Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 34

Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 34
Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir og Ágúst Ágústsson eru nágrannar Þorsteins Bjarnasonar og Kristjönu Héðinsdóttur og hafa vinahjónin leyft vinum sínum á Facebook að fylgjast með fjörinu á staurnum á tímum COVID-19. Ragn- heiður setti nýlega söguna á bak við matarstaur- inn og hún er vægast sagt mjög skemmtileg. Þegar við fluttum í húsið okkar höfðu önnur hjón keypt hinn helm- inginn. Ýmislegt var ófrágengið eins og vill gerast með nýleg hús og eitt af því var bílaplanið. Nágrannakonan var ákveðin í því að það þyrfti að koma landamæra- veggur á miðju bílaplaninu þ.e. frá húsi og u.þ.b. 1,5 metra út frá því eins og væri á öllum hinum hús- unum. Þetta var samþykkt og staur- inn því settur niður um leið og var hellulagt. Svo kom haustið og veturinn og þessir nágrannar voru orðnir góðir vinir okkar. Við komumst fljótt að því að það var gott að geta labbað þurrum fótum undir þak- skegginu í stað þess að fara út fyrir landamæravegg og lenda í bleytu eða snjó þannig að það var tekin ný ákvörðun um að reisa ekki umræddan vegg. Síðan er liðinn góður áratugur og staurinn er þarna, ekki til neinnar prýði og lítils gagn..... eða þar til núna að hann öðlaðist nýtt hlutverk sem hefur vakið nokkra athygli. Við vinirnir gerðum það af og til að borða saman en svo kom COVID-19 og þá kom upp sú staða, vinnunnar vegna, að ég og húsbóndinn á hinu heimilinu máttum ekki hittast mikið því við vorum á sitt hvorri vaktinni þar. Einn daginn hringir nágranna- konan í mig og segist vera að elda ljúffengan lambapottrétt og hún ætli að setja hann við dyrnar og dingla bjöllunni. Næsta dag fannst mér ég verða að launa greiðan og þá kviknaði þessi hugmynd, sem Gústi framkvæmdi snarlega að setja plötu á staurinn og réttlæta þannig tilveru hans. Þarna var kominn fínasti staður fyrir matargleðina okkar. Eins og þið hafið séð þá hefur staurinn verið miðpunktur mikillar gleði síðustu vikur og verður áfram til 4. maí. Nokkrum sinnum í viku höfum við skipst á að setja kvöld- matinn á staurinn og upp á síðkastið meira að segja útfært kokteilboð þarna úti eftir að sólin fór að skína. Matarafhendingarstaurinn fæst í Byko en ég er ekki viss um að þeir geti tryggt svona góða nágranna með í pakkanum. :-) ... og þá þekkið þið, sem nenntuð að lesa alla langlokuna, söguna um staurinn. Sagan af staurnum Eins og sjá má á myndunum er stemmningin góð við matarstaurinn. 34 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.