Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 69

Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 69
 Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi JÓHANN LÍNDAL JÓHANNSSON fyrrv. rafveitustjóri Vallarbraut 6, Njarðvík Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 23. apríl. sl. Útför auglýst síðar. Elsa Dóra Gestsdóttir Agnes Jóhannsdóttir Bessi Þorsteinsson Hreinn Líndal Jóhannsson Anna Dóra Lúthersdóttir Jóhann Gestur Jóhannsson Svava Tyrfingsdóttir María Líndal Jóhannsdóttir Elías Líndal Jóhannsson Guðlaug Helga Sigurðsdóttir Lína Dalrós Jóhannsdóttir Gunnlaugur Þór Ævarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir, mágur og afi, ÓSKAR HAFSTEINN FRIÐRIKSSON Birkiteigi 7, Keflavík, lést á Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn 20. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 6. maí kl. 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt af Facebókarsíðu Þórunnar Kolbrúnar Árnadóttur. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin. Þórunn Kolbrún Árnadóttir, Árni Grétar Óskarsson Unnur Helga Snorradóttir Karólína Björg Óskarsdóttir Sigurður Guðjónsson Friðrik Guðni Óskarsson Aldís Sif Bjarnadóttir Þórey Jóhanna Óskarsdóttir Haukur Óli Snorrason Katrín Ósk Óskarsdóttir Friðrik Grétar Óskarsson Karólína Guðnadóttir Guðný Svava Friðriksdóttir Valur Snjólfur Ingimundarson Kristinn Geir Friðriksson Björg Hilmarsdóttir og barnabörn. Bróðir okkar og mágur, STEFÁN JENNÝJARSON HALLDÓRSSON Framnesvegi 5c, Reykjanesbæ, lést á heimili sínu sunnudaginn 29. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Jón Rúnar Halldórsson Signý Elíasdóttir Jóhanna Halldórsdóttir Sigtryggur Hafsteinsson Hvað sögðu þau um fyrirlesturinn? Ingibjörg Jónsdóttir, leikskólastjóri: Bíðum spennt eftir að nota Töfraborg, útisvæðið okkar! „Útivist barna er okkur svo mikið hjartans mál hér í Gefnarborg. Þetta námskeið núna með foreldrum var hugsað sem framhald af námskeiði sem Pálína, ásamt samstarfsfélaga sínum, henni Önnu Lind Björnsdóttur, héldu fyrir starfsfólk Gefnarborgar í september síðastliðnum. En saman erum við, börnin, starfsfólkið og foreldrarnir, að byggja upp og efla Töfraborg sem er útisvæði leikskólans, þar sem áhersla er lögð á að viðhalda stórum hluta lóðarinnar sem ósnortinni náttúru. Vegna stækkunar leikskólans fyrir ári síðan hafa börnin í Gefnarborg ekki getað notað nema lítinn hluta af leikskólalóð sinni í allan vetur, sem þó stóð til að yrði tilbúin við upphaf nýs skólaárs í september síðastliðnum en bæjaryfirvöld ætluðu að sjá um það. Þykir okkur þetta mjög leitt því börnin hafa ekki geta nýtt sér allt það sem foreldrarnir, börnin og starfsfólkið lagði á sig að vinna saman síðastliðið sumar við að smíða útieldhús, kofa, kraftbraut og fleira úr verðlausum efnivið. Við bíðum spennt eftir að fá lóðina lagfærða sem allra fyrst. Það var virkilega gaman að fá þetta góða erindi núna með foreldrunum og gefur okkur byr undir báða vængi um nauðsyn þess að vera meira úti að leika.“ Ásta Guðný Ragnarsdóttir og Valdimar Oddur Jensson: Gaman að vera úti „Þetta var mjög fræðandi og sniðugar hug- myndir sem Pálína gaf okkur um útivist. Það þarf ekki að taka mikinn tíma að fara út til dæmis eftir leikskóla yngsta barnsins þegar allir eru þreyttir. Mér datt í hug að það væri hægt að taka nesti með út,“ segir Ásta Guðný. „Útivist á veturna og á sumrin eru eins og svart og hvítt á Íslandi. Við eigum þrjú börn á aldrinum þriggja, ellefu og þrettán ára og erum dugleg að fara út með þau. Það eru margir leikvellir í Garðinum og nágrenni. Fyrir aftan húsið okkar er mói og þar hafa börnin okkar oft leikið sér. Þau hafa dundað sér í móanum með skóflur og fleira. Um daginn voru þau öll þrjú úti í garðinum okkar að búa til snjóhús,“ segir Valdimar Oddur. „Þau hafa alltaf nýtt móann sjálf. Við höfum líka farið út með þeim og það hefur verið gaman að uppgötva hvað það er gaman að labba í móanum í snjó því það er meiri áskorun þegar þú sekkur ofan í snjóinn á milli þúfna. Með aldrinum breytast leikirnir hjá þeim og leikföngin en náttúran fer aldrei úr gildi. Þar geta þau alltaf fundið sér eitthvað að gera. Útivera er stór partur af lífi okkar með krökkunum,“ segir Ásta Guðný. „Á veturna höfum við aðgang að hestunum hans pabba á Mánagrund. Allir krakkarnir okkar hafa gaman af því að koma inn í hesthús, hvort sem þau eru að kemba hestunum, hoppa í heyinu eða fara á bak. Okkur leiðist aldrei þegar við erum úti saman. Það er bæði hollt og svo þurfa krakkarnir að hugsa stundum og ákveða hvað þau vilja gera úti,“ segir Valdimar Oddur. Ingibjörg Jónsdóttir, leikskólastjóri Gefnarborgar, ásamt Pálínu Ósk Hraundal, fyrirlesara. Valdimar Oddur Jensson og Ásta Guðný Ragnarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR ÁRSÆLL JENSSON fyrrverandi aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurnesjum Stapavöllum 11, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 25. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 5. maí kl. 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. María Ingibjörg Valdimarsdóttir Þórey Halldórsdóttir Vilhjálmur Birgisson Jenný Halldórsdóttir Marteinn Guðjónsson og barnabörn. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 69 Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.