Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 20
Þriggja mánaða námskeið orðið að 22 árum
Elva Sif fór fyrst út í þetta þriggja
mánaða spænskunámskeið í septem-
ber 1998 og hefur svo komið heim á
milli. Síðustu þrettán ár hefur fjöl-
skyldan verið helming árs á Spáni
og helming árs á Íslandi, nokkurn
veginn. „En jú, þetta er orðinn ansi
langur tími, 22 ár.“
– Hefurðu alltaf búið á sömu
slóðum?
„Ég bjó fyrst í Malaga-borg, svo flutti
ég til Benalmadena og fór að vinna á
fasteignaskrifstofu og hef verið hér
síðan, kynntist manninum mínum
hér og eignaðist frábæra vini. Enda
er þessi bær mjög ljúfur og góður.
Gott að vera hérna.“
– Hverjir eru helstu kostir þess
að búa þar sem þú býrð?
„Veðrið er nú yfirleitt gott hérna og
maður setur nú lítið út á það, þótt
svo ég sé ábyggilega eina mamm-
an í skólanum sem elskar rigning-
una. Spánverjinn virkar ekki vel í
rigningu. Ég, Íslendingurinn, hef
stundum ekki skilið það. Þegar ég
kom hingað út þá var hætt við heilu
afmælin og kvöldverðina ef það fór
að rigna. Annar kostur við að vera
hérna er kostnaður við að lifa, ég sé
svakalegan mun á matarkörfunni á
Íslandi og á Spáni.
– Hvernig er að vera með fjöl-
skyldu og börn þarna?
„Það er fínt en allt er einhvern veg-
inn á meiri hraða hérna. Kannski
lærum við það í þessu útgöngubanni
að það þarf ekki að fara alltaf svona
hratt. Stelpurnar eru í skólanum til
17:00 og þá er dans, leiklist, tennis
og svo heim að læra ... þannig að það
er ekki mikið eftir af deginum. En jú,
það er gott að vera hérna með börn
myndi ég segja.“
– Hvernig er hefðbundinn
dagur í lífi þínu?
„Ég vakna um átta og rek alla á fætur,
eiginmanninn líka. Hann fer með
skrudduna á leikskólann og ég fer
með stóru stelpurnar í skólann, við
búum á móti skólanum en þær labba
samt ekki einar, annar kostur við
Ísland. Síðan fer ég yfirleitt í rækt-
ina og svo heim að elda mat því þær
koma heim að borða klukkan 13:30
og fara aftur í skólann 15:30.
Suma daga þarf ég að útréttast
fyrir leiguhúsnæðin eða þýða, reyni
að skipta þessu svolítið á dagana.
... hef verið hér síðan, kynntist manninum
mínum hér og eignaðist frábæra vini.
Enda er þessi bær mjög ljúfur og góður.
Gott að vera hérna ...
Lausnarmiðuð hugsun!
Foreldrar þekkja vel að það getur tekið á taugarnar
að vera með börnin heima í útivistarbanni.
20 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.