Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 68
Góðar minningar tengdar útiveru
– Töfraborg er útisvæði leikskólans í Garði
Margir af eldri kynslóðinni eiga æskuminningar tengdar útivist, óskipu-
lagðri og sjálfsprottinni þar sem farið var út að leika í götunni eða í
móanum. Þá fundu krakkar upp á að fara í brennó, kíló, feluleik og miklu
fleiri leiki úti undir berum himni en þá voru jafnvel engar skipulagðar
íþróttaæfingar heldur þurftu börn að skemmta sér sjálf utandyra. Það
kom fyrir að mæður ráku börn sín út að leika vetur, sumar, vor og haust.
Það skipti engu máli hvernig viðraði, ef það var vont veður þá myndi
rokið herða krakkaskottin og gefa þeim rauðar kinnar. Ekkert væl.
Leikskólinn Gefnarborg í Garði bauð
upp á námskeið fyrir foreldra eftir
áramót, þar sem útivist barna var
til umfjöllunar. Fyrirlesari á nám-
skeiðinu var Pálína Ósk Hraundal,
annar höfundur Útilífsbókar fjöl-
skyldunnar. Á námskeiðinu var lögð
áhersla á fræðslu um kosti útiveru
og kynntar aðferðir sem veita fjöl-
skyldum aukinn innblástur og hug-
myndir að útivist.
Víkurfréttir fengu boð um að koma
og hlusta á Pálínu fræða foreldra,
erindið var mjög fróðlegt og ekki
annað að heyra en að foreldrar væru
áhugasamir og hrifnir.
– Áttu þér uppáhaldsstað í
náttúrunni?
„Æskuminningar foreldra eru oft
tengdar útiveru, þegar þau voru
sjálf að leika í snú snú eða brennó
en nútímabörn eru meira í skipu-
lagðri hreyfingu hjá íþróttafélagi.
Eigið’i uppáhaldsstaði í nærum-
hverfi ykkar? Hvenær fórstu þangað
síðast?,“ spyr Pálína foreldra sem
mættir eru á fundinn og svara;
Móinn í kringum Garðinn eða fjaran
á Garðskaga.
„Í dag þegar tölvan tekur meir
og meir af frjálsum leiktíma barna
þá þurfa foreldrar að bregðast
við. Áður fundu börn sjálf upp á
leikjum, bæði úti og innandyra.
Foreldrar ráku jafnvel börnin út að
leika. Börn eru svo hugmyndarík og
þurfa ekki mikið til að dunda sér við
utandyra. Vatnspollur eða að drull-
umalla heldur börnum hugföngnum
lengi. Það eru helst foreldrarnir sem
vilja ekki að þau skíti sig út en þá er
að klæða þau rétt. Veðrið er engin
hindrun heldur fatnaðurinn. Úti-
vist hjálpar börnum að vera hraust
og útisundlaugar eru flottir útivistar-
staðir,“ segir Pálína Ósk sem brennur
greinilega fyrir málefninu.
– Förum út saman eftir leikskóla
„Foreldrar þekkja vel svokallaðan
úlfatíma barna, þegar þau koma
heim af leikskólanum og eru dauð-
þreytt og vælin. Þá er mjög sniðugt
að fara með þeim út að leika til að
hressa þau við, þó ekki væri nema í
fimmtán mínútur, í staðinn fyrir að
vera með þeim inni. Útivistin hressir
ekki aðeins börnin heldur einnig for-
eldrana sem koma einnig þreyttir
heim úr vinnu. Ef það er erfitt heima
fyrir þá getur verið léttara að fara út
með barnið í útiloftið,“ segir Pálína.
Manni dettur í hug að líklega
eru margir foreldrar í dag sem láta
barnið fá spjaldtölvu þegar þau eru
þreytt eða stilla þeim fyrir framan
sjónvarp, í stað þess að leyfa þeim
að detta inn í leik með leikföngum
sínum? En börn eru snillingar í
núvitund, gleyma stað og stund,
þegar leikur er annars vegar.
– Verum miklu meira úti
„Ég hef verið búsett í Noregi undan-
farin tólf ár, við eigum þrjú börn en
þar var elsta dóttir mín á útileik-
skóla, sem þýddi það að hún var úti
í sjö og hálfan tíma á dag. Hún varð
aldrei lasin en sonur minn sem er
á innileikskóla í dag er alltaf lasin.
Útiloftið styrkir börnin okkar. Það
er svo margt hægt að gera úti, börn
eru fljót að finna upp á einhverju.
Aðalatriðið er að við, fullorðna
fólkið, séum jákvæðar fyrirmyndir
og hvetjum börnin okkar áfram.
Við þurfum sjálf að hafa jákvæðan
vinkil gagnvart veðrinu. Ekki dæma
veðrið fyrir framan börnin því þeim
er sama ef þau eru klædd eftir veðri
og halda á sér hita. Ullin er besta
flíkin þegar kalt er úti. Verum dugleg
að hafa jákvæð orð um veðrið eins og
til dæmis; Sólin þurfti frí í dag, það
er rok úti og þá getum við fundið
okkur skjól. Það er hollt fyrir börn
að leika sér úti, jafnvel að leika sér í
mold og að drullumalla. Þó að þau
setji stundum upp í sig mold þá er
það ekki hættulegt því í leiðinni eru
þau að auðga magaflóruna. Að börn
vilji fara út að leika sér er eitthvað
sem við þurfum að styðja. Við fjöl-
skyldan höfum haldið upp á afmæli
barna okkar utandyra, í alls konar
veðri. Þá höfum við kveikt varðeld
og brennt snúrubrauð og hitað kakó.
Þetta eru líka skemmtileg afmæli,“
segir Pálína.
– Útivist um helgar
„Um helgar er gaman að skipuleggja
fjallgöngu með börnunum eða ein-
hverja ferð út í buskann með þeim,
gönguferð frá heimilinu eða annað
sem ykkur dettur í hug. Náttúran
verður aldrei uppiskroppa og gefur
okkur óþrjótandi möguleika. Okkur
leiðist aldrei úti ef við erum rétt
klædd. Gefa sér tíma í útivistinni,
ekki að flýta sér heim. Sumum finnst
gott að hafa nesti með og heitt kakó
á brúsa á veturna. Gefum fjölskyld-
unni góða upplifun utandyra og lát-
um ráðast hversu lengi er gengið og
hvar er staldrað við á leiðinni. Svona
erum við að skapa góðar minningar.
Tjaldútilega á sumrin og gönguferðir
að vetri. Nota náttúruna í kringum
ykkur. Þetta þarf ekki að vera flókið.
Foreldrar eru fyrirmyndir og ráða
því hvernig þeir móta börnin sín,
sem eru svo tilbúin að læra. Full-
orðnir verða að muna það. Ef ykkur
langar að prófa eitthvað öðruvísi
utandyra, þá eru til bækur á íslensku
um þetta efni og einnig erlendar. Svo
er gaman að spyrja börnin hvað þau
vilja sjálf gera, leyfa þeim að undir-
búa með ykkur. Erfiðasti áfanginn
er að fara yfir þröskuldinn heima.
Hættum að nota endalausar afsak-
anir og förum út að leika,“ segir
Pálína Ósk Hraundal.
Útivera:
■ Minnkar streitu.
■ Eykur einbeitingu hjá
börnum, sérstaklega gott
fyrir börn með ADHD.
■ Eykur vellíðan.
■ Dregur úr kvíða.
■ Eflir sköpunargáfu.
■ Dregur úr skapsveiflum.
■ Lækkar blóðþrýsting.
■ Eykur slökun.
Marta Eiríksdóttir
marta@vf.is
Töfraborg heitir útisvæði leikskólans.
Myndin var tekin á vinnudegi foreldra, barna og starfsfólks.
Ingibjörg Jónsdóttir, leikskólastjóri
Gefnarborgar, ásamt Pálínu
Ósk Hraundal, fyrirlesara.
68 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.