Spássían - 2013, Blaðsíða 38
38
„
að færa langanir sínar í orð. Ýmislegt
fleira breytist, hún fer að bjóða
andstyggilegri samstarfskonu byrginn,
kaupir sér falleg föt og fer að stunda
líkamsrækt. Þegar hún svo tælir að
eigin frumkvæði glæsilegan ungan
mann á skíðaferðalagi í Kanada hrósar
umsjónarkona hennar hjá L.E.Y.N.D.
henni sérstaklega fyrir dugnaðinn:
„Þú, væna mín, hefur blómstrað“
(196).
Hámarki nær sagan þegar Cassie
fær að velja úr fyrri fantasíufolum
sínum á mikilli hátíð en velur svo að
lokum hinn eina, sanna draumaprins:
Hinn ljúfa og góða Will, yfirmann
sinn og eiganda kaffihússins. Svona
gæti sagan endað en þá væri búið að
skrúfa fyrir möguleikann á framhaldi
og Cassie er neydd til að yfirgefa
Will og velur í staðinn L.E.Y.N.D.,
framtíð með fantasíufélaginu frekar
en raunheimafola. Í framhaldinu, sem
ekki hefur verið þýtt á íslensku og ber
titilinn S.E.C.R.E.T. shared er Cassie
komin í hlutverk leiðbeinanda og
skjólstæðingur hennar er ung kona,
Dauphine Mason, sem hefur ekki
hugmynd um hversu heillandi hún
raunverulega er.
ÍSLENSK OG ERÓTÍSK
SKÁLDSAGA
Það er ekki nóg með að vinsælustu
útlendu erótísku skáldsögurnar
séu þýddar á íslensku heldur eru
einnig samdar innlendar bækur.
Karl Fransson er dulnefni höfundar
bókarinnar Elskhuginn sem, öfugt við
bækurnar sem þegar hefur verið fjallað
um, segir frá karlkyns aðalsöguhetju;
þrítuga, fráskilda föðurnum og
arkitektarnemanum Patrice sem er
íslenskur í aðra ættina en franskur í
hina. Patrice stundar námið af kappi
en það er dýrt að lifa og læra í París og
þess vegna vinnur hann sem vikapiltur
á lúxushóteli í borginni samhliða
námi.
Patrice vekur athygli hótelgesta,
bæði karla og kvenna, enda er hann
glæsilegur ungur maður og veit vel af
því:
Ég naut athyglinnar sem
ég fékk öðru hverju frá
feimnislausum hótelgestum.
Sumar konur hvísluðu og litu
mig girndaraugum, einkum
þegar þær voru við skál og
birtust seint á kvöldin. Engin
furða því fjölmargar þessara
ungu, glæsilegu kvenna voru í
fylgd fullorðinna auðjöfra sem
virtust fáum öðrum kostum
gæddir við fyrstu sýn en að baða
sig í peningum, sviðsljósinu, lyfta
glösum og slá golfbolta. Einstaka
karlmaður gjóaði augum á eftir
mér. Ég kunni því vel, gat lesið
hugsanir sumra (Elskhuginn,
13).
Og það er við svona aðstæður, í
„slim fit“ skyrtu, þröngum buxum
„þannig að kúlurassinn var áberandi“
(12) og í gljábónuðum skóm sem
Patrice hittir dömu sinna drauma
í fyrsta sinn, Mirabelle - heillandi
eiginkonu eldri demantakaupmanns.
Demantakaupmaðurinn svíkur
hana um stefnumót og Mirabelle
heimtar að Patrice komi með sér í
hans stað. Í rökkvuðu horni þriggja
Michelin-stjörnu veitingastaðarins
láta Mirabelle og Patrice vel hvort
að öðru og seinna um kvöldið klifrar
hann upp veggi hótelsins og inn
um svaladyrnar og nuddar nakinn
líkama hennar þar sem hún bíður
eftir honum í 300 fermetra svítunni.
Patrice er hugfanginn og „[l]öngunin
til að ríða Mirabelle hafði yfirtekið
heilasellurnar“ en hann gerir ráð fyrir
að það ástand vari uns hann komist
yfir hana (60).
Áður en sögu lýkur hafa þau leikið
sér með hindber og kampavín og
má fullyrða að báðir aðilar stíga frá
borði mettir og fullnægðir.