Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 42
– Hvernig eruð þið að afla tekna til að lifa?
„Það fer ekki mikið fyrir því núna. Við vorum
með bakarí og seldum í verslanir og til hótela.
Við vorum einnig að gera múslí og granóla og
það gekk rosalega vel þangað til fyrir tveimur
árum þegar Kínverjarnir komu á svæðið. Það
voru gefin leyfi fyrir 110 spilavítum á svæðinu
okkar, þannig að uppbyggingin er búin að vera
rosaleg á síðustu tveimur árum. Hér hafa risið
háhýsi og hér eru lúxusbílar um allt.“
– Þannig að Kínverjarnir flæddu yfir allt?
„Já en jafn fljótt og þeir komu þá fóru þeir
aftur og skildu staðinn okkar eftir eins og hálf-
gert sprengjusvæði. Ég veit ekki hvað það eru
margar byggingar og háhýsi hálfkláruð og allt
í rúst. Ástæðan er að veðmál á netinu höfðu
verið leyfð en síðan ákvað forsætisráðherr-
ann að banna þá starfsemi og þá fóru allir og
ákváðu að skilja allt eftir, allar glæsikerrurnar
og bara allt. Það stendur til dæmis Rolls Royce
hérna fyrir utan hótelið hjá okkur og hefur
verið hér í marga mánuði.“
– Og þið búið bara á hóteli?
„Við búum á hóteli sem er lokað. Þetta er nýtt
lúxushótel og við erum bara fjögur sem búum
hérna og erum að passa hótelið fyrir vin vinar
okkar. Þetta er svolítið eins og í kvikmynd-
inni Shining. Það er þyrlupallur uppi á þaki,
danssalir og þetta er allt mjög skrítið. Það eru
fjórar sundlaugar og tvær uppi á þaki. Svo
erum við bókstaflega á ströndinni. Ég opna
hurðina, labba yfir götuna og þá er ég kominn
á sandinn á ströndinni.“
– Hvernig er veðrið þarna?
„Núna er heitasti tími ársins. Appið segir mér
núna að það sé 32 stiga hiti. Það er svo rakt
hérna að það er ólíft á milli klukkan níu á
morgnana og til hálf fjögur á daginn.“
– Og hvað gerir þú á þeim tíma?
„Ég nota hann til að skrifa. Svo er ég einnig
að læra kínversku í gegnum YouTube. Ég er
komin með kambódískuna svo til í lagi. Ég er
líka að læra Taekwondo og box á ströndinni
og er með þjálfara.“
Ég og kærasti minn bjuggum í New York en fyrir
fimm árum ákváðum við að fara að ferðast og leita
okkur að stað þar sem við gætum haft sumarhús.
Við fórum í þriggja mánaða ferðalag og fórum til Balí,
Tælands, Vietnam, Laos og enduðum í Kambódíu ...
42 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.