Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 82
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Er þorrinn
í ferðabransanum?
1. MAÍ HÁTÍÐARHÖLD
Súrustu mánaðamót sögunnar
Þessi mánaðamót eru súrustu mánaðamót sögunnar. Atvinnuleysi á
Suðurnesjum hefur náð áður óþekktum hæðum. Icelandair kórónaði
hörmulegan apríl með því að segja upp ríflega 2.000 manns. Nánast
öllum flugfreyjum, flugmönnum og starfsfólki í flugstöðinni. Helm-
ingnum af flugvirkjunum og svo einum framkvæmdastjóra af níu – eða
honum var ekki sagt upp, bara færður niður í tign. Er nokkuð viss um
að framkvæmdastjóri hjá Icelandair kostar sitt. Það er nauðsynlegt að
hafa átta slíka í vinnu þegar ekkert er flogið. Þeir nefnilega sjá um að
viðskiptamódelið gangi upp.
Margt bendir til þess að hingað
komi ekki fleiri ferðamenn á árinu.
Allavega ekki meðan tveggja vikna
sóttkví er í gildi. Þeir dvelja að
meðaltali í tíu daga yfir sumartím-
ann. Geri ekki ráð fyrir að sóttkví á
Íslandi sé meira spennandi en annars
staðar, eða hvað?
Við erum eyja í miðju Atlantshaf-
inu. Höfum náð frábærum árangri í
baráttu við veiruna. Hugsanlega betri
árangri en nokkrir aðrir. Höfum líka
skimað flesta miðað við höfðatölu.
Ísland sem sóttkví milli Ameríku og
Evrópu. Selja Bandaríkjamönnum
þá hugmynd að enginn Evrópubúi
fái að koma þangað nema hafa verið
skimaður á Íslandi fyrst. Þriggja daga
stopp að lágmarki. Seljum vitan-
lega Evrópubúum sömu hugmynd.
Nýtum okkur staðsetninguna.
Flugfélagi og
ferðaþjónustu reddað.
Góðar stundir
LO
KAO
RÐ
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR