Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 74
Una Ósk er listamaður en segist
í samtali við Víkurfréttir einnig
hafa dútlað við myndbandagerð
og hlaðvarp eða podcast eins og
það heitir upp á enskuna. Á síðasta
ári vann Una Ósk einnig að fram-
leiðslu á hljómdiski sem Aníta
dóttir hennar, sem er söngkona og
lagahöfundur, gaf út. Þá segist Una
Ósk einnig vilja stuðla að jákvæðu
hugarfari.
– Hvernig stóð á því að þú
fluttir til útlanda?
„Það byrjaði allt þegar ég var sjö
ára gömul. Þá missti ég móðir
mína úr brjóstakrabba og ég
kunni ekki að takast á við sorgina.
Seinna, árið 2006, missti ég bróður
minn í eldsvoða í Grindavík og
svo tveimur árum seinna dó faðir
minn úr hjartaáfalli. Ég átti erfitt
með að halda áfram en ég varð að
gera það vegna dætra minna svo
það mín ákvörðun var að færa
meira ljós inn í líf okkar.“
Una fór fyrst í ferðalag til Evrópu
árið 2010 en segir að hún hafi ekki
litið tímana eftir fjármálakrepp-
una björtum augum. Ástralía varð
fyrir valinu og í september á þessu
ári verða komin tíu ár frá því þær
mæðgur lentu í Ástralíu.
– Var erfið ákvörðun að söðla
um og flytja í annað land?
„Nei, ég þurfti nýtt upphaf og ef
ég varð að gera það, af hverju ekki
fara alla leið og flytja til staðar
þar sem sól og sumar er allt árið
í kring? Sumir höfðu sagt að við
myndum koma fljótt aftur og að
Ísland væri eini öruggi staður til að
búa á. Neikvæðnin hjálpaði ekki
en ég gat ekki látið það stoppa mig
í að byrja uppá nýtt. Ég varð að
bjarga sjálfri mér frá drukknun, ef
svo má segja.“
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Nei, núna í dag með Facebook
og Messenger get ég auðveldlega
hringt og spjallað við mína nán-
ustu fjölskyldu og vini. Fjölskyldan
sem hélt mér á Íslandi er farin.
Þau liggja í kirkjugarði Hafnar-
fjarðar og fyrir mér skiptir ekki
máli hvar ég er í heiminum, þau
eru ávallt með mér.“
Una Ósk Kristinsdóttir hefur búið í áratug í Ástralíu og er að njóta
lífsins þar ásamt þremur dætrum sínum en hún ákvað að flytja til lands
þar sem alltaf væri sumar og sól í kjölfar bankahrunsins.
VESTUR-ÁSTRALÍA
VALDI OKKUR
Una Ósk Kristinsdóttir er úr Grindavík en hefur búið lengi í Ástralíu. Hún býr ásamt þremur dætrum sínum, þeim Alexöndru 26 ára, Anítu 16 ára og Söru
15 ára, í Fremantle sem er stærsta hafnarborg
Vestur-Ástralíu.
Myndað í The Pinnacles.
74 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.