Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 60
Lovísa Sif Einarsdóttir stundar nám í Háskóla Reykjavíkur. Hún notast við fjar-
fundarbúnað á hverjum degi og saknar þess að geta knúsað sitt nánasta fólk.
– Hvernig ert þú að upplifa
ástandið?
Þetta ástand hefur í för með sér
mikla óvissu og einangrun. Hef
ekki verið að eyða miklum tíma með
mínu nánasta fólki sem er mjög ólíkt
því sem áður var.
– Hefurðu áhyggjur?
Já, ég hef t.d. áhyggjur af afleiðingum
á efnahagsástandið í heiminum,
hversu frjáls verðum við eftir þetta
með ferðalög vítt og breitt um heim-
inn og að sjálfsögðu af þeim sem
standa mér næst og eru í áhættuhópi.
– Hvaða áhrif hefur faraldurinn
á þitt daglega líf?
Hann hefur þau áhrif að ég hitti mitt
nánasta fólk ekki eins oft og áður.
Námið stunda ég nú heima í stað
þess að mæta í skólann og æfingar
stunda ég nú heima í stað þess að
fara í ræktina. Ég hitti því ekki margt
fólk þessa dagana sem er að sjálf-
sögðu mikil viðbrigði.
– Hvernig eru dagarnir hjá þér
núna?
Endalaus lærdómur, æfingar, göngu-
túrar, FaceTime með fjölskyldunni
og endalaust „kósý“ – sem er nú ekk-
ert voðalega kósý lengur eftir allan
þennan tíma hangandi heima.
– Hefur þú gert miklar breyt-
ingar í daglegu lífi?
Já, mjög miklar. Ég hitti ég fólkið
mitt sjaldnar og þá aðallega í gegnum
tölvuna, námið er stundað heima
í gegnum tölvuna og æfingar eru
einnig stundaðar heima. Það vantar
alveg félagslega þáttinn sem spilar
stóran þátt í mínu daglega lífi.
–Hefur þú hitt vini eða ættingja
í gegnum fjarfundarbúnað?
Já, ég geri það á hverjum degi.
– Hvernig hittingar?
Ég notast aðallega við FaceTime
– Hefur þú eða þitt fólk verið í
sóttkví?
Foreldrar mínir hafa verið í sjálfs-
kipaðri sóttkví síðan 14. mars þar
sem faðir minn er með undir-
liggjandi sjúkdóm, við höfum alveg
hist af og til en þá þarf að fara eftir
þessum reglum sem allir þurfa að
hlýða eins og að þvo hendur, spritta
og það sem er verst er að ekki má
knúsast.
– Hvenær fórstu að taka
COVID-19 alvarlega?
Myndi segja að það hafi verið um
miðjan mars.
– Hvað varð til þess?
Ætli það hafi ekki byrjað á fréttunum
utan úr heimi og svo að sjálfsögðu
þegar smitin fóru að gera vart við
sig hér á landi.
–Hvernig ert þú að fara var-
lega?
Ég bara hlýði Víði og hans félögum.
Held mig við tveggja metra regluna,
þvæ mér mjög reglulega um hend-
urnar og að sjálfsögðu spritta.
–Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
Mér finnst þeir hafa staðið sig frá-
bærlega og þá sérstaklega þríeykið
okkar yndislega.
– Finnst þér fólk vera taka til-
mælum yfirvalda nógu alvar-
lega?
Flestir en ekki allir – sumt fólk er
bara fífl og það breytist ekkert.
– Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að halda sambandi við fólkið mitt
og næra líkama og sál.
– Finnst þér að sveitarfélagið
þitt gæti gert meira?
Nei, ég held að sveitarfélagið sé að
gera nákvæmlega það sem á að gera
á þessum skrýtnu tímum.
– Er samkomubannið að hafa
áhrif á þig?
Já, alveg klárlega. Ég hitti fólkið mitt
sjaldan, fer ekki í skólann, fer ekki á
æfingar og hitti því fátt fólk.
– Hvernig hagar þú innkaupum
í dag?
Ég fer í búð en hlýði Víði í einu og
öllu þegar þangað er farið.
– Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
Ég veit það ekki en langar að vera
bjartsýn og segja fram á haust.
– Þegar faraldurinn er yfirstað-
inn, gerir þú ráð fyrir að ferðast
innanlands eða utan?
Draumurinn er að geta komist eitt-
hvað erlendis en maður verður
bara að sjá til hvernig þetta þróast
allt áður en maður tekur svoleiðis
ákvarðanir.
– Er einhver sérstakur viðburður
eða dagur sem þú óttast að
verði aflýst?
Já. Þjóðhátíð.
Ekkert
voðalega
kósý lengur
Lovísa Sif Einarsdóttir saknar félagslega
þáttarins á tímum COVID-19 en hefur verið
dugleg að læra. Er hrædd um að komast
ekki á Þjóðhátíð í Eyjum
60 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.