Spássían - 2013, Blaðsíða 6

Spássían - 2013, Blaðsíða 6
6 jálfsagt gæti einhverjum fundist býsna yfirdrifið að persóna í skáldsögu upplifi á aðeins tæpum tveimur mánuðum eldgos, mannskæða drápspest, lok heimsstyrjaldar og fullveldishátíð. Hvaða höfundur sem er gæti fengið skömm í hattinn fyrir svo óraunsæja samfélagslýsingu og uppskrúfaða dramatík. Stundum er þó raunveruleikinn ótrúlegri en nokkur skáldskapur og sú er einmitt raunin í nýjustu bók Sjóns, Mánasteini, sem er söguleg skáldsaga og gerist í Reykjavík haustið 1918.  Í Mánasteini segir frá sextán ára gömlum munaðarlausum dreng, Mána Steini Karlssyni, sem býr á háalofti hjá gamalli konu og eyðir megninu af tíma sínum í kvikmyndahúsum, á rölti um borgina eða með „kónum“. Máni Steinn, eða „drengurinn“ eins og sögumaður kallar hann oftast, vinnur nefnilega fyrir bíóferðunum með vændi og veitir fjölmörgum karlkyns bæjarbúum kynferðislega útrás í skjóli nætur, bak við luktar dyr eða undir kletti í Öskjuhlíðinni. Sagan gerist á átta vikum og þótt söguþráðurinn hverfist að nokkru leyti um áhrif spænsku veikinnar á drenginn og bæjarlífið er aðalspennuvaldurinn – og eitt meginviðfangsefni bókarinnar – kynferðislíf og kynhneigð drengsins. Hápunktur sögunnar er fullveldisdagurinn 1. desember, þó ekki hátíðarathöfnin sjálf heldur það sem gerist á meðan á henni stendur. Eftir það eru örlög drengsins ráðin – og þó ekki.  Þessi stutta skáldsaga er sérstaklega áhugaverð fyrir þær sakir að hún er ein af sárafáum íslenskum bókum, hvort sem er sagnfræðilegum eða skálduðum, sem komið hafa út og fjalla um hinsegin fólk eða persónur á fyrri hluta tuttugustu aldar. Mánasteinn gerist á tímum þar sem „samræði gegn náttúrulegu eðli“ var bannað samkvæmt íslenskum hegningarlögum. Samkynhneigð var ekki til sem flokkunarhugtak og kynvilla og hómósexúalismi voru orð sem heyrðust afar sjaldan en þá langoftast í neikvæðri merkingu. Fátt var skrifað um hinsegin tilveru á þessum árum og ef það var skrifað var það sjaldan gefið út. Af þeim sökum hefur myndast eyða í sögunni og tilvist fólks eins og Mána Steins hefur verið dregin í efa, samanber undirtitil bókarinnar: Drengurinn sem aldrei var til.  Sjón nálgast þetta viðfangsefni sitt fordómalaust, opinskátt og – það sem er kannski mikilvægast – af skilningi. Máni Steinn er ekki samkynhneigður eða hommi í nútímamerkingu þeirra orða, því hann skilgreinir kynhneigð sína ekki og heillast bæði af körlum og konum. Sjón sýnir engan tepruskap þegar kemur að því að lýsa kynlífi tveggja karla, enda engin ástæða til. Kynlífssenurnar eru margar, myndrænar og nákvæmar; sumar lýsa því hvernig drengurinn fær pening fyrir næstu bíóferð en aðrar eru fallegar ástarsenur. Hin ævintýralega Sóla Guðb. vekur enn fremur þrá drengsins og hann sefur með rauða klútinn hennar um hálsinn. Allt ber þetta vitni um skilning og innsæi skáldsagnahöfundar sem hefur sett sig inn í hugarheim og samtíma persónu sinnar en reynir ekki að útskýra eða skilgreina tilvist hennar og hegðun með nútímahugtökum.  Eins og fram kom í viðtali Egils Helgasonar við Sjón í Kiljunni 30. október var vandað til verka við heimildaöflun í aðdraganda þessarar bókar, líkt og annarra sögulegra skáldsagna höfundarins. Mánasteinn er rík samtímalýsing á Reykjavík, sem var 15.000 manna bær árið 1918, og áminning um að Íslendingar voru alls ekki allir einangraðir í torfkofum sínum fram að síðari heimsstyrjöld eins og stundum hefur verið haldið fram. Kvikmyndamenning í Reykjavík var til dæmis mjög lífleg um þetta leyti og þar fengu Íslendingar eins og Máni Steinn að skyggnast út fyrir landsteinana og kynnast erlendri menningu.  Vinsældir kvikmyndanna voru þó gagnrýndar af ýmsum og það kemur fram í skáldsögu Sjóns, þar sem læknir nokkur heldur því fram að kvikmyndagláp geti leitt til kynvillu. Með þessu er vísað til íslenskrar þjóðernisorðræðu þar sem því var gjarnan haldið fram langt fram eftir tuttugustu öld að erlend menning á borð við kvikmyndir, djass og afþreyingarbókmenntir spilltu íslenskum ungmennum. Í Mánasteini eru kvikmyndir aftur á móti haldreipi drengsins og veita honum styrk til að takast á við lífið, þótt hans kynvillta líf samræmist kannski ekki íslenskum þjóðernishugmyndum. Þannig er skáldsaga Sjóns einnig óður til kvikmyndalistarinnar – eða lista yfirhöfuð – og áhrifamáttar hennar.  Mánasteinn er lítil bók en innihaldið er einstakt. Líkt og steintegundin sem vísað er til í titlinum leggur einhvern óútskýranlegan innri bjarma frá þessari sögu og aðalpersónu hennar. Hún fjallar um flókið efni án þess að gera tilraun til að útskýra það til fullnustu og veitir innsýn í menningar- og sögulegan kima sem ekki hefur verið varpað ljósi á áður á Íslandi. Síðast en ekki síst fjallar hún um hvernig listsköpun á borð við kvikmyndir getur breytt lífi fólks – og það er fallegur boðskapur. Eftir Ástu Kristínu Benediktsdóttur Sjón. Mánasteinn. Drengurinn sem aldrei var til. JPV útgáfa. 2013. S kynvilla á dögum spænsku veikinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.