Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 22

Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 22
Fólk er smeykt við þessa veiru, hún er svo óþekk og breytist dag frá degi, alltaf er verið að komast að einhverju nýju og fólk er hrætt. Ekki bætir á ástandið að vera tekjulaus. Þetta er búið að hafa gífurleg áhrif á Spán og á bæinn minn líka. Þetta er mikill ferðamannabær og hér er verið að tala um að sumarið sé ónýtt. Búið að aflýsa öllum bæjarskemmtunum, tónleikum, leikhúsum, sundlaugar opna eflaust ekki og ströndin verður ekki sú sama og önnur sumur.“ Mamman átti erfiðast með þetta – Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst? „Við höfum reynt að halda rútín- unni svona nokkurn veginn, þótt það sé farið aðeins seinna að sofa og vaknað seinna, fyrir utan yngstu skvísuna. Skólinn er búinn að vera í aðalhlutverki myndi ég segja. Hann var ekki tæknilega tilbúinn fyrir þetta ástand og mikið vesen með að fá heimavinnu og fara í tíma á netinu og þess háttar. Hér eru 28 nemendur í bekk og ég er með tvær í skóla þannig að þetta tók á taug- arnar og gerir aðeins enn. Sú yngsta (þriggja ára) fékk meira að segja smá heimavinnu frá leikskólanum. Seinnipartinn reynum við bara að vera að gera það sem okkur finnst skemmtilegt, púslum, frjáls tími í tölvu, sjónvarp eða leik. Miðju- stelpan er mjög listræn og á held ég erfiðast með þetta þar sem hún þarf að fá útrás fyrir þessu eðli sínu og ekki allt til staðar á heimlinu og allar búðir lokaðar, en við reddum þessum. Ég held að mamman hafi átt erfiðast með þetta og ég er nú samt sú heimakærasta á heimilinu en ég viðurkenni að þegar liðnar voru svona þrjár, fjórar vikur án þess að fara út þá fór þetta að taka á. Það sem hefur þó breyst til hins betra er Mannauðar götur og torg Spænskt mannlíf er ekki svipur hjá sjón eins og þessar myndir sýna. 22 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.