Spássían - 2013, Blaðsíða 24

Spássían - 2013, Blaðsíða 24
24 litla virðingu fyrir ásynjunum, álit þeirra skiptir ekki máli og þeim finnst sjálfsagt að Freyja þjóni samfélaginu með því að giftast Þrymi og færa ásunum þannig hamarinn á ný. Neitun hennar, sem í kvæðinu er tekin góð og gild, er varla svara verð í sögunni og ætlast er til að hún fórni sér fyrir samfélagið í aðstæðum sem karlarnir ráða ekki við. Heimdallur og Loki fá hins vegar þá afbragðshugmynd að dulbúa Þór frekar sem Freyju. Þegar til Þryms er komið er Þór látinn vinna kvenmannsverk, sem honum líka alls ekki og enn síður þegar kemur að því að greiða út laun dagsins og hann fær mun minna en karlmennirnir fyrir svipaða vinnu. Þau laun eru m.a.s. dregin til baka þegar greiðandinn uppgötvar að hann er væntanleg húsfreyja og á þess vegna að vinna launalaust. Þór verður sármóðgaður yfir því hvernig jötnarnir fara með konur sínar, en áttar sig ekki á að hann er sekur um svipaðan hugsunarhátt gagnvart ásynjunum. Þór í kvenklæðum verður líka fyrir aðkasti jötnanna, sem sumir fara með ýmsar klisjur um gagnsemi kvenna, þær eigi að vera grannar og fallegar til að gleðja menn sína, að nei sé meyjar já og að það eina sem konur skilji séu barsmíðar. Aðkastið sem Þór verður fyrir sem kona í Jötunheimum gengur lengra en að endurspegla einvörðungu hans eigin karlrembu í Ásgarði. Framsetningin á því áreiti og misskiptingu sem hann verður fyrir í kvenmannsgervi er fremur ádeila út fyrir heim bókanna, á misskipt kjör karla og kvenna og baráttu femínista fyrir jöfnum kjörum, en sú barátta var í fullum gangi á ritunartíma bókarinnar. Í stað þess að vera, líkt og kvæðið, gamansaga um hversu ómögulegt það er fyrir Þór að dyljast í kvengervi, verður bókin ádeila á misskiptingu kynjanna. SKÁLDSKAPARMJÖÐURINN Ellefta bókin, Mysteriet om digtermjøden (1998), fjallar um tilurð skáldskaparmjaðarins og það hvernig Óðinn kom höndum yfir hann. Í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu er sagt frá því hvernig mjöðurinn varð til. Þegar saminn var friður eftir stríð ása og vana hræktu þeir allir í pott og úr var skapaður maðurinn Kvasir, sem var svo vitur að hann ferðaðist milli heima og deildi visku sinni, allt þar til dvergarnir Fjalar og Galar myrtu hann og blönduðu blóði hans við hunang, svo úr varð skáldskaparmjöðurinn. Dvergarnir drápu síðar jötuninn Gilling og þurftu að greiða syni hans Suttungi mjöðinn í föðurgjöld. Dóttir Suttungs, Gunnlöð, gætir mjaðarins og þegar Óðinn kemst til hennar með brögðum fær hann einn sopa af miði fyrir hverja þeirra þriggja nátta sem hann dvelur hjá henni. Það nægir honum til að drekka allan mjöðinn og fljúga í arnarham með hann heim í Ásgarð. Þessi saga er sögð og teiknuð í film noir-stíl, en film noir er hugtak notað um svart-hvítar glæpamyndir frá fimmta og sjötta áratug tuttugustu aldar. Oft er aðalsöguhetja slíkra mynda einkaspæjari og það hlutverk fær Óðinn. Á dimmu og drungalegu kvöldi fær hann viðskiptavini, dvergana Fjalar og Galar, til sín. Þeir segjast hafa verið ranglega sakaðir um morðið á Gillingi og þurft að greiða Suttungi, syni hans, mjaðartunnu í föðurbætur. Trúverðugleiki viðskiptavinanna er lítill sem enginn en þeir fela Óðni að endurheimta tunnuna innan ákveðins tímaramma. Til að hvetja hann enn frekar gefa þeir honum sopa af miðinum, sem er, ólíkt öðrum miði, ekki vatnsblandað hunang heldur áfengur. Þannig verður leit Óðins að miðinum í senn leit hans að skáldagáfunni og löngun einkaspæjarans í áfengan drykk. Gunnlöð er sett í hlutverk femme-fatale sem gefur hetjunni misvísandi upplýsingar en að lokum nær hann að snúa á hana og kemst yfir mjöðinn. Teikningarnar eru dimmar og drungalegar, sögutíminn er í gráum og brúnum tónum en endurlit til fortíðar í lit. Hugsanir og vangaveltur Óðins um rannsóknina leiða söguna áfram, þær eru stuttar og hnitmiðaðar en fullar af goðfræðilegum vísunum. Örlög Mímis eru tengd inn í söguna og skýrt hvernig hann missti líkamann. Einnig er litið til Ynglingasögu þar sem Kvasir er sagður vera vanaættar og gísl ása, líkt og Njörður og börn hans. Hinn dularfulli Hænir, sem er ekkert nema nafnið í goðsögunum, kemur líka við sögu. Úr verður mál þar sem hlutirnir eru ekki eins og þeir sýnast í upphafi, heldur leynast lygar og samsæri víða. Einnig er unnið með hugmyndir um kvenveldi vana og gert grín að því hversu miklar karlrembur æsirnir eru og því geti þeir aldrei öðlast visku vana. DAUÐI BALDURS Þrettánda bókin nefnist Balladen om Balder og fjallar um dauða Baldurs, atburð sem í Snorra-Eddu er staðsettur rétt á undan ragnarökum og vitnað er til í fleiri heimildum, svo sem eddukvæðunum Völuspá og Baldurs draumum. Í frásögn Snorra-Eddu dreymir Baldur illa og draumarnir eru ráðnir sem forspá um dauða hans. Til að varna því fær BÆKURNAR OG ÚTGÁFUÁR ÞEIRRA Ulven er løs (1979) Thors brudefærd (1980) Odins væddemål (1982) Historien om Quark (1988) Rejsen til Udgårdsloke (1989) De gyldne æbler (1990) Ormen i dybet (1991) Frejas smykke (1992) Den store udfordring (1993) Gudernes gaver (1997) Mysteriet om digtermjøden (1998) Gennem ild og vand (2001) Balladen om Balder (2006) Muren (2007) Vølvens syner (2009)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.