Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 39
– Finnst þér fólk almennt virða reglur
tengdar samkomubanni?
Almennt held ég að flestir sýni skynsemi í þessu
og passi sig og aðra. Auðvitað er það þannig að
fólk er orðið þreytt á fjarveru frá vinum og ætt-
ingjum og kannski aðeins farið að stækka hópinn
sem það hittir en ég held að árangurinn tali sínu
máli um að þjóðin hefur fylgt þeim leiðbeiningum
sem okkur hafa verið veittar, sýnt skynsemi og
mun sigrast á þessu saman.
– Hvaða lærdóm getum við dregið af
heimsfaraldrinum?
Ég held að það sé mjög margt. Í fyrsta lagi að taka
engu sem sjálfsögðum hlut. Þær breytingar sem
hafa orðið á samfélaginu eru fáránlega miklar á
stuttum tíma og aðlögunarhæfni okkar til fyrir-
myndar. Helstu fræðimenn heimsins hafa talað
um möguleikann á svona faraldri í mörg ár og
því er mikilvægt að vera tilbúin sem ég held að
heimurinn hafi ekki verið en verður það vonandi
næst. Þá er Microsoft Teams, sem ég skildi ekki
tilganginn með þegar við fórum að skoða það í
vinnunni, skyndilega orðið mikilvægasta forritið í
tölvunni og símanum. Fjarvinna er ekkert mál árið
2020 og skrifstofan þarf ekki að vera á ákveðnum
stað.
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í
samskiptum við fólk?
Eins illa og mér er við að vera að hrósa Micro-
soft þá verður að segjast að Teams er algjörlega
búið að bjarga vinnunni hjá mér og örugglega
mörgum öðrum á þessum tímum. Við hjá HS
Orku höfum verið að vinna í þessum málum
síðustu ár og vorum vel í stakk búin til að takast
á við þessar breyttu aðstæður. Ég nota því Teams
mest í vinnunni. Persónulega fara flest mín sam-
skipti fram á Facebook Messenger og svo grípur
maður í símann við og við og fær og sendir eitt
og eitt snap. Ég verð seint áhrifavaldur á þessum
samfélagsmiðlum samt.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í
dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?
Eins sorglegt og það er þá yrði það örugglega í
Friðrik „markvörð“ Friðriksson sem vinnur með
mér hjá HS Orku í þeim tilgangi að stilla saman
strengi eins og við gerum á hverjum degi.
– Ertu liðtækur í eldhúsinu?
Stutta svarið er já. Í aðeins lengra máli þá er ég
veislukokkur. Mér leiðist að elda hversdagslegan
mat þó ég geri það alveg. Þegar öll börnin eru hjá
okkur hræri ég alveg í hakk og spagettí og þess
háttar enda finnst mér mikilvægt að fjölskyldan
borði saman kvöldmat þó hann sé oft á léttum
þönum hjá virkum börnum. Ég aftur á móti hef
mjög gaman af því að elda góðan mat og reyni
að leika mér meira þar. Þegar við erum bara tvö
heima þá er matseðilinn aðeins öðruvísi, yfirleitt
annað hvort heimsent eða veisla á grillinu eftir
því hverju við nennum.
– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?
Ég er svo mikill alfa karlmaður að ég kann best
við mig á grillinu. Þar finnst mér skemmtilegast
að elda spikfeitar nautasteikur í öllum stærðum
og gerðum og veit ekki um neinn sem hefur slegið
hendinni á móti nauti af grillinu hjá mér. Er svo
aðeins farinn að bæta við mig meðlætinu sem ég
nennti aldrei að hugsa um og er til dæmis
núna að vinna í að fullkomna chi-
michurri sem meðlæti. Að grilla
naut er einfalt og krefjandi í senn
og er bara tvennt sem þarf að
muna með góða nautasteik.
Hún á ekki að þurfa neina
sósu enda á hún að vera safa-
rík og sjálfri sér nóg. Þá hef ég
þá reglu með naut að elda það
helst aldrei meira en svo að góður
dýralæknir geti ekki bjargað því.
– Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Í ljósi síðasta svars kemur kannski ekki á óvart að
það er grillað nauta-Rib-Eye með chimichurri.
Það er bara ekkert betra en heimagrillað nautakjöt
með góðu meðlæti og góðu víni í góðum félags-
skap.
– Hvað geturðu ekki hugsað þér að borða?
Tómata sem eru fæða djöfulsins. Ég legg til að við
förum í svipað átak og með sígarettureykingar
fyrir 30 árum og útrýmum þessu. Birtum reglulega
yfirlit yfir það hversu margir krakkar á grunn-
skólaaldi borða þetta drasl og setjum okkur það
markmið að útrýma þessu úr samfélaginu fyrir
2024.
– Hvað var bakað síðast á
þínu heimili?
Það munu vera Rice Krispies-kökur
sem voru bornar fram í fámennu en mjög
góðmennu sjö ára fjölskylduafmæli heimasæt-
unnar, hennar Emblu.
– Ef þú fengir 2000 krónur, hvað myndir þú
kaupa í matinn?
Hérna á maður líklega að vera þjóðlegur og leggja
til eitthvað hollt en ef ég svara þessu heiðarlega
þá væri það líklega ein af þeim þremur pizzum
sem Domino’s væru með á Tríó tilboði sínu í það
skiptið. Ég set viljandi ekki #ad fyrir aftan textann
þar sem ég er því miður ekki styrktur af Domino’s
en vona að þeir setji smá aukapening í knatt-
spyrnudeild Keflavíkur fyrir þessa auglýsingu.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að sv
ara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
– Hvernig heldurðu að Keflavík muni
ganga í 1. deildinni í sumar?
Ég er sannfærður um að Keflavík muni fa
ra upp um deild í bæði kvenna- og
karlaboltanum. Við í stjórninni lögðum ble
ssunarlega af stað í þá vegferð fyrir
tveimur árum síðan að byggja rólega up
p grunn af heimafólki og treysta á
unga fólkið okkar til þess að leiða línuna
hjá okkur í fótboltanum. Drógum
þannig úr spennunni á boganum sem mu
n hjálpa okkur að komast í gegnum
þessa erfiðu tíma – en til að ná árangri þu
rfum við bæjarbúa á bak við okkur
og treystum á stuðning þeirra. Það verð
a allir heima í sumar, sólin verður á
lofti og við mætum öll á Nettóvöllinn og
styðjum okkar fólk í knattspyrnunni
og fögnum svo ærlega öll saman í haust þ
egar árangri er náð.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 39
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.