Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 34
Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir og Ágúst
Ágústsson eru nágrannar Þorsteins Bjarnasonar
og Kristjönu Héðinsdóttur og hafa vinahjónin
leyft vinum sínum á Facebook að fylgjast með
fjörinu á staurnum á tímum COVID-19. Ragn-
heiður setti nýlega söguna á bak við matarstaur-
inn og hún er vægast sagt mjög skemmtileg.
Þegar við fluttum í húsið okkar
höfðu önnur hjón keypt hinn helm-
inginn. Ýmislegt var ófrágengið eins
og vill gerast með nýleg hús og eitt
af því var bílaplanið.
Nágrannakonan var ákveðin í því
að það þyrfti að koma landamæra-
veggur á miðju bílaplaninu þ.e. frá
húsi og u.þ.b. 1,5 metra út frá því
eins og væri á öllum hinum hús-
unum. Þetta var samþykkt og staur-
inn því settur niður um leið og var
hellulagt.
Svo kom haustið og veturinn
og þessir nágrannar voru orðnir
góðir vinir okkar. Við komumst
fljótt að því að það var gott að geta
labbað þurrum fótum undir þak-
skegginu í stað þess að fara út fyrir
landamæravegg og lenda í bleytu
eða snjó þannig að það var tekin
ný ákvörðun um að reisa ekki
umræddan vegg.
Síðan er liðinn góður áratugur og
staurinn er þarna, ekki til neinnar
prýði og lítils gagn..... eða þar til
núna að hann öðlaðist nýtt hlutverk
sem hefur vakið nokkra athygli.
Við vinirnir gerðum það af og til að
borða saman en svo kom COVID-19
og þá kom upp sú staða, vinnunnar
vegna, að ég og húsbóndinn á hinu
heimilinu máttum ekki hittast mikið
því við vorum á sitt hvorri vaktinni
þar.
Einn daginn hringir nágranna-
konan í mig og segist vera að elda
ljúffengan lambapottrétt og hún ætli
að setja hann við dyrnar og dingla
bjöllunni.
Næsta dag fannst mér ég verða að
launa greiðan og þá kviknaði þessi
hugmynd, sem Gústi framkvæmdi
snarlega að setja plötu á staurinn og
réttlæta þannig tilveru hans. Þarna
var kominn fínasti staður fyrir
matargleðina okkar.
Eins og þið hafið séð þá hefur
staurinn verið miðpunktur mikillar
gleði síðustu vikur og verður áfram
til 4. maí. Nokkrum sinnum í viku
höfum við skipst á að setja kvöld-
matinn á staurinn og upp á síðkastið
meira að segja útfært kokteilboð
þarna úti eftir að sólin fór að skína.
Matarafhendingarstaurinn fæst í
Byko en ég er ekki viss um að þeir
geti tryggt svona góða nágranna með
í pakkanum. :-)
... og þá þekkið þið, sem nenntuð
að lesa alla langlokuna, söguna um
staurinn.
Sagan af
staurnum
Eins og sjá má á myndunum er stemmningin góð við matarstaurinn.
34 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.