Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 38
– Líturðu björtum augum til sumarsins?
Það er erfitt að líta ekki björtum augum til sum-
arsins þrátt fyrir ástandið þar sem að ég á von á
barni á næstu dögum, verður vonandi komið í
heiminn þegar þetta birtist. Þá geri ég ráð fyrir
því að Liverpool verði krýnt Englandsmeistari í
sumar sem ég vonast til að fagna á litla Anfield í
hópi góðra manna og að Keflavík komist í efstu
deild í fótbolta.
– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið
haft áhrif á þau?
Ég er mikill áhugamaður um knattspyrnu og sit í
stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur. Þannig að
ástandið hefur haft heilmikil áhrif á það. Ég er
blessunarlega bara góðveðursgolfari þannig að
ekki hefur reynt á áhrifin þar ennþá.
– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver
er ástæðan?
Þetta er merkilega erfið spurning en Jökulsárhlíð
fyrir austan hvar ég var í sveit sem gutti á Hrafna-
björgum 2 kemur upp í hugann. Sigmundur Davíð
var þó ekki skráður í sveit á næsta bæ á þeim tíma
enda þegar kominn í eyði. Hefði verið gaman að
hafa kallinn samt á næsta bæ.
– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?
Ég geri ráð fyrir að stór hluti af sumrinu fari í að
venjast því að vera með hvítvoðung á heimilinu og
stilla það saman við hin þrjú börnin sem búa hjá
okkur aðra hverja viku. Eina sem er fast í hendi
varðandi ferðalög er vikuferð norður yfir versl-
unarmannahelgina. Það verður þó pottþétt ekki
eina ferðin út fyrir bæjarmörkin. Þá geri ég ráð
fyrir því að það verði þétt dagskrá hjá okkur í
kringum Keflavíkurliðið í þéttspiluðu móti. Svo
ætla ég að finna golfkylfurnar og sjá hvort ég geti
orðið jafn góður og ég held að ég sé í þeirri íþrótt.
Svo ætla ég að reyna að hemja mig á trampólíninu
með börnunum og vonandi ekki þurfa að fara með
fleiri á spítala eftir leik þar (það fór þó betur en
á horfðist).
– Hver voru plönin áður en veiran setti strik
í reikninginn?
Í raun er ekki mikil breyting á plönum sumars-
ins sem voru lituð af barneigninni en við höfðum
sett stefnuna á tveggja vikna sólarlandaferð með
haustinu – bjartsýnin á að það gangi eftir minnkar
með hverjum deginum. Þá er líka eins gott að Siggi
Stormur hafi rétt fyrir sér með að sumarið verði
gott.
– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér
undanfarnar vikur, hefur margt breyst?
Eins og hjá öllum hefur tilveran verið mjög furðu-
leg síðustu vikur. Vegna samfélagslegs mikilvægis
HS Orku vorum við flest látin vinna heima frekar
snemma í ferlinu til að minnka smithættur til
þeirra sem í raun framleiða fyrir okkur rafmagn
og heitt vatn, altsvo þá sem kunna á takkana í
orkuverinu. Mér tókst þó að komast í elítuhóp
u.þ.b. 0,5% þjóðarinnar sem hefur greinst með
veiruna. Ég var sæmilega heppinn þó með áhrifin
á mig sem voru frekar væg miðað við marga.
– Hvernig er heilsan eftir að hafa veikst af
COVID-19?
Heilsan er fín eftir veikindin. Ég fann aðeins fyrir
öndurfæraerfiðleikum í veikindunum sem gerði
það að verkum að maður var ekki mikið að hlaupa
um. Það tók smá tíma að komast yfir það eftir að
ég náði heilsu en ég er orðinn góður af því og get
farið í fótbolta og körfubolta með börnunum aftur
og sýnt þeim listir á trampólíninu. Í ljósi frétta af
takmörkunum á utanlandsferðum og að jafnvel
bara þeir sem eru með ónæmi fái að ferðast geri
ég ráð fyrir, ásamt nokkrum öðrum, að þurfa að
sjá um utanríkismál þjóðarinnar.
– Varðstu mjög veikur?
Ég varð aldrei mjög veikur en upplifði hefðbundin
flensueinkenni í um tvær vikur. Ég vissi í raun um
leið og ég varð veikur að ég væri með veiruna þar
sem ég hef verið svo heppin að ég veikist nánast
aldrei af hefðbundnum umgangspestum. Þegar
ég greinist voru öll þrjú börnin hjá okkur þannig
að við vorum fimm saman á heimilinu innilokuð
í tvær og hálfa viku. Ég í einangrun en restin í
sóttkví.
– Er ekki rétt að sambýliskona þín er alveg
komin á steypirinn? Hvernig hefur hún það
og hvernig var það fyrir hana að vera með
þig veikan kasólétt?
Ég held að ég muni aldrei getað fullþakkað sam-
býliskonu minni sem gengin var rúma átta mánuði
á leið fyrir að sjá alfarið um heimilið meðan ég
var í einangrun. Það var mikil óvissa í kringum
óléttuna bæði hættan að hún færi af stað og ég
gæti ekki verið með henni eða að hún eða eitthvað
af börnunum myndu fá veiruna. Þetta hefði getað
sett öll fæðingaplön algerlega úr jafnvægi en við
vorum blessunarlega það heppin að ég var sá eini
sem veiktist og þau sluppu. Núna er allt komið í
jafnvægi og við bíðum átekta eftir fæðingunni en
settur dagur var síðasta föstudag.
Jóhann Snorri Sigurbergsson er
forstöðumaður viðskiptaþróunar
hjá HS Orku, stjórnarmaður í stjórn
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
gallharður púllari og ákkúrat nógu
gamall til að muna eftir síðasta
Englandsmeistaratitli liðsins. Netspj@ll
Gerir ráð fyrir
að þurfa að sjá
um utanríkismál
þjóðarinnar
Komst í elítuhóp 0,5% þjóðarinnar:
38 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.