Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 38

Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 38
– Líturðu björtum augum til sumarsins? Það er erfitt að líta ekki björtum augum til sum- arsins þrátt fyrir ástandið þar sem að ég á von á barni á næstu dögum, verður vonandi komið í heiminn þegar þetta birtist. Þá geri ég ráð fyrir því að Liverpool verði krýnt Englandsmeistari í sumar sem ég vonast til að fagna á litla Anfield í hópi góðra manna og að Keflavík komist í efstu deild í fótbolta. – Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau? Ég er mikill áhugamaður um knattspyrnu og sit í stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur. Þannig að ástandið hefur haft heilmikil áhrif á það. Ég er blessunarlega bara góðveðursgolfari þannig að ekki hefur reynt á áhrifin þar ennþá. – Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan? Þetta er merkilega erfið spurning en Jökulsárhlíð fyrir austan hvar ég var í sveit sem gutti á Hrafna- björgum 2 kemur upp í hugann. Sigmundur Davíð var þó ekki skráður í sveit á næsta bæ á þeim tíma enda þegar kominn í eyði. Hefði verið gaman að hafa kallinn samt á næsta bæ. – Hvað stefnirðu á að gera í sumar? Ég geri ráð fyrir að stór hluti af sumrinu fari í að venjast því að vera með hvítvoðung á heimilinu og stilla það saman við hin þrjú börnin sem búa hjá okkur aðra hverja viku. Eina sem er fast í hendi varðandi ferðalög er vikuferð norður yfir versl- unarmannahelgina. Það verður þó pottþétt ekki eina ferðin út fyrir bæjarmörkin. Þá geri ég ráð fyrir því að það verði þétt dagskrá hjá okkur í kringum Keflavíkurliðið í þéttspiluðu móti. Svo ætla ég að finna golfkylfurnar og sjá hvort ég geti orðið jafn góður og ég held að ég sé í þeirri íþrótt. Svo ætla ég að reyna að hemja mig á trampólíninu með börnunum og vonandi ekki þurfa að fara með fleiri á spítala eftir leik þar (það fór þó betur en á horfðist). – Hver voru plönin áður en veiran setti strik í reikninginn? Í raun er ekki mikil breyting á plönum sumars- ins sem voru lituð af barneigninni en við höfðum sett stefnuna á tveggja vikna sólarlandaferð með haustinu – bjartsýnin á að það gangi eftir minnkar með hverjum deginum. Þá er líka eins gott að Siggi Stormur hafi rétt fyrir sér með að sumarið verði gott. – Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst? Eins og hjá öllum hefur tilveran verið mjög furðu- leg síðustu vikur. Vegna samfélagslegs mikilvægis HS Orku vorum við flest látin vinna heima frekar snemma í ferlinu til að minnka smithættur til þeirra sem í raun framleiða fyrir okkur rafmagn og heitt vatn, altsvo þá sem kunna á takkana í orkuverinu. Mér tókst þó að komast í elítuhóp u.þ.b. 0,5% þjóðarinnar sem hefur greinst með veiruna. Ég var sæmilega heppinn þó með áhrifin á mig sem voru frekar væg miðað við marga. – Hvernig er heilsan eftir að hafa veikst af COVID-19? Heilsan er fín eftir veikindin. Ég fann aðeins fyrir öndurfæraerfiðleikum í veikindunum sem gerði það að verkum að maður var ekki mikið að hlaupa um. Það tók smá tíma að komast yfir það eftir að ég náði heilsu en ég er orðinn góður af því og get farið í fótbolta og körfubolta með börnunum aftur og sýnt þeim listir á trampólíninu. Í ljósi frétta af takmörkunum á utanlandsferðum og að jafnvel bara þeir sem eru með ónæmi fái að ferðast geri ég ráð fyrir, ásamt nokkrum öðrum, að þurfa að sjá um utanríkismál þjóðarinnar. – Varðstu mjög veikur? Ég varð aldrei mjög veikur en upplifði hefðbundin flensueinkenni í um tvær vikur. Ég vissi í raun um leið og ég varð veikur að ég væri með veiruna þar sem ég hef verið svo heppin að ég veikist nánast aldrei af hefðbundnum umgangspestum. Þegar ég greinist voru öll þrjú börnin hjá okkur þannig að við vorum fimm saman á heimilinu innilokuð í tvær og hálfa viku. Ég í einangrun en restin í sóttkví. – Er ekki rétt að sambýliskona þín er alveg komin á steypirinn? Hvernig hefur hún það og hvernig var það fyrir hana að vera með þig veikan kasólétt? Ég held að ég muni aldrei getað fullþakkað sam- býliskonu minni sem gengin var rúma átta mánuði á leið fyrir að sjá alfarið um heimilið meðan ég var í einangrun. Það var mikil óvissa í kringum óléttuna bæði hættan að hún færi af stað og ég gæti ekki verið með henni eða að hún eða eitthvað af börnunum myndu fá veiruna. Þetta hefði getað sett öll fæðingaplön algerlega úr jafnvægi en við vorum blessunarlega það heppin að ég var sá eini sem veiktist og þau sluppu. Núna er allt komið í jafnvægi og við bíðum átekta eftir fæðingunni en settur dagur var síðasta föstudag. Jóhann Snorri Sigurbergsson er forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá HS Orku, stjórnarmaður í stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur, gallharður púllari og ákkúrat nógu gamall til að muna eftir síðasta Englandsmeistaratitli liðsins. Netspj@ll Gerir ráð fyrir að þurfa að sjá um utanríkismál þjóðarinnar Komst í elítuhóp 0,5% þjóðarinnar: 38 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.