Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 43

Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 43
– Er kórónuveiran ekkert að plaga ykkur á þessum slóðum? „Þó svo að það séu fá smit þá höldum við okkur bara í litlum hópum. Við erum ekki að hafa mikil samskipti við aðra til að vera örugg. Hér hafa bara komið upp 120 smit og 110 eru útskrifaðir. Hér hefur enginn látist. Það eru tíu á spítala og landið er lokað. Mér er sagt það að veiran þrífist ekki í þessum rosalega hita og raka, þannig að ég held að í augnablikinu séum við nokkuð örugg.“ – Sérðu þína framtíð þarna, fyrst þú ert búin að læra tungumálið og ert að læra kínversku? „Ég á marga kínverska vini og þeir segja að framburður minn á kínversku sé tignarlegur og þetta er tungumál sem maður verður eigin- lega að læra. Ég læri af YouTube og af vinum mínum. Maður verður að æfa sig að tala og þetta kemur bara.“ – Nú er kínverska stafrófið einhver 3800 tákn. Ertu að læra þau? „Ég ákvað að byrja á matseðlinum. Fyrst þegar ég fór á kínverskan veitingastað þá benti ég á einhverja mynd og við fengum einhvern mat og ég spurði hvað þetta væri. Við fengum þá að vita að þetta væru svínalimir. Eftir það ákvað ég að læra matseðilinn,“ segir Kristín Bára og hlær. – Þú sagðir mér áðan að landið væri lokað. Hafa þá áform hjá þér eitthvað breyst? „Já, ég kem alltaf heim til að vinna en mun ekki koma heim í sumar. Við erum núna að vinna að vítamín- og próteinstykkjum fyrir börn. Við erum að vinna að verkefni þannig að við getum gefið framleiðsluna til fátækra barna, skóla og þeirra sem eru á munaðar- leysingjahælum. Við erum með gott teymi með okkur. Við erum með næringarfræðinga Við erum núna að vinna að vítamín- og próteinstykkjum fyrir börn. Við erum að vinna að verkefni þannig að við getum gefið framleiðsluna til fátækra barna, skóla og þeirra sem eru á munaðarleysingjahælum ... Þau búa á hótelinu. Dr. Tim Healy, Kristín Bára Haraldsdóttir, Kolosom Artem og Adrian Cowen. Kínversk vinkona, Bao Yongen kölluð Rosie, við grilli ð. Þorpið er fullt af hálfbyggðum húsum og vinnuvélar eru út um allt. Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 43

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.