Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 43
– Er kórónuveiran ekkert að plaga ykkur
á þessum slóðum?
„Þó svo að það séu fá smit þá höldum við
okkur bara í litlum hópum. Við erum ekki að
hafa mikil samskipti við aðra til að vera örugg.
Hér hafa bara komið upp 120 smit og 110 eru
útskrifaðir. Hér hefur enginn látist. Það eru tíu
á spítala og landið er lokað. Mér er sagt það
að veiran þrífist ekki í þessum rosalega hita
og raka, þannig að ég held að í augnablikinu
séum við nokkuð örugg.“
– Sérðu þína framtíð þarna, fyrst þú ert
búin að læra tungumálið og ert að læra
kínversku?
„Ég á marga kínverska vini og þeir segja að
framburður minn á kínversku sé tignarlegur
og þetta er tungumál sem maður verður eigin-
lega að læra. Ég læri af YouTube og af vinum
mínum. Maður verður að æfa sig að tala og
þetta kemur bara.“
– Nú er kínverska stafrófið einhver
3800 tákn. Ertu að læra þau?
„Ég ákvað að byrja á matseðlinum. Fyrst þegar
ég fór á kínverskan veitingastað þá benti ég á
einhverja mynd og við fengum einhvern mat
og ég spurði hvað þetta væri. Við fengum þá
að vita að þetta væru svínalimir. Eftir það
ákvað ég að læra matseðilinn,“ segir Kristín
Bára og hlær.
– Þú sagðir mér áðan að landið væri
lokað. Hafa þá áform hjá þér eitthvað
breyst?
„Já, ég kem alltaf heim til að vinna en mun
ekki koma heim í sumar. Við erum núna að
vinna að vítamín- og próteinstykkjum fyrir
börn. Við erum að vinna að verkefni þannig
að við getum gefið framleiðsluna til fátækra
barna, skóla og þeirra sem eru á munaðar-
leysingjahælum. Við erum með gott teymi
með okkur. Við erum með næringarfræðinga
Við erum núna að vinna að
vítamín- og próteinstykkjum
fyrir börn. Við erum að vinna
að verkefni þannig að við getum
gefið framleiðsluna til fátækra
barna, skóla og þeirra sem eru
á munaðarleysingjahælum ...
Þau búa á hótelinu. Dr. Tim Healy, Kristín Bára Haraldsdóttir, Kolosom Artem og Adrian Cowen. Kínversk vinkona, Bao
Yongen
kölluð Rosie, við grilli
ð.
Þorpið er fullt af
hálfbyggðum húsum
og vinnuvélar
eru út um allt.
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 43