Spássían - 2013, Blaðsíða 70

Spássían - 2013, Blaðsíða 70
70 yfirlesið að vísu nokkuð þung fyrir börn, en fengur hverjum greindum unglingi.“ „Að vísu nokkuð þung fyrir börn,“ er nokkuð viðeigandi lýsing. Söguþráður bókarinnar er nokkuð langur og flókinn og persónurnar margar og skortir sálfræðilega dýpt. Sem táknsaga er sagan líka heldur flókin fyrir börn og fullorðnir lesendur geta einnig átt erfitt með að átta sig á merkingu hennar. Af þessum sökum má ætla að sagan höfði illa eða jafnvel alls ekki til barna, þótt vitanlega sé ómögulegt að fullyrða um smekk einstakra lesenda, á hvaða aldri sem þeir eru. Einnig má nefna að myndirnar sem skreyta bókina – og sérstaklega er minnst á í auglýsingum frá útgefanda – eru dimmar og óræðar og ekki líklegar til að laða að sér mjög unga lesendur. MISHEPPNUÐ MARKAÐSSETNING? Meginniðurstaða þessarar umfjöllunar er því þessi: Sagan af Snæbjörtu Eldsdóttur og Ketilríði Kotungsdóttur var rangflokkuð frá fyrsta degi. Hún er ekki barnabók heldur fullorðinsbók – þó vissulega í nokkuð óhefðbundnum búningi því frumsamin ævintýri fyrir fullorðna eru ekki á hverju strái. Vissulega má deila um gæði bókarinnar; táknsögur með pólitískum skilaboðum höfða ekki til allra og flókinn söguþráður og staðlaðar, tákngerðar persónur geta flækst fyrir fullorðnum jafnt sem börnum. Hvaða ástæður liggja að baki vali á frásagnaraðferð og formi verður að liggja á milli hluta en ljóst er að í sögunni beinir skáldkonan orðum sínum og ádeilu til íslenskra lesenda en ekki barna sérstaklega. Dætur Jakobínu, Sigrún Huld og Sigríður Kristín Þorgrímsdætur, minnast á þessa undarlegu flokkun í minningargrein um móður sína í Morgunblaðinu 29. janúar 1995: „Sagan af Snæbjörtu Eldsdóttur og Ketilríði Kotungsdóttur [...] var að formi til ævintýri og er oft flokkuð sem barnabók. Það er þó fjarri lagi, því hér er ádeila á ferð, framhald baráttuljóða hennar gegn her í landi, en ekki nein barnagæla“ (30). Sigrún hefur auk þess tjáð undirritaðri að Jakobína hafi alla tíð verið örg yfir þessari flokkun en þó líka getað hlegið að henni. Ábyrgðin á þessari rangflokkun hlýtur því að liggja hjá útgefandanum, Heimskringlu. Vissulega er löng hefð fyrir því að flokka ævintýri sem barnaefni, og því verður ekki neitað að bæði form og inntak bókarinnar er óvenjulegt, en þó er ekki annað hægt en að velta fyrir sér hvort ekki hefði mátt markaðssetja hana á annan hátt. Kannski hefðu örlög sögunnar af Snæbjörtu og Ketilríði orðið önnur ef hún hefði fengið að sitja annars staðar en í barnabókahillunni. Sagan af Snæbjörtu Eldsdóttur og Ketilríði Kotungsdóttur var rangflokkuð frá fyrsta degi. Hún er ekki barnabók heldur fullorðinsbók. „ Auglýsing í Speglinum,1959.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.