Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 70
Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman leggur stund á stærðfræðinám í
Háskóla Íslands. Hún hefur stundað fimleikaæfingar í gegnum fjarfundar-
búnað á Zoom og hefur áhyggjur af fjölskyldu sinni sem býr í Banda-
ríkjunum.
– Hvernig ert þú að upplifa
ástandið í kringum COVID-19?
Mér finnst ástandið í kringum þetta
mjög skrítið og ég held að ég sé ekki
að átta mig almennilega á því hvað
þetta er stórt.
– Hefurðu áhyggjur?
Auðvitað hefur maður áhyggjur á
tímum sem þessum. Áhyggjurnar
beinast aðallega að fjölskyldumeð-
limum og vinum sem eru í áhættu-
hópi og einnig að fjölskyldunni
minni sem býr í Bandaríkjunum.
Hugur minn er einnig hjá þeim
sem hafa misst einhvern nákominn
í þessari baráttu.
– Hvaða áhrif hefur faraldurinn
á þitt daglega líf?
Já, ég hef gert miklar breytingar á
daglegu lífi. Ég er vön því að vera
mjög upptekin flesta daga, bæði í
námi og á fimleikaæfingum, en núna
fara bæði námið og æfingarnar fram
heima hjá mér.
– Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu
eða nám?
Já, allt mitt nám fer fram í fjar-
kennslu þannig að ég horfi á alla
fyrirlestrana mína heima og ég hef
ekki mætt í skólann síðan samkomu-
bannið hófst.
– Hefur þú hitt vini eða ætt-
ingja í gegnum fjarfundar-
búnað? Ef svo er, hvernig hitt-
ingar?
Já, ég er bæði búin að hitta liðs-
félagana mína og vini mína í gegnum
fjarfundarbúnað. Við í Gerplu erum
líka duglegar að taka fimleikaæfingar
saman á Zoom. Það er mjög skrítið
en það virkar.
– Hvenær fórstu að taka
COVID-19 alvarlega?
Nokkrum dögum áður en sam komu-
bannið hófst.
– Hvað varð til þess?
Það var svo sem ekki neitt sérstakt en
mig grunar að það hafi verið vegna
þess að ég sá fréttir í fjölmiðlum um
að faraldurinn væri búinn að breið-
ast út og ætti eftir að breiðast ennþá
meira út. Þá áttaði ég mig almenni-
lega á því að þetta væri miklu stærra
en ég hélt.
– Hvernig ert þú að fara var-
lega?
Ég passa vel upp á handþvottinn
og reyni að vera sem minnst í fjöl-
menni.
– Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
Ótrúlega vel, hrós til þeirra.
– Finnst þér fólk vera taka til-
mælum yfirvalda nógu alvar-
lega?
Já, almennt. Ég finn það samt svolítið
í samfélaginu núna þegar veiran er í
rénun að fólk virðist aðeins vera að
gleyma sér. Þess vegna tel ég mikil-
vægt að muna að þetta er ekki búið
og veiran getur blossað upp aftur ef
við pössum okkur ekki nógu vel.
– Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Mér finnst mikilvægast að hugsa
vel um sjálfan sig og reyna að skapa
góðar stundir með sínum nánustu.
Hvernig finnst þér sveitarfélagið
standa sig í þessum málum?
Almennt mjög vel. Mér finnst
sumar búðir hér á svæðinu ekki
vera að taka ástandið nógu alvar-
lega. Á sumum stöðum er ekki talið
inn í verslanirnar og það eru engar
merkingar til þess að hjálpa fólki að
fylgja tveggja metra reglunni.
– Er samkomubannið að hafa
áhrif á þig?
Að sjálfsögðu, ég má hvorki mæta
í skólann né á fimleikaæfingar og
það hefur mikil áhrif á mig en það er
mikilvægt að vera jákvæður og muna
að þetta er einungis tímabil sem mun
taka enda – hvenær sem það verður.
– Hvernig hagar þú innkaupum
í dag?
Beggja blands. Við höfum bæði verið
að versla á netinu og úti í búð.
– Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
Ég geri ráð fyrir að þetta muni vara
allavega fram á haust. Ég vona samt
innilega að þetta muni vara skemur
en ég held að það sé betra að horfa
raunhæfum augum á ástandið í stað-
inn fyrir að gera sér vonir um annað.
– Þegar faraldurinn er yfirstað-
inn, gerir þú ráð fyrir að ferðast
innanlands eða utan?
Bæði. Ég stefni á að ferðast innan-
lands í sumar, svo ætluðum við fjöl-
skyldan að fara til Bandaríkjanna í
haust en við vitum ekki hvort við
komumst. Ástandið er enn mjög
slæmt í Bandaríkjunum og svo eru
miklar takmarkanir á flugumferð.
– Er einhver sérstakur viðburður
eða dagur sem þú óttast að
verði aflýst?
Já, Evrópumótið í hópfimleikum sem
á að vera í október. Ég missti af síð-
asta EM vegna meiðsla og er búin að
bíða spennt eftir að geta keppt á öðru
Evrópumóti síðan þá en það eru ein-
faldlega skemmtilegustu mótin. Við
höfum ekkert heyrt enn svo ég held
í vonina um að það verði á tilsettum
tíma. Það lítur einnig allt út fyrir að
Þjóðhátíð verði frestað sem er mjög
leiðinlegt.
Fólk virð-
ist vera að
gleyma sér
Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman
hefur gert miklar breytingar á sínu lífi
á tímum COVID-19. Hún hefur stundað
fimleikaæfingar á Zoom sem hún segir
skrýtið en það virki.
N
etspj@
ll
70 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.