sér allt það sem foreldrarnir,
börnin og starfsfólkið lagði á sig að vinna saman síðastliðið sumar við
að smíða útieldhús, kofa, kraftbraut og fleira úr verðlausum efnivið. Við
bíðum spennt eftir að fá lóðina lagfærða sem allra fyrst. Það var virkilega
gaman að fá þetta góða erindi núna með foreldrunum og gefur okkur byr
undir báða vængi um nauðsyn þess að vera meira úti að leika.“
Ásta Guðný Ragnarsdóttir og
Valdimar Oddur Jensson:
Gaman að vera úti
„Þetta var mjög fræðandi og sniðugar hug-
myndir sem Pálína gaf okkur um útivist. Það
þarf ekki að taka mikinn tíma að fara út til
dæmis eftir leikskóla yngsta barnsins þegar
allir eru þreyttir. Mér datt í hug að það væri
hægt að taka nesti með út,“ segir Ásta Guðný.
„Útivist á veturna og á sumrin eru eins og svart og hvítt á Íslandi. Við
eigum þrjú börn á aldrinum þriggja, ellefu og þrettán ára og erum dugleg
að fara út með þau. Það eru margir leikvellir í Garðinum og nágrenni. Fyrir
aftan húsið okkar er mói og þar hafa börnin okkar oft leikið sér. Þau hafa
dundað sér í móanum með skóflur og fleira. Um daginn voru þau öll þrjú
úti í garðinum okkar að búa til snjóhús,“ segir Valdimar Oddur.
„Þau hafa alltaf nýtt móann sjálf. Við höfum líka farið út með þeim og það
hefur verið gaman að uppgötva hvað það er gaman að labba í móanum í snjó
því það er meiri áskorun þegar þú sekkur ofan í snjóinn á milli þúfna. Með
aldrinum breytast leikirnir hjá þeim og leikföngin en náttúran fer aldrei úr
gildi. Þar geta þau alltaf fundið sér eitthvað að gera. Útivera er stór partur
af lífi okkar með krökkunum,“ segir Ásta Guðný.
„Á veturna höfum við aðgang að hestunum hans pabba á Mánagrund.
Allir krakkarnir okkar hafa gaman af því að koma inn í hesthús, hvort sem
þau eru að kemba hestunum, hoppa í heyinu eða fara á bak. Okkur leiðist
aldrei þegar við erum úti saman. Það er bæði hollt og svo þurfa krakkarnir
að hugsa stundum og ákveða hvað þau vilja gera úti,“ segir Valdimar Oddur.
Ingibjörg Jónsdóttir, leikskólastjóri
Gefnarborgar, ásamt Pálínu
Ósk Hraundal, fyrirlesara.
Valdimar Oddur Jensson og
Ásta Guðný Ragnarsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HALLDÓR ÁRSÆLL JENSSON
fyrrverandi aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurnesjum
Stapavöllum 11, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 25. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 5. maí kl. 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina.
María Ingibjörg Valdimarsdóttir
Þórey Halldórsdóttir Vilhjálmur Birgisson
Jenný Halldórsdóttir Marteinn Guðjónsson
og barnabörn.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 69
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.