Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 54

Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 54
– Hvernig stóð á því að þú fluttir til útlanda? Ég hóf flugvirkjanám í október 1985. Meðan ég var í námi hitti ég Tonyu og við giftum okkur 19. ágúst 1987. Eftir námið fluttum við til Lúxemborgar og hóf störf hjá Cargolux. Svo fór ég heim til Íslands 1988. Ég starfaði hjá Flug- leiðum (Icelandair) sem flugvirki árin 1988–1989 og þegar Icelandair endurnýjaði flotann með nýju 757 og 737 vélunum, þá var 22 af okkur sagt upp því að flugvélstjórarnir af DC-8 og 727 vélunum komu á gólfið. Við fórum tveir til Banda- ríkjanna, tveir til Kanada svo fóru nokkrir til SAS, Finair og German Cargo. Ég flutti til Orlando og hóf störf hjá Page Avjet Corporation sem flugvirki í mars 1989. – Var erfið ákvörðun að söðla um og flytja í annað land? Fyrir mig var það ekki erfið ákvörðun á þeim tíma. Ég var á tuttugasta og þriðja ári og konan var frá Bandaríkjunum. Ég var búinn að vera þar í skóla og kunni vel við mig þar. Það var ekki erfitt fyrr en kannski eftir á, þegar ég var búinn að vera í nokkur ár. Ég átti tvær ömmur, afa og langafa og ég fór að sakna þeirra og allrar fjölskyldunnar og vina. Það var erfiðast á jólum og hátíðum. Í upp- hafi var meiningin að vera ekki lengi en það eru komin 31 ár síðan ég flutti út. – Saknarðu einhvers frá Íslandi? Já, það er margt sem ég sakna frá Íslandi. Það er viss orka og andi í landinu sjálfu sem ég finn ekki annars staðar í heiminum. Lands- lagið er ótrúlegt og loftslagið ein- staklega hreint. Ég sakna fjölskyld- unnar, vinanna, menningarinnar, fólksins, sagnanna, tónlistarinnar og tungumálsins. Svo náttúrlega hreina og tæra vatnsins, svo er það fiskurinn, lambið, pylsurnar og rjómaísinn besti. Fleiri með illa lyktandi mat til að halda upp á gamlar hefðir – Er eitthvað framandi sem hefur komið þér á óvart þar sem þú býrð núna? Það kom mér á óvart hvað jólin eru óhátíðleg hér. Við höfum haldið upp á þau kannski meira eins og við gerum heima á Íslandi en hér er nánast bara haldið upp á jóla- dag af heimamönnum, skrautið sett upp í enda nóvember og tekið niður milli jóla og nýárs. Svo á vorin er festival hér í bæ. Að hefð kúrekana þá eru nautaeistu djúp- steikt, það er kallað Calf Fry og er svakalega vinsælt. Ég hef aldrei þorað að prófa þetta og mun senni- lega aldrei gera. Svo er tengdapabbi minn með svínagarnir (Chit- terlings, eða chitlins á slangri) á Þakkargjörðarhátíðinni og það er mikið um það hér, þannig að við Íslendingar erum ekki einir um að vera með illa lyktandi mat til að halda upp á gamlar hefðir. – Hefurðu alltaf búið á sömu slóðum? Nei, við höfum búið á mörgum stöðum. Árið 1990 hóf ég störf hjá Ryan International, sem er bandarískt félag, sem flugvirki, seinna sem vélstjóri og flug- maður. Fyrstu árin var ég að vinna á bækistöðvum sem voru JÓN ÞÓR KARLSSON BÝR VIÐ ÞJÓÐVEG 66 Í BANDARÍKJUNUM „Á aldrei eftir að prófa djúpsteiktu nautaeistun“ Jón Þór Karlsson er fæddur og uppalinn í Keflavík. Hann er giftur Tonyu Fay og þau búa í Vinita í Oklahoma í Bandaríkjunum. Vinita er um 100 km norðaustan við Tulsa, sem margir Íslendingar þekkja, og er heimabær Tonyu. Bærinn er einn af eldri bæjum Oklahoma og er með járnbrautakrossteina, eða „Junction“, og bærinn hét Junction í upphafi. Það var mikil gróska bænum á sínum tíma. Seinna varð pólitíkin þannig hér að þeir vildu ekki stækka bæinn þannig að Tulsa varð að stórborginni á svæðinu,“ segir Jón Þór þegar hann er beðinn um að lýsa heimabænum sínum. „Hér í bæ eru mörg hjúkrunar- og elliheimili, þannig að ég tel að stærsti atvinnuvegur hér sé heilsu- geirinn. Svo eru margir búgarðar hér og mikið um nautgripi, sem eru aldir til kjöts. Jón Þór og Tonya eiga þrjú uppkomin börn, Kristinn Þór 32 ára, Árnína Lilja 26 ára og Jakob Solimon, sem er 24 ára. „Hjá okkur búa svo tvö barna- börn, þær Daenerys Phoenix og Solstice Rayne en þær eru dætur Árnínu. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Tonya Fay og Jón Þór. 54 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.