Spássían - 2013, Blaðsíða 75
75
hennar að gjöf, um 500 verk. Fyrsta
einkasýning Elínar var svo sett upp í
safninu eftir hennar dag, árið 2011.
Kristín G. Guðnadóttir safnstjóri stóð
að uppsetningu sýningarinnar ásamt
erfingjum Elínar.4 Í sýningarskránni
koma fram ýmsar upplýsingar um
feril hennar og einkenni. Elín lærði í
Listaháskóla Kaupmannahafnar, m.a.
hjá Lundstrom (1893-1950) sem var
einn helsti fulltrúi kúbisma í danskri
myndlist. Þökk sé fjárhagsaðstoð
frá ættmennum gat hún unnið að
listinni. Hún seldi hvorki verk né setti
upp einkasýningu en tók þó þátt í
samsýningum í Danmörku og einni
samsýningu á Íslandi (1968). Um þá
samsýningu skrifar Bragi Ásgeirsson:
Listræn útfærsla verka
Elínar ber svip af langri dvöl
listakonunnar í borginni við
sundið — það er mildur blær
yfir þessum verkum Elínar.
Einna helst vöktu athygli mína
myndir eins og „Kranium“
(2), „Sitjandi módel“ (9) og
„Portræt“ (12). Ég þykist vita
að veigameiri verk liggi eftir
þessa listakonu og undrast að
hún skuli ekki frekar velja þau
til sýningar hér, en kannski
eigum við eftir að sjá þau áður
en langt um líður.5
Því miður urðu sýningar Elínar ekki
fleiri á Íslandi meðan hún var á lífi.
Vegna takmarkaðs sýningarhalds var
Elín ekki eins þekkt og annars hefði
verið. Hún ferðaðist víða um Evrópu
og var búsett í Kaupmannahöfn til
dauðadags. Síðustu árin ferðaðist
hún til Marokkó þar sem list hennar
fjarlægðist hlutbundna nálgun og
nálgaðist þess í stað óhlutbundnar
litasamsetningar eins og ferninga
á lituðum fleti. Stundum bætti hún
við hring og krossformi.6 Það má því
segja að Elín hafi nálgast list Eyborgar
á síðustu árum sínum.
Þótt verk þessara kvenna séu
mjög ólík eiga þau þó sameiginlegt
að litir eru eitt af lykilatriðum í
þeim. Tjáningu og tilfinningar
má sjá í verkum Elínar bæði hvað
varðar liti og form. Elín málaði m.a.
dramatískar og litríkar andlitsmyndir
sem minna á grímur. Einnig notaði
hún sterka liti í verkum sínum og
gjarnan kontrast. Á einkasýningu
Elínar (2011) voru andlitsmyndirnar
settar upp í myrkvuðu rými
Gryfjunnar í Listasafni ASÍ7. Það var
sterk og áhrifarík upplifun að standa
frammi fyrir andlitsmyndum hennar
í slíkri umgjörð sem gaf þeim einkar
leikrænan blæ. Elín notaði mikið
fjólubláan og bláan í dimmu litunum
en var spör á svarta litinn. Gjarnan
Verk eftir Eyborgu Guðmundsdóttur
Eyborg var meðlimur í áhrifamiklum
hópi þrjátíu abstraktlistamanna sem
stofnaður var af Folmer árið 1960 og
kallaði sig Groupe Mesure. Í hópnum
voru listmálarar og myndhöggvarar
sem unnu í anda geometrískrar
abstraksjónar.
Movement in Squares (1961)
eftir Bridget Riley
„