Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 76
og söngkona hentar Freo fullkom-
lega.“
– Hverjir eru helstu kostir þess
að búa þar sem þú býrð?
„Ég elska Freo. Fólkið er vinalegt,
skapandi og frá öllum stéttum,
ríkir og fátækir undir sama þaki
mætti segja. Við höfum ána Swan
River á öðrum endanum og
ströndina á hinum og það er ávallt
eitthvað um að vera.“
– Hvernig er að vera með fjöl-
skyldu og börn þarna?
„Strandarlíf og útivera allt árið
í kring er það sem mínar dætur
njóta. Útimarkaðir og lifandi tón-
list er þeirra uppáhald og svo er
menntun mjög mikilvæg hér,
að allir fari í háskóla og fylgi
draumum sínum. Alexandra, elsta
dóttir mín, flutti að heiman fljót-
lega eftir að við komum hingað en
við búum í sömu borg. Hún hefur
tekið tíma frá vinnu sinni til að
ferðast og vinna eins og í Japan og
Vietnam, sem er einn af hennar
uppáhalds stöðum. Það eru tæki-
færi fyrir alla hérna, ef þú vilt.“
– Hvernig er hefðbundinn
dagur í lífi þínu?
Í dag hefur COVID-19 valdið því
að ég missti vinnuna mína tíma-
bundið, svo að þegar ég vakna við
sólarupprás, kl. sjö á morgnana,
geri ég mig tilbúna til að skokka
eða ég fer á ströndina til að labba
og geri æfingar. Svo mála ég úti í
garðinum mínum af því að ég hef
ekki studíó til að mála í. Ég hef
einnig framleitt og stjórnað fyrir
dóttur mína tónlistarlega. Ef hún
hefur tónleika, þá hjálpa ég henni.
Einnig spila ég stundum með
nágrönnum mínum en við erum
áhugamanna-Ukulele-band, sem
er meira okkur sjálfum til skemmt-
unar en allir velkomnir að vera
með. Ég er líka í vinahóp kvenna
„Wild Women of Art“. Við hittumst
einu sinni í viku til að mála og
einnig skipuleggjum við sýningar,
markaði og fleira“
– Líturðu björtum augum til
næstu mánaða?
„Veturinn er á næsta leiti hér hjá
okkur. Núna næstu fjóra mánuðina
verður pínu kalt en það mætti
segja að vetur hér er eins og sumar
á Íslandi. En, já, ég hef nokkur
plön á næstunni sem ég er spennt
að byrja á og svo er planið líka að
hitta Klöru vinkonu frá Grinda-
vík á Balí. Það eru tíu ár síðan
við sáumst síðast svo það verður
gaman.“
– Hver eru þín áhugamál og
hefur ástandið haft áhrif á þau?
„Ég get ennþá málað en það er ekki
mikið um sölu og við getum fram-
leitt lög en það eru engar uppá-
komur í gangi. Annars er þetta
ekki svo slæmt hérna. Að mínu
mati hefur ríkistjórnin í Ástralíu
tekið vel á COVID-19. Fyrir utan
að missa vinnuna mína, en hún
byrjar vonandi fljótlega aftur, eða
að ég finn mér bara eitthvað annað
að gera, ég er opin fyrir nýjum
tækifærum.“
– Áttu þér uppáhaldsstað á
Íslandi og hver er ástæðan?
„Hafnarfjörður hefur ávallt átt sér-
stakan stað í hjarta mínu og ef mig
dreymir mig í draumum mínum
á Ísland þá er ég í Hafnarfirði. Ég
var fædd þar og megnið af minni
fjölskyldu bjó eða búa í Hafnar-
firði.“
– Hvað stefnirðu á að gera á
næstu mánuðum?
„Það er ekkert bókað ennþá en
ég hef verið að gæla við að fara í
nokkra flugtíma, kannski get ég
losnað við lofthræðsluna mína
þannig og svo auðvitað að njóta
samveru med dætrum mínum á
ströndinni.“
– Hver voru plönin áður en
veiran setti strik í reikninginn?
„Hlutirnir hafa bara færst aðeins
til en ekkert hefur verið útilokað
ennþá. Að hitta Klöru á Bali er
ennþá efst á listanum.“
Á gamla markaðnum í Freo.
76 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.